Fréttablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er góður dagur til að þakka fyrir þá dásamlegu tilviljun að þú fæddist í besta landi í heimi. Að þú sért hluti af hamingjusömustu þjóð í heimi og hafir ítrekað borið gæfu til að kjósa þér bestu leiðtoga alheimsins. Í skjóli golfstraumsins, ein á gleði- skerinu sígræna, getum við varist vondum erlendum áhrifum. Ekki viljum við að belgískir níðingar komist í náttúruauðlindir okkar og spænskir sósíalistar veiði allan fiskinn. Það segir sig sjálft að okkar grænmeti sem vaxið hefur undir hátæknilegum flúorljósum er miklu betra en erlent krabba- meinssólbrunnið sorp. Okkar ostar betri en mengaður viðbjóður, okkar kjöt betra en sýkt og saurugt útlent dót. Allt er best á Íslandi. Þetta vita heiðvirðir borgarar og greiða því með glöðu geði fyrir dýrasta mat í heimi. Auðvitað verður að ofurtolla útlenda sorpið svo kjánar fari sér ekki að voða. Fáum við ódýran mat deyjum við öll úr sjúkdómum og hættum að tala íslensku. ÓSKEIKULIR leiðtogar okkar hafa með dugnaði og útsjónarsemi tekist að koma verðbólgunni hærra en hún hefur verið í átján ár. Hús- næðismarkaðurinn er í blóma og bilið milli ríkra og fátækra hefur aldrei verið meira. Íslenska krón- an stendur eins og klettur í hafinu þegar fárviðri geisa annars staðar. Alls konar frábærar mótvægisað- gerðir til að viðhalda stöðugleikan- um hafa skilað þessari himnesku niðurstöðu því íslenskir stjórn- málamenn hugsa svo sannarlega langt fram í tímann. Hér er allt svo unaðslegt að okkar besta fólk getur leyst alþjóðleg ágreiningsmál með litla putta á meðan þjóðarskútan siglir inn í sólarlag eilífrar ham- ingju. Leiðtogar okkar eru hálfguð- ir. Sérstök eftirlaunalög eru því sá minnsti þakklætisvottur sem alþýðufólk getur sýnt leiðtogum sínum. Risavaxnar gullstyttur á Lækjartorgi eða pýramídar væru eðlilegt framhaldsskref. ÞEGAR sora- og spillingaröfl færa sig upp á skaftið er gott að vita af sterkri lögreglu sem mannfjölda- stjórnar hryðjuverkamönnum með hamingjuúða. Efla þarf sérsveit- irnar og ganga harðar fram við íslenskt hryðjuverkafólk. Upplagt væri að úða eina uppreisnarhjúkku eða vörubílstjóra með reglulegu millibili öðrum til aðvörunar. Svei soraöflum sem rugga báti fullkom- leikans. KÆRU landsmenn. Í dag skulum við sameinast í söng og ganga til móts við enn bjartari framtíð, lýta- lausum leiðtogum okkar til dýrðar. Það er, ef þið eruð ekki of upptekin við að bóna hjólhýsin. Dagur þakklætis Í dag er fimmtudagurinn 1. maí, 122 dagur ársins. 4.59 13.25 21.53 4.31 13.10 21.50 ...ég sá það á visir.is „...fyrst á visir.is“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.