Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 96
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Ólafs Sindra
Ólafssonar
Þeirri staðreynd var vandlega haldið leyndri fyrir Íslend-
ingum á sínum tíma að Eurov-
ision-keppnin væri risavaxin
hommaárshátíð. Hommar voru
enda enn álitnir kynvillingar,
ekki síst af því hégómlega fólki
sem í alvöru hafði metnað fyrir
því að vinna söngvakeppnina.
Það var í raun hégóminn sem batt
okkur skerjabúana norður í rass-
gati við homma heri álfunnar.
Samhljómurinn varð næsta algjör
þar sem þetta var á hommaleg-
asta áratug mannkynssögunnar í
þokkabót.
ÞAÐ tók þá sem stóðu keppninni
næst þó ekki langan tíma að átta
sig á því hvers kyns var. Þegar
Sverrir Stormsker var sendur út
með fullkomið sigurlag (því það
voru svo mörg útlensk orð í því)
var sendur með honum ungur
Stebbi Hilmars, bjartur á rödd
sem hörund – klippimynd úr
blautum draumi bjarnarhomma-
týpunnar. Til að tryggja aðdáun
estrógenhommanna líka var Jón
Páll látinn bera Stebba um svæð-
ið öskrandi rödduð slagorð.
Hefðu þeir svo tekið sig til og
kysst að auki er alls óvíst að
smettið á lukkutröllinu Sverri
hefði náð að koma í veg fyrir
sigur.
FRÁ þessum degi höfum við
aðeins sent þrjár tegundir af
lögum í þessa keppni. Homma-
lög, hommafóbíulög og aríur.
Aríur eru lög sem taka sig hátíð-
lega og eiga aldrei neinn séns (Bo
Hall og Jónsi eru dæmi um þetta,
þó sá síðarnefndi gæti reyndar
fallið í tvo þessara flokka);
hommafóbíulag allra tíma söng
ungfrú Nótt, og Barði gerði heið-
arlega tilraun til að endurtaka
leikinn – og við höfum aldrei
eignast hommalegra lag en This
is My Life.
GJALDA á Guði það sem Guðs er
og keisaranum það sem keisar-
ans er. Hví ekki að gjalda homm-
anum það sem hommans er. Hví
ekki að einfalda veröldina svolít-
ið aftur. Við svömlum í efnahags-
legum ólgusjó og það kallar á ein-
faldari lífshætti og svarthvítari
heimsmynd.
HOMMI með tónleika í Skálholti
og hommar að þykjast vera iðnað-
armenn í húsbyggingu í raun-
veruleikasjónvarpi eru jafnfrá-
leit fyrirbæri í kreppu og kynvísir
menn að syngja í Júróvisjón. Eða
gáfaðir trukkabílstjórar.
Hommahasar
Í dag er fimmtudagurinn 24.
apríl, 115. dagur ársins.
5.27 13.26 21.27
4.58 13.11 21.25