Fréttablaðið - 24.04.2008, Síða 88
56 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Undanúrslit í Lengjubikarnum
Undanúrslitin í Lengjubikar karla fara fram í dag. Klukkan
14.00 mætast Íslandsmeistarar Vals og ÍA í Kórnum í
Kópavogi og klukkan 19.00 fer leikur Fram og Breiða-
bliks fram í Egilshöll. Þarna gefst kærkomið
tækifæri fyrir knattspyrnuáhugamenn til að hita
upp fyrir Landsbankadeildina sem hefst
10. maí næstkomandi. Úrslitaleikurinn
fer síðan fram fimmtudaginn 1. maí.
HANDBOLTI Handknattleikssam-
band Evrópu, EHF, mun ekki
dæma Ólaf Stefánsson í leikbann
vegna rauða spjaldsins sem hann
fékk undir lok leiksins gegn
HSV í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar.
Eftir að hafa skoðað
myndbandsupptökur af
atvikinu sá EHF ekki
ástæðu til þess að refsa
Ólafi, sem getur þar
af leiðandi leikið
báða úrslitaleikina
gegn Kiel.
„Það er þungu
fargi af mér létt
við þessi tíðindi og
frábært að geta hjálpað
félögum mínum í
þessum leikjum gegn
Kiel,“ sagði Ólafur við
spænska blaðið Marca.
- hbg
Ólafur Stefánsson:
Ekki í banni
gegn Kiel
Stuðningsmannasveit Keflvíkinga, Trommusveitin, hefur legið í dvala
í vetur en heldur betur vaknað til lífsins í úrslitakeppninni þar sem
hún hefur farið mikinn í að hvetja sína menn áfram. Sveitin er skipuð
hressum strákum sem finnst gott að hita upp fyrir leiki með því
að fá sér smá söngvökva. Einhverjum hefur blöskað framkoma
strákanna, sem hafa á stundum sést með bjór í stúkunni.
Aðalsprauta sveitarinnar, Jóhann Alfreðsson, betur
þekktur sem Joey Drummer, segir ekkert athugavert
við framkomu sveitarinnar, sem sé ekki með nein
leiðindi eða dónaskap heldur einbeiti sér að
því að styðja sitt lið.
„Það voru einhverjir viðkvæmir að röfla en
það fylgir flestum kappleikjum hér heima
sem og erlendis að fá sér nokkra kalda til
þess að koma sér í gírinn. Ég skil samt vel
að fólk vilji ekki sjá bjór uppi í stúku og það
verður enginn með bjór uppi í stúku næst.
Ég get lofað því,“ segir Joey Drummer en
hann játar að það hafi gerst og þykir honum það miður.
„Það voru örfáir með bjór uppi í stúku síðast. Svo hefur því verið
haldið fram að við höfum verið til skammar í Hólminum og það
hafi sést í sjónvarpinu. Ég hef kíkt á þetta og það er algjört kjaftæði
enda vorum við ekki með nein leiðindi. Við vorum bara hressir
enda gaman hjá okkur. Við fórum í skemmtilega ferð í Hólminn
með tvo gítara, bongótrommu og allt að frétta,“ sagði Joey léttur
en hann segir sína menn hafa samið ein sex lög á leið í Hólminn.
Joey segir fáranlegt að einhverjir séu að fetta fingur út í
að stuðningsmenn fái sér nokkra bjóra fyrir leiki líkt og
tíðkist úti um allan heim. „Það er ekki eins og við séum
að neyta eiturlyfja. Það er ekkert rugl á okkur, þetta
eru bara nokkrir öllarar til að kveikja í mönnum. Það
verður enginn bjór í stúkunni núna en við verðum
svínhressir. Ég get lofað því,“ sagði Joey en hann
hvetur stuðningsmenn Snæfells til þess að hita upp
með Trommusveitinni, sem ætlar að hittast á Paddys eða
Yello fyrir leik.
TROMMUSVEIT KEFLVÍKINGA: HEFUR VERIÐ SÖKUÐ UM DRYKKJULÆTI Á LEIKJUM KEFLVÍKINGA
Það verður enginn með bjór uppi í stúku
KÖRFUBOLTI Chris Paul og félagar í
New Orleans Hornets eru komnir
í 2-0 gegn Dallas Mavericks eftir
tvö örugga heimasigra þar sem
leikstjórnandinn ungi hefur farið
á kostum.
Paul er fyrsti leikmaðurinn í
sögu úrslitakeppninnar sem nær
að skora 30+ stig, gefa 10+
stoðsendingar og stela 3+ boltum
í tveimur leikjum í röð og hann er
einnig sá fyrsti sem nær að skora
30 stig og gefa 10 stoðsendingar í
fyrstu tveimur leikjum sínum í
úrslitakeppninnni.
Eftir tvo fyrstu leikina er Paul
með 33,5 stig, 13,5 stoðsendingar
og 3,5 stolna bolta að meðaltali og
hefur hitt úr 64 prósentum skota
sinna og aðeins tapað samtals 4
boltum. Jason Kidd, sem átti að
breyta liði Dallas í meistaralið, er
aftur á móti með 9 stig og 8,5
stoðsendingar að meðaltali í
þessum tveimur töpum Dallas.
- óoj
Dallas í vondum málum:
Paul að fara illa
með Kidd
FÓTBOLTI Frank Lampard, miðju-
maður Chelsea, játar að hafa
hvorki verið líkamlega né
andlega tilbúinn í leikinn gegn
Liverpool. Lampard eyddi
lunganum af síðustu viku við hlið
móður sinnar sem liggur á
spítala með
lungnabólgu.
„Ég hef verið í
betra standi í
leikjum og vikan
hefur verið mér
mjög erfið,“ sagði
Lampard en um tíma
leit út fyrir að móðir
hans færi yfir móðuna
miklu. „Ég ætla ekki í
smáatriði en þetta leit
illa út á tímabili. Það
var erfiðasta
stund lífs
míns,“
- hbg
Frank Lampard líður illa:
Mamma er veik
FÓTBOLTI Leikur Barcelona og Man.
Utd náði aldrei þeim hæðum sem
vonast var til í gær. Manchester
United lá í skotgröfunum nánast
allan leikinn, sýndi litla sem enga
sóknartilburði á meðan Barcelona
fékk að leika sér með boltann á
miðjum vellinum. Markalaust
jafntefli og því mikil spenna fyrir
síðari leikinn á Old Trafford.
Það er óhætt að segja að leikur-
inn hafi farið hressilega af stað
því eftir rúma mínútu var dæmd
vítaspyrna á Barcelona. Ronaldo
skallaði boltann og Milito varði
hann með höndunum. Klár víta-
spyrna. Ronaldo tók spyrnuna
sjálfur, sendi Valdes í rangt horn
en skaut boltanum fram hjá. Dýr
mistök þar hjá Portúgalanum.
Vítið var sem kinnhestur í andlit
Börsunga sem tóku öll völd á vell-
inum í kjölfarið. Þeir sóttu grimmt
að marki United, fóru illa með
bakverði enska liðsins á köflum en
gekk þó ekkert að skapa sér opin
færi þar sem Ferdinand og Brown
voru sterkir fyrir miðju varnar-
innar. Messi var sérstaklega
sprækur en hafði ekki erindi sem
erfiði frekar en félagar hans.
Það var ekki fyrr en undir lok
hálfleiksins sem United var aftur
með. Ronaldo náði að komast inn í
sendingu frá Iniesta, var næstum
sloppinn í gegn en Milito náði að
stöðva hann. Einhverjir vildu fá
vítaspyrnu en Svisslendingurinn
Massimo Busacca var ekki á því
að flauta annað víti. 0-0 í hálfleik.
Barcelona byrjaði vel í síðari
hálfleik og í tvígang komst Eto´o í
ákjósanleg færi en hann fór illa að
ráði sínu í bæði skiptin. Eina færi
United í síðari hálfleik fékk
Michael Carrick er hann lék á
varnarmann og stóð einn gegn
markverði. Skot hans fór aftur á
móti í hliðarnetið.
United þétti vörnina eftir því
sem leið á hálfleikinn, leyfði
Börsungum að leika nálægt eigin
teig og lengra komust Börsungar
ekki enda Manchester-múrinn
afar þéttur.
Markalaust jafntefli því niður-
staðan og United stendur því
aðeins betur að vígi fyrir seinni
leikinn en vítaspyrnan sem klúðr-
aðist gæti reynst þeim dýr enda
mörk á útivelli gulls ígildi.
„Ég var ekkert að breyta víta-
spyrnutaktíkinni minni. Ég hef
nokkrum sinnum skorað í þetta
horn en í dag skoraði ég ekki. Það
er ekkert mál. Ég mun bara skora
í Manchester,“ sagði Ronaldo við
Sky eftir leikinn en hann taldi sig
eiga að fá annað víti er Marquez
fór í miður gáfulega tæklingu í
teignum.
„Ég tel að hann hafi snert mig
en dómarinn vildi ekki gefa víti.
Af hverju hef ég ekki hugmynd
um. Hvað varðar leikinn þá var
þetta mjög erfiður leikur. Barce-
lona spilaði vel, hélt boltanum vel
innan liðsins en við vörðumst vel.
0-0 er fín úrslit fyrir okkur. Barca
skapaði í raun engin færi, við
fengum betri færi en þeir. Nú er
það heimaleikurinn og ég tel að
við munum hafa betur þar,“ sagði
Ronaldo en Ferguson, stjóri
United, var einnig mjög sáttur við
markalaust jafntefli í leiknum.
henry@frettabladid.is
Múrinn ókleifi frá Manchester
Manchester United lagði sóknarbolta sinn á hilluna á Camp Nou í gær og myndaði þess í stað sterkan
varnarmúr sem Barcelona náði aldrei að rjúfa. Niðurstaðan markalaust jafntefli í leik sem Barcelona stýrði
allan tímann. Cristiano Ronaldo klúðraði vítaspyrnu á annarri mínútu leiksins.
DÝRT VÍTI Cristiano Ronaldo skaut fram hjá úr vítaspyrnu í upphafi leiksins í gær. Skal
engan undra að hann hafi síðan haldið um höfuð sér. NORDIC PHOTOS/AFP BARCELONA-MAN UTD 0-0
Lið Barcelona: Valdes, Zambrotta,
Milito, Marquez, Abidal, Toure, Deco
(77., Henry), Xavi, Iniesta, Messi (62.,
Bojan), Eto´o.
Lið Man. Utd: Van der Sar, Hargrea-
ves, Brown, Ferdinand, Evra, Scholes,
Carrick, Park, Ronaldo, Rooney (76.,
Nani), Tevez (85., Giggs).