Fréttablaðið - 03.05.2008, Side 31
][ Bakpokaferðalag er spennandi ferðamáti, bæði innan-lands og utan. Pakka þarf skynsamlega í pokann og ekki má gleyma salernispappír.
Sigmundur M. Andrésson hefur
starfað sem fararstjóri í mörg
ár og ferðast til fjarlægustu
heimshorna. Næsta vetur er
hann á leið til Víetnam og
Kambódíu með hóp frá Úrvali-
Útsýn.
Sigmundur mun stýra þriggja vikna
ferð um Víetnam og Kambódíu.
Hann fór í sams konar ferð fyrir
fimm árum en hann segir löndin
njóta vaxandi vinsælda og eru þau
ofarlega á heimslista ferðamanna.
Ferðin hefst hinn 6. nóvember og
lýkur 29. sama mánaðar. Þátttak-
endur munu verða vitni að iðandi
borgarlífi, sjá græna hrísgrjóna-
akra, frumstæð híbýli, framandi
hof, hvítar bað strend ur, óviðjafn-
anlega fjallasýn og margt fleira.
Ferðin hefst á dagsdvöl í Kúala
Lúmpúr í Malasíu. Þar verður farið
í borgarskoðun og borðað í sjón-
varpsturninum, sem er með hæstu
turnum í heimi.
„Þaðan förum við til Hanoi, höf-
uðborgar Víetnam, sem er að mínu
mati einhver áhugaverðasta borg
Suðaustur-Asíu. Frakkar byggðu
hana upp á sínum tíma með breið-
strætum og fallegum húsum. Síðan
er eins og tíminn hafi stöðvast þar
um miðja öldina sem leið og ekkert
gerðist í nærri hálfa öld á meðan
ófriður ríkti. Undir lok síðustu
aldar tók borgin að lifna aftur við
og er nú mjög skemmtileg blanda
fortíðar og nútíðar,“ lýsir Sigmund-
ur. Í ferðinni verður meðal annars
siglt um Halong-flóa milli 3.000
kalksteinseyja. Þar eru risastórir
hellar sem eru á heimsminjaskrá
UNESCO.
Farið er til Hue, fyrrum höfuð-
borgar keisaradæmis Víetnams,
þar sem meðal annars gefur að líta
forboðnu purpuraborgina. Síðan er
siglt um óshólma Mekong og þaðan
til Phnom Penh, höfuðborgar Kamb-
ódíu.
Í Kambódíu er meðal annars
farið í skoðunarferð um Angkor
Wat-hofin í hinni fornu höfuðborg
Khmeranna. Að lokum er haldið til
Kúala Lúmpúr þar sem ferðinni
lýkur.
vera@frettabladid.is
Fortíð og nútíð mætast
Siglt á Hoang Long-ánni.
Hoan Kiem-vatnið í Hanoi.
Sigmundur M. Andrésson, fararstjóri hjá
Úrvali-Útsýn, klappar hér vingjarnlega
einu grimmasta dýri jarðar.
Hagnýt ráð
HANDBÓK FERÐALANGS SUMARIÐ 2008 ER NÝKOMIN ÚT Á RAFRÆNU FORMI.
Nú geta lesendur Ferðalangs hlaðið niður nýrri Handbók ferðalangs á raf-
rænu formi (pdf-formati). Bókin er alls um þrjátíu síður, sneisafull af hag-
nýtum fróðleik og ábendingum varðandi ferðalög erlendis. Meðal efnis eru
ábendingar varðandi farangur og pökkun, bílaleigur, gengismál, heilsuna á
ferðalagi og fjölmargt fleira. Þar er fólki til dæmis bent á að eyða ekki dýr-
mætum tíma í biðröð fyrir utan frægustu staði heims heldur tryggja sér
miða á www.skodunarferdir.net áður en ferðin hefst. Slóðin á handbók ferða-
langs er http://www.ferdalangur.net/2008/05/n-rafrn-handbk.html - gun
BÍLALEIGUBÍLAR
SUMARHÚS Í DANMÖRKU
Sumarhús
Útvegum sumarhús í
Danmörku af öllum stærðum
Fjölbreyttar upplýsingar á
www.fylkir.is
LALANDIA - Rødby
Lágmarksleiga 2 dagar.
LALANDIA - Billund
Nýtt frábært orlofshúsahverfi
rétt við Legoland.
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku.
Innifalið í verði;
ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
( Afgr.gjöld á flugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7
manna og minibus 9 manna og
rútur með eða án bílstjóra.
Jcb 8080. Árgerð 2006.
Tímar 810 vst.
3x skófl ur Fast nr. EB-1043
Komatsu PC240LC Árgerð 2004.
Tímar 4880 vst. Smurkerfi og dýptarmælir
1x skófl a. Fast nr. EB-0794
New Holland NH85.
Traktorsgrafa
Árgerð 1996
Langendorf. Gleiðöxla.
Árgerð 2000
Astra. Árgerð 2007
VZ 105. Tímar 1143. Km 4410
ZL P99. Tímar 596. Km 4278
Hafðu samband við
sölumenn okkar s. 412-3000
Notuð tæki
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...