Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 31
][ Bakpokaferðalag er spennandi ferðamáti, bæði innan-lands og utan. Pakka þarf skynsamlega í pokann og ekki má gleyma salernispappír. Sigmundur M. Andrésson hefur starfað sem fararstjóri í mörg ár og ferðast til fjarlægustu heimshorna. Næsta vetur er hann á leið til Víetnam og Kambódíu með hóp frá Úrvali- Útsýn. Sigmundur mun stýra þriggja vikna ferð um Víetnam og Kambódíu. Hann fór í sams konar ferð fyrir fimm árum en hann segir löndin njóta vaxandi vinsælda og eru þau ofarlega á heimslista ferðamanna. Ferðin hefst hinn 6. nóvember og lýkur 29. sama mánaðar. Þátttak- endur munu verða vitni að iðandi borgarlífi, sjá græna hrísgrjóna- akra, frumstæð híbýli, framandi hof, hvítar bað strend ur, óviðjafn- anlega fjallasýn og margt fleira. Ferðin hefst á dagsdvöl í Kúala Lúmpúr í Malasíu. Þar verður farið í borgarskoðun og borðað í sjón- varpsturninum, sem er með hæstu turnum í heimi. „Þaðan förum við til Hanoi, höf- uðborgar Víetnam, sem er að mínu mati einhver áhugaverðasta borg Suðaustur-Asíu. Frakkar byggðu hana upp á sínum tíma með breið- strætum og fallegum húsum. Síðan er eins og tíminn hafi stöðvast þar um miðja öldina sem leið og ekkert gerðist í nærri hálfa öld á meðan ófriður ríkti. Undir lok síðustu aldar tók borgin að lifna aftur við og er nú mjög skemmtileg blanda fortíðar og nútíðar,“ lýsir Sigmund- ur. Í ferðinni verður meðal annars siglt um Halong-flóa milli 3.000 kalksteinseyja. Þar eru risastórir hellar sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Farið er til Hue, fyrrum höfuð- borgar keisaradæmis Víetnams, þar sem meðal annars gefur að líta forboðnu purpuraborgina. Síðan er siglt um óshólma Mekong og þaðan til Phnom Penh, höfuðborgar Kamb- ódíu. Í Kambódíu er meðal annars farið í skoðunarferð um Angkor Wat-hofin í hinni fornu höfuðborg Khmeranna. Að lokum er haldið til Kúala Lúmpúr þar sem ferðinni lýkur. vera@frettabladid.is Fortíð og nútíð mætast Siglt á Hoang Long-ánni. Hoan Kiem-vatnið í Hanoi. Sigmundur M. Andrésson, fararstjóri hjá Úrvali-Útsýn, klappar hér vingjarnlega einu grimmasta dýri jarðar. Hagnýt ráð HANDBÓK FERÐALANGS SUMARIÐ 2008 ER NÝKOMIN ÚT Á RAFRÆNU FORMI. Nú geta lesendur Ferðalangs hlaðið niður nýrri Handbók ferðalangs á raf- rænu formi (pdf-formati). Bókin er alls um þrjátíu síður, sneisafull af hag- nýtum fróðleik og ábendingum varðandi ferðalög erlendis. Meðal efnis eru ábendingar varðandi farangur og pökkun, bílaleigur, gengismál, heilsuna á ferðalagi og fjölmargt fleira. Þar er fólki til dæmis bent á að eyða ekki dýr- mætum tíma í biðröð fyrir utan frægustu staði heims heldur tryggja sér miða á www.skodunarferdir.net áður en ferðin hefst. Slóðin á handbók ferða- langs er http://www.ferdalangur.net/2008/05/n-rafrn-handbk.html - gun BÍLALEIGUBÍLAR SUMARHÚS Í DANMÖRKU Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum Fjölbreyttar upplýsingar á www.fylkir.is LALANDIA - Rødby Lágmarksleiga 2 dagar. LALANDIA - Billund Nýtt frábært orlofshúsahverfi rétt við Legoland. Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. ( Afgr.gjöld á flugvöllum). Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna og minibus 9 manna og rútur með eða án bílstjóra. Jcb 8080. Árgerð 2006. Tímar 810 vst. 3x skófl ur Fast nr. EB-1043 Komatsu PC240LC Árgerð 2004. Tímar 4880 vst. Smurkerfi og dýptarmælir 1x skófl a. Fast nr. EB-0794 New Holland NH85. Traktorsgrafa Árgerð 1996 Langendorf. Gleiðöxla. Árgerð 2000 Astra. Árgerð 2007 VZ 105. Tímar 1143. Km 4410 ZL P99. Tímar 596. Km 4278 Hafðu samband við sölumenn okkar s. 412-3000 Notuð tæki Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.