Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 6
6 3. maí 2008 LAUGARDAGUR Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Trier – elsta borg Þýskalands 68.400 kr. Verð á mann í tvíbýli5.–10. júní Fararstjóri: Óttar Guðmundsson Innifalið: Flug til Frankfurt Hahn með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á Altstadt-hótelinu með morgunverði og akstur til og frá flugvelli. Leyndarmál Stokkhólms 65.900 kr. Verð á mann í tvíbýli 7.–11. júní Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, 4 nætur á Hotel Scandic Continental með morgunverði og íslensk fararstjórn. Fararstjóri: Halldór Stefánsson Sumarferð til Barcelona 65.900 kr. Verð á mann í tvíbýli 13.–16. júní Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á Hesperia-hótelinu með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. HÁSKÓLANÁM MEÐ VINNU ÁHUGAVERT NÁM - STERKARI STAÐA - AUKIN FÆRNI Kynningarfundur um háskólanám með vinnu verður haldinn mánudaginn 5. maí kl. 16:30 í Ofanleiti 2, 3. hæð. Háskólanám með vinnu (HMV) í viðskiptadeild HR er góður valkostur fyrir fólk sem hefur reynslu úr atvinnulífinu og vill stunda fullgilt nám í háskóla sam- hliða vinnu. Forstöðumaður BSc náms kynnir námið og fyrrverandi nemendur miðla af reynslu sinni og svara spurningum. Hægt er að velja um þessar leiðir í HMV • BSc í viðskiptafræði (90 ein.) • Fjármál og rekstur (diplóma) • Stjórnun og starfsmannamál (diplóma) • Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti (diplóma) Nánari upplýsingar er að finna á www.hr.is/hmv BRETLAND, AP Breski Verkamanna- flokkurinn beið mikið afhroð í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í landinu í fyrradag. Þetta varð ljóst er talið var upp úr kjörkössunum í gær. Útkoma flokksins, sem haldið hefur um stjórnartaumana í landsmálun- um í ellefu ár samfleytt, er sú versta í slíkum kosningum síðan árið 1973. Gordon Brown forsætisráð- herra, sem sætt hefur ásökunum um hik og misráðnar aðgerðir í efnahagsmálum frá því hann tók við ríkisstjórnarleiðtogahlut- verkinu í júní í fyrra, hét því að taka þessa áminningu frá kjós- endum til sín eftir að flokkurinn tapaði yfir 300 sætum í sveitar- stjórnum landsins. Íhaldsflokkurinn vann mikið á, einkum og sér í lagi í borgum og bæjum Norður-Englands þar sem frambjóðendur flokksins hafa lengi átt erfitt uppdráttar, og áður en endanleg úrslit höfðu verið kynnt var útlit fyrir að íhaldsmaðurinn Boris Johnson myndi fella vinstrimanninn vin- sæla Ken Livingstone úr sæti borgarstjóra Lundúna. Livings- tone varð fyrsti kjörni borgar- stjóri borgarinnar fyrir átta árum og þar til fyrir skömmu þótti fátt geta varnað því að hann yrði endurkjörinn þriðja kjör- tímabilið í röð. Nú er borgarstjórastaða bresku höfuðborgarinnar eitt mest áber- andi embætti landsins, en sá sem því gegnir ræður yfir milljarða útsvarssjóðum og á að annast undirbúning sumarólympíuleik- anna árið 2012. Afhroð Verkamannaflokksins veikir stöðu Browns og mun vafa- laust efla gagnrýnisraddir í hans eigin flokki. Ófáir flokksmenn óttast að Brown skorti kjörþokka til að standa nógu vel að vígi gegn hinum unga og metnaðarfulla leiðtoga íhaldsmanna, David Cameron, í þingkosningum sem fara verða fram fyrir mitt ár 2010 hið seinasta. audunn@frettabladid.is SLAGUR UM HÖFUÐBORGINA Ken Livingstone borgarstjóri við kosningaveggspjald þar sem vísað er til áskorandans Borisar John- son sem „brandara“. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Verkamannaflokk- urinn bíður afhroð Staða Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga Verkamannaflokks- ins, þykir hafa veikst til muna við þá slæmu útreið sem flokkurinn fékk í sveitar- stjórnarkosningum. Þetta er versta útkoma Verkamannaflokksins síðan árið 1973. UMHVERFISMÁL Blaðberanum, sér- stakri endurvinnslutösku fyrir dagblöð, hefur verið ákaflega vel tekið frá því að dreifing hófst 18. apríl síðastliðinn. Langir biðlistar hafa myndast á landsbyggðinni og er nú svo komið að þeir þrjátíu þúsund Blaðberar sem framleiddir voru í fyrstu eru nánast búnir. Hafa forráðamenn Fréttablaðsins því ákveðið að panta þrjátíu þúsund stykki til við- bótar og er reiknað með að þau berist til landsins í júní. Áfram verður þó hægt að nálg- ast Blaðberann í höfuðstöðvum 365 við Skaftahlíð 24 milli klukkan 8 og 17 alla virka daga. Þá verður Blaðberanum dreift í dag milli klukkan 11 og 15 á bensínstöðvum N1 á Ártúnshöfða og Háholti í Mosfellsbæ. - ovd Fréttablaðið hefur gefið nærri þrjátíu þúsund endurvinnslutöskur fyrir dagblöð: Blaðberanum mjög vel tekið BLAÐBERINN VINSÆLL Blaðberanum verður dreift milli klukkan 11 og 15 í dag á bensínstöðvum N1 á Ártúnshöfða og Háholti í Mosfellsbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA AUSTURRÍKI, AP Lögreglan í Austurríki vinnur enn hörðum höndum að því að rannsaka hús dótturníðingsins Josefs Fritzl í Amstetten, þar sem hann hélt dóttur sinni fanginni í kjallaraholu í 24 ár. Lóðin verður meðal annars öll rannsökuð með hljóðsjá til að ganga úr skugga um hvort fleiri rými séu neðanjarðar. Einnig er unnið að því að yfirheyra meira en hundrað manns, sem hafa búið í húsinu síðustu áratugina. Aðrir, sem hafa gefið sig fram og segjast hafa þekkt Fritzl, eru einnig yfirheyrðir. Meðal annars er lögreglan að reyna að komast að því hvort eitthvað sé hæft í því að Fritzl hafi útbúið húsakynnin, þar sem Elizabeth dóttir hans hírðist ásamt þremur börnum þeirra, þannig að banvænt gas myndi streyma inn, kæmi eitthvað fyrir hann. Fritzl segist hafa hótað dóttur sinni með þessu, svo hún myndi örugglega ekki reyna að yfirbuga hann meðan hann væri niðri hjá henni. Rannsóknarfólk niðri í kjallaraholunni hefur þurft að gera reglulega hlé á störfum sínum vegna skorts á súrefni. „Við erum að reyna að upphugsa einhverjar leiðir til að bæta loftræstinguna,“ segir Franz Polzer, lögreglumaðurinn sem stjórnar rannókninni. - gb Viðamikil rannsókn á fortíð Josefs Fritzl og níðingsverkum hans: Kanna hvort fleiri rými séu í húsi Fritzls UMSETINN RÉTTARMEINAFRÆÐINGUR Fjölmiðlar sátu um þennan réttarmeinafræðing við innganginn að húsi Josefs Fritzl í Amstetten. NORDICPHOTOS/AFP Ertu þú fylgjandi því að lög- reglumenn fái árangurstengd laun? JÁ 30,3% NEI 69,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Telur þú að misskipting á Íslandi sé að aukast? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.