Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 90
58 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Það er enginn uppgjaf-
artónn í Justin Shouse þótt hann
játi að enginn í Snæfellsliðinu hafi
búist við því að lenda 0-2 undir.
„Við fengum gott tækifæri til
þess að vinna fyrsta leikinn en
svo komu þeir og rassskelltu
okkur á okkar eigin heima-
velli. Það spilaði enginn
vel í síðasta leik nema
Nonni Mæju (Jón Ólaf-
ur Jónsson), sem er
mjög óvanalegt hjá
okkur. Við létum Kefl-
víkingana ýta okkur til
og frá í leiknum og þeir
unnu baráttuna í leikn-
um, sem er örugglega í
fyrsta sinn sem það ger-
ist á okkar heimavelli á
þessu tímabili. Nú þurf-
um við að taka áskorun-
inni og mæta til þeirra og
láta finna fyrir okkur. Kefla-
vík er að spila meistarabolta þessa
stundina en ekki við,“ segir Justin.
„Við þurfum að fækka mis-
tökunum hjá okkur því það
má segja að við séum að vinna
sjálfa okkur í þessum tveimur
leikjum. Það mun skipta mestu
máli að við förum að hugsa
betur um boltann og fækka
töpuðu boltunum. Það þarf
að liggja á boltanum
eins og gulli í
úrslitakeppninni,“
segir Justin. „Við
skuldum
körfubolta-
áhugamönnum á Íslandi
betra einvígi en það hefur
verið til þessa og Keflvík-
ingar þurfa að gera eitt-
hvað sérstakt til þess að
vinna okkur í þessum
leik,“ sagði Justin að
lokum. - óój
Snæfellingurnn Justin Shouse fyrir leikinn í kvöld:
Skuldum betra einvígi
KÖRFUBOLTI Keflvíkingurinn
Tommy Johnson er klár í þriðja
leikinn í kvöld. „Við verðum að
einbeita okkur áfram að því sem
við höfum verið að gera svo vel
síðan í þriðja leiknum á móti ÍR.
Við fundum góðan takt eftir að
hafa spilað mjög illa í fyrstu
tveimur leikjunum. Það sem
skiptir mestu máli er að við erum
að spila frábæra liðsvörn,“ segir
Tommy Johnson, sem hefur
skorað 21,8 stig að meðaltali á
28,0 mínútum í síðustu fimm
leikjum. Hann segir sigurhefðina
sterka í Keflavík.
„Það er greinilegt að þessir
strákar í liðinu hafa verið í
þessari stöðu áður. Það var ekki
auðvelt að koma til baka eftir að
hafa lent 0-2 undir en þeirra
hugarfar og karakter dreif liðið
áfram og ég veit að mörg lið
hefðu gefist upp í sömu stöðu,“
segir Tommy, sem á von á því að
fyrirliðinn Magnús Þór Gunnars-
son eigi góðan leik en hann hefur
aðeins hitt úr 3 af 15 skotum
sínum í einvíginu til þessa.
„Maggi hefur verið í vandræð-
um í síðustu leikjum og ekki hitt
vel. Ég veit að hann þarf bara
einn góðan hálfleik til þess að
komast aftur á flug. Ég er viss
um að hann komi sterkur inn í
þessum leik, sem gerir allt miklu
auðveldara fyrir okkur hina. Það
er erfitt að vinna okkur því við
erum að fá framlag frá mörgum
mönnum á mörgum mismunandi
sviðum,” segir Tommy.
„Það mun ekkert trufla okkur
að hafa bikarinn á hliðarlínunni.
Það skiptir mestu máli að við
höldum áfram að spila fast og láta
finna fyrir okkur. Við ætlum að
spila grimma vörn og gefa þeim
engin auðveld stig. Ef þeir ætla
að koma hingað og vinna okkur
þurfa þeir að hafa mikið fyrir
því,“ segir Tommy að lokum. - óój
Tommy Johnson í Keflavík:
Það er erfitt að
vinna okkur
MAÐUR LEIKSINS Tommy Johnson var
valinn besti leikmaðurinn í leik tvö þar
sem hann skoraði 27 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Kjarninn í karlaliði
Keflvíkinga á möguleika á því að
fagna fjórða Íslandsmeistaratitl-
inum sínum frá árinu 2003 vinni
þeir þriðja leikinn í röð gegn bik-
armeisturum Snæfells í Toyota-
höllinni í kvöld. Leikurinn hefst
klukkan 19.15 og er búist við troð-
fullu húsi.
Keflavíkurkonur hafa þegar
komið með Íslandsbikarinn í hús
eftir sex sigra í röð og karlarnir
geta endurtekið leikinn því þeir
hafa unnið alla leiki sína síðan þeir
lentu 0-2 undir gegn ÍR í undanúr-
slitaeinvígi sínu á dögunum.
Keflavíkurliðið hefur sýnt mik-
inn styrk í lokaúrslitum síðustu ár
og hefur sem dæmi unnið 11 af
síðustu 13 leikjum sínum um titil-
inn. Þrír leikmenn liðsins hafa
spilað alla þessa þrettán leiki en
það eru Gunnar Einarsson, Magn-
ús Þór Gunnarsson og Jón Norðdal
Hafsteinsson. Arnar Freyr Jóns-
son missti af einum leik vegna
leikbanns (lokaleikurinn 2004) og
þá var Sverrir Þór Sverrisson
búinn að leika alla leiki fyrir loka-
úrslitin í ár en hann skipti eins og
kunnugt er yfir í Njarðvík fyrir
þetta tímabil.
Snæfell hefur aftur á móti tapað
8 af 10 leikjum í sínum þremur
lokaúrslitum og þeir Hlynur Bær-
ingsson og Sigurður Þorvaldsson
hafa verið með í öllum þessum tíu
leikjum. Snæfell hefur mætt
Keflavík í öll skiptin og hefur nú
tapað fimm leikjum í röð í lokaúr-
slitum í Sláturhúsinu í Keflavík
sem nú ber nafnið Toyota-höllin.
Kunna að klára einvígin
Það er ekki nóg með að Keflvík-
ingar séu sterkir í lokaúrslitum;
þeir eru einnig góðir í að klára
úrslitaeinvígin sín. Keflvíkingar
hafa alls unnið 8 af 11 leikjum þar
sem þeir hafa getað tryggt sér
meistaratitilinn, þar af sex af
þeim sjö leikjum sem þeir hafa
spilað við þessar aðstæður á
heimavelli sínum í Keflavík.
Eina skiptið sem þeir hafa klikk-
að á því að tryggja sér titilinn á
heimavelli var þegar Njarðvíking-
ar unnu þá
91-81 í fjórða
leiknum árið
1991. Njarð-
víkingar
tryggðu sér
þar með odda-
leik í Ljóna-
gryfjunni þar
sem þeir tryggðu
sér Íslandsmeist-
aratitilinn og unnu
því þetta vor tvo af
þessum þremur
leikjum sem Keflvík-
ingar hafa tapað með
Íslandsbikarinn innan
seilingar á hliðarlín-
unni. Þriðja tap Keflvík-
inga kom í Njarðvík í fjórða leik
árið 1999 en Keflvíkingar bættu
fyrir það með því að vinna odda-
leikinn á heimavelli og tryggja sér
titilinn. Keflavík hefur nú unnið
fjóra leiki í röð í þessari stöðu en
liðið vann báða leiki sína sannfær-
andi gegn Snæfelli í sömu stöðu
árin 2004 (20 stiga sigur, 87-67) og
2005 (10 stiga sigur, 98-88).
Útlendingar Keflavíkur hafa
svo sannarlega vinninginn í fyrstu
tveimur leikjunum. Þeir Bobby
Walker, Tommy Johnson og
Anthony Susnara hafa skil-
aði 53 fleiri stigum, eru
með 18,8 prósentustigum
hærri skotnýtingu og
hafa skilað 34,5 hærra
framlagi að meðaltali
í leikjunum til
þessa. Þeir
Bobby og
Tommy eru
líka með hæsta
framlag allra
leikmanna í einvíg-
inu. Bobby hefur skorað
22,6 stig, tekið 6,5 fráköst og
gefið 6,0 stoðsendingar að
meðaltali í leikjum eitt og tvö,
sem skilar 32 framlagsstigum
til liðsins, en Tommy hefur
skilað 23,0 framlagsstigum í
leik. Tommy hefur reyndar
bætt í í hverri umferð úrslita-
keppninnar. Hann var róleg-
ur gegn Þór í átta liða úrslit-
unum (12,5 stig í leik), vaxandi
gegn ÍR í undanúrslitunum (17,0
stig í leik og 96 prósenta vítanýt-
ing) og hefur síðan verið frábær í
fyrstu tveimur leikjunum á móti
Snæfelli (22,5 stig og 53,1 prósents
skotnýting).
Aðeins tvö sóknarfráköst
Nokkrar tölur stinga í augun þegar
tölfræði fyrstu tveggja leikjanna
er skoðuð nánar.
Frákastatröllið Hlynur Bær-
ingsson hefur sem dæmi aðeins
tekið tvö sóknarfráköst á 70 mín-
útum í þessum tveimur leikjum og
það er augljóst að Keflavíkurliðið
leggur höfuðáherslu á að stíga
Víkinginn út en Hlynur tók sem
dæmi 24 sóknarfráköst í fjórum
leikjum á móti Grindavík.
Annað sem vekur athygli er að
Keflavík hefur stolið 19 fleiri bolt-
um (27 á móti 8) en Snæfell en
Hólmarar hafa alls tapað 34 bolt-
um í fyrstu tveimur leikjunum á
móti aðeins 16 hjá Keflvíkingum.
Það hefur enn fremur ekki dugað
Snæfellsliðinu að taka 22 fleiri
fráköst og fá 9 fleiri víti í þessum
leikjum.
Vinni Snæfellingar í kvöld
tryggja þeir sér fjórða leikinn í
Stykkishólmi á laugardaginn en
vinni Keflvíkingar leikinn verða
þeir Íslandsmeistarar í níunda
sinn.
ooj@frettabladid.is
Sterkir á úrslitastundu
Keflavík hefur unnið 11 af síðustu 13 úrslitaleikjum sínum um Íslandsmeistara-
titilinn og getur orðið Íslandsmeistari í fjórða sinn á sex árum vinni liðið Snæ-
fell í kvöld. Sagan segir Keflvíkinga kunna það manna best að klára sín einvígi.
ÞEKKIR ÞESSA STÖÐU VEL Magnús Þór Gunnarsson hefur skorað 17 stig í leik og hitt
úr 50 prósentum af þriggja stiga skotum sínum í þeim leikjum sem Keflavík hefur
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í undanfarin þrjú skipti. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRNL
MEISTARAR Gunnar
Einarsson lyftir Íslands-
bikarnum 2005.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nr. 38923-54238
Stærðir:
36-41
Dömuskór
Nr. 38243-53376
Stærðir:
36-41
Dömuskór
GOLFSKÓR
VOR 2008
KRINGLUNNI - SMÁRALIND
Verð:
16.995kr.-
Nr. 38674-52102
Stærðir:
40-45
Verð :
22.995kr.-
Herraskór
Nr. 38004-51052
Stærðir:
40-46
Verð:
24.995kr.-
Herraskór
Nr. 38644-54242
Stærðir:
41-45
Verð:
19.995kr.-
Herraskór
Verð:
22.995kr.-
Nr. 38883-53582
Stærðir:
36-41
Verð:
18.995kr.-
Dömuskór