Fréttablaðið - 24.04.2008, Qupperneq 89
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2008 57
FÓTBOLTI Martin O‘Neill, knatt-
spyrnustjóri Aston Villa, viður-
kennir að framtíð fyrirliðans
Gareth Barry sé óljós en leikmað-
urinn hefur átt frábært tímabil í
ár og verið orðaður við stórliðin
Chelsea og Liverpool upp á
síðkastið.
„Við munum gera okkar allra
besta til þess að halda Gareth á
Villa Park en hvort það tekst er
ómögulegt að segja,“ sagði
O‘Neill en samkvæmt heimildum
Sky Sports mun O‘Neill þegar
vera með mögulegan eftirmann
Barry undir smásjánni. Það ku
vera Steve Sidwell, miðjumaður
Chelsea, sem hefur lítið fengið að
spila með Lundúnaliðinu eftir
félagsskipti hans frá Reading og
talið er að leikmaðurinn sé falur
fyrir um fimm milljónir punda.
Barry á enn tvö ár eftir af
samningi sínum við Aston Villa.
Sögusagnir hafa birst í breskum
fjölmiðlum um að Rafa Benitez,
knattspyrnustjóri Liverpool, sé
þegar búinn að spyrjast fyrir um
Barry og að tilboð upp á fjórtán
milljónir punda sé á borðinu. - óþ
Martin O‘Neill, Aston Villa:
Óljós staða með
Gareth Barry
EFTIRSÓTTUR Barry hefur nýverið verið
orðaður við bæði Chelsea og Liverpool.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Alexand-
er Hleb hefur spilað sinn síðasta
leik fyrir Arsenal á þessu tímabili
eftir að hann var dæmdur í
þriggja leikja bann fyrir óíþrótta-
mannslega hegðun í leik gegn
Reading. Hleb sló þá til Graeme
Murty, fyrirliða Reading.
„Dómari leiksins sá ekki athæfi
Hleb í leiknum en eftir að hafa
horft á upptökur frá atvikinu
hefur viðkomandi dómari tjáð
aganefnd enska knattspyrnusam-
bandsins að hann hefði gefið Hleb
beint rautt ef hann hefði séð
atvikið,“ segir í yfirlýsingu
aganefndarinnar.
Leikmaðurinn hefur undanfarið
stöðugt verið orðaður við
félagaskipti frá Arsenal. Sam-
kvæmt breskum fjölmiðlum er
Hleb undir smásjá stórliða á borð
við AC Milan og Barcelona en
hann kvaðst á dögunum afar
ánægður hjá Arsenal. Hleb
skrifaði undir fjögurra ára
samning þegar hann gekk til liðs
við Arsenal í lok júní árið 2005. - óþ
Alexander Hleb í leikbann:
Leiktímabilið
búið hjá Hleb
Í BANN Hleb getur sjálfum sér um kennt
að fá ekki að spila meira með Arsenal á
þessu tímabili. NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Handknattleikskapp-
inn Valdimar Fannar Þórsson
stendur í ströngu þessa dagana
við að finna sér nýtt félag eftir
tímabil vonbrigða með HK
Malmö sem féll eins og kunnugt
er úr sænsku úrvalsdeildinni.
Valdimar skrifaði undir tveggja
ára samning við HK Malmö á síð-
asta ári en telur best fyrir báða
aðila að hann fari til annars
félags.
„Staðan er einfaldlega þannig
að HK Malmö vill fá ákveðna
upphæð fyrir mig þar sem ég er
samningsbundinn félaginu út
næstu leiktíð og áhugasöm félög
verða því að semja við forráða-
menn HK Malmö um kaupverð-
ið.
Ég hef aftur á móti leyfi frá
forráðamönnum félagsins til þess
að tala við önnur félög þar sem
þeir vita að ég hef takmarkaðan
áhuga á því að spila í næstefstu
deild í Svíþjóð. Þá þyrfti ég líka
að breyta samningi mínum og ég
er ekki tilbúinn til þess. Það er
því í raun líka þeirra hagur að
losna við mig þar sem þeir hafa
lítið fjármagn undir höndunum
eftir að hafa fallið úr deildinni og
geta ekki haldið öllum núverandi
leikmönnum sínum út af launa-
kostnaði og öðru,“ sagði Valdi-
mar sem hefur verið sterklega
orðaður við að snúa heim til
Íslands og leika fyrir sitt gamla
félag HK.
„Það er ekkert launungarmál
að ég hef verið í viðræðum við
HK og það er í raun eina liðið
sem ég vil fara til á Íslandi ef út í
það fer að ég komi heim. Ég var
líka alveg kominn á það að spila
heima en nú veit ég ekki hvernig
þetta fer,“ sagði Valdimar og
kvaðst óviss með framhaldið.
„Þetta virðist ætla að taka
lengri tíma en ég hélt í fyrstu og
maður sér eins og er ekki fyrir
endann á þessu öllu saman. Það
hafa verið einhverjar þreifingar
og nokkrar fyrirspurnir um mig
en það fer allt í gegnum HK
Malmö.
Ég vonast bara til að þetta
klárist ekki seinna en um miðjan
næsta mánuð þannig að ég geti
farið að gera mig kláran fyrir
næsta tímabil, hvar sem ég á eftir
að spila,“ sagði Valdimar. - óþ
Valdimar Þórsson er samningsbundinn HK Malmö út næsta tímabil en vill ólmur losna frá sænska félaginu:
HK eina íslenska liðið sem ég vil fara til
ÓVISSA Valdimar væri til í að
leika á fornum slóðum með
HK. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR