Fréttablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 36
1. MAÍ 2008 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● bílar
Keppt verður í sparakstri laugardaginn 3. maí
með þátttöku bílaumboða og almennings.
Skráning er á heimasíðunum www.fib.is og
www.atlantsolia.is. Fjöldinn er takmarkaður en
fyrstir koma, fyrstir fá.
„Þetta er kjörin laugardagsskemmtun fyrir fjöl-
skylduna,“ segir Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri
Atlantsolíu, um sparaksturskeppnina á laugardaginn
og undir það tekur Runólfur Ólafsson framkvæmda-
stjóri FÍB. „Áhugi fólks á sparnaði eldsneytis hefur
eðlilega aukist í þjóðfélaginu eftir hinar gífurlegu
hækkanir á bensín- og olíuverði. Því finnst okkur
sjálfsagt að gefa almenningi kost á að vera með í
keppninni.“
Þeir segja þetta þriðja árið í röð sem FÍB og Atl-
antsolía efna til sparaksturskeppni en hingað til hafi
einungis bílaumboðin verið með. Nú verður keppt í
nokkrum flokkum og verður fjöldi almennra þátttak-
enda takmarkaður við sextíu.
Að sögn Huga og Runólfs hefst almenningskeppn-
in við Atlantsolíu á Bíldshöfða klukkan 12 á hádegi
á laugardag en tveimur tímum fyrr er ræst í keppni
umboðanna. Allir eiga að vera búnir að skrá sig fyrir
klukkan 13 á föstudag og kostar þátttaka 1.800 kr.
fyrir almenning en 1.300 fyrir dælulyklahafa AO og
félaga FÍB. Ekið er um Mosfellsdal, Mosfellsheiði
og Grafning að Nesjavallavirkjun, Úlfljótsvatni og
niður á Selfoss, út á Óseyrarbrú og um Þrengslin til
Reykjavíkur. „Fyrsti bíll fer af stað klukkan tólf,“
segir Hugi. „Svo er ræst til brottfarar með mínútu
millibili eins og í öðrum ökukeppnum. Þannig fer
síðasti bíll klukkutíma á eftir þeim fyrsta ef sextíu
mæta.“ Spurður hvort sömu röð verði haldið allan
tímann svarar hann. „Auðvitað er hægt að taka fram
úr en ég hugsa að menn haldi í heiðri helstu gildi
sparaksturs og fari ekkert að tæta.“
Runólfur tekur fram að tímarammi tryggi að
ekið verði á löglegum og eðlilegum hraða. „Ef menn
brjóta tímarammann fá þeir refsistig og líka ef þeir
verða uppvísir að umferðarlagabrotum eða óeðlilegu
aksturslagi,“ upplýsir hann en bætir við að til mikils
sé að vinna því veitt verði verðlaun í hverjum flokki
og vegleg verðlaun hreppi sá sem ekur hringinn á
fæstum lítrum.
Keppt er bæði í bensín- og dísilflokkum, auk
mótor hjólaflokks en Runólfur segir tvinnbílana
(sem nota bæði bensín og rafmagn) ekki fá sérstak-
an flokk þar sem rafmagnið nýtist einkum í innan-
bæjarakstri. Hann segir bílaumboðin sífellt leggja
meiri áherslu á hagkvæmni sinna ökutækja og þar
með svara kröfum kaupenda. „Ég á von á því að bíla-
floti landsmanna breytist á næstu árum og við sjáum
meira af minni og sparneytnari bílum en þeim sem
nú eru í aðalhlutverkum á götunum.“ - gun
Ræst með mínútu millibili
Hugi og Runólfur bregða á leik og látast dæla bensíni í
verðlaunabikarinn sem heppinn þátttakandi sparaksturs-
keppninnar hlýtur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ofurbíllinn Ford GT var ræstur fyrstur í fyrra eftir að hafa fengið eldsneyti eins og aðrir. Þá er hafður kubbur undir afturhjóli til að
tryggja að tankurinn fyllist.
Kóreski bílaframleiðandinn Hyundai hefur bætt Hyundai Genesis
Coupe við framleiðslu sína.
Bíllinn var kynntur í New York í síðasta mánuði og gefur að sögn
framleiðenda lúxusbílum á borð við Audi A5 og 3-línu BMW ekkert eftir.
Hann er búinn afturhjóladrifi og kraftmikilli V8 vél og er talinn gefa
tóninn um þann sess sem framleiðendur vilja að Hyundai skipi í augum
bílakaupenda.
Hönnun bílsins hefur lítið breyst frá því að hann var fyrst kynntur til
sögunnar sem hugmyndabíll í Detroit fyrr á þessu ári. Innréttingarnar
eru svipaðar þeim sem eru í nýrri bílum frá Hyundai en eru þó með mun
sportlegra sniði en áður ásamt bólstruðum sætum.
Bíllinn er einnig hlaðinn aukabúnaði á borð við fjarstart og USB-tengi
fyrir tónlist úr tölvum og tónlistarspilurum. - ve
Lúxusbíll frá Hyundai
Hyundai Genesis Coupe gefur lúxusbílum á borð við Audi A5 og 3-línu BMW ekkert
eftir að sögn framleiðenda.
BMW fagnaði nýlega þrjátíu ára afmæli hins fræga M1-sportbíls með
því að kynna nýjan hugmyndabíl, BMW M1 Homage.
Bíllinn er tveggja sæta og að mestu leyti byggður á sömu hugmynda-
fræði og hinn upprunalegi M1, með vélinni fyrir miðju.
Chris Bangle, yfirhönnuður BMW, segir hinn nýja M1 Homage sam-
eina gæðahönnun og tækni nútímans.
Þrátt fyrir að vélin hafi verið sett í miðju bílsins segja talsmenn BMW
ólíklegt að það verði gert í öðrum bílum frá þeim. Frekar sé litið á þetta
sem æfingu í hönnun.
Hinn upprunalegi BMW M1 Coupe var handsmíðaður í verksmiðjum
BMW á árunum 1978 til 1981 og voru ekki nema 456 bílar framleiddir.
Þeir hafa lengi verið goðsagnakenndir í augum bíla áhugamanna. - ve
Til heiðurs BMW M1
BMW M1 Homage er hugmyndabíll sem var hannaður í tilefni af 30 ára afmæli BMW.