Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 66
42 3. maí 2008 LAUGARDAGUR Sýning á myndskreytingum eftir Jón Bald- ur Hlíðberg opnar í menningarmiðstöðinni Gerðubergi í dag. Viðfangsefni myndanna eru íslenskar kynjaskepnur úr þjóðsögum, en með sumrinu koma myndskreytingar Jóns út á bók á vegum Forlagsins ásamt texta eftir Sigurð Ægisson, þjóðfræðing og sóknarprest á Siglufirði. Bókin ber sama titil og sýningin, Kynjaskepnur, en í henni er fjallað um náttúrufræði íslenskra þjóð- sagnadýra. Jón hefur talsvert unnið myndskreyt- ingar fyrir náttúrufræðibækur á borð við Íslenska fugla og Íslensk spendýr og því kom víðtæk þekk- ing hans á dýrafræði að góðum notum við myndlýs- ingu þessara dularfullu dýra sem enginn hefur séð í raun og veru. „Ég kaus að nálgast þessi dýr eins og raunverulegar skepnur. Ég hafði fram að þessu unnið flestar dýramyndskreytingar mínar eftir raunverulegum fyrirmyndum, en það var nátt- úrulega ekki hægt í þessu tilfelli. Ég kynnti mér því afar vel allar lýsingar á tilteknum kynjaskepnum og þó að þeim bæri ekki allt- af saman reyndi ég að finna rauða þráðinn í þeim og ímynda mér dýrið út frá því. Aftur á móti forðaðist ég sem heitan eldinn að gera einhver ógurleg skrímsli úr þessum skepnum, enda gáfu sögurnar ekki oft tilefni til þess,“ segir Jón. Á sýningunni má sjá myndir af framandi skepnum á borð við skoffín, urðarkött, hrosshval, loð- silung og öfugugga. En hvernig í ósköpunum kviknaði sú hugmynd að gefa út náttúrufræðibók um þessi goðsagnakenndu dýr? „Ég hef töluvert unnið sem leiðsögumaður og hef í því starfi reynt að miðla til fólks sögunum af þessum dýrum. Margt fólk kannast ekkert við þessi dýr, enda þykja sumum þjóðsögurnar þar sem þau koma fyrir óaðgengileg- ar og erfiðar. Mig langaði til að vekja þessar skepn- ur aftur til lífsins í meðvitund þjóðarinnar og fékk því hugmyndina að bókinni. Myndskreytingar mínar sækja í náttúrufræði, en textinn hans Sigurð- ar stendur föstum fótum í þjóðfræði. Þannig reyn- um við að færa þessar gömlu sögur inn í nútímann og koma þeim aftur á dagskrá.“ Sögur af kynjadýrum vekja alltaf nokkurn áhuga almennings, enda framandi og spennandi. Jón telur að slíkar frásagnir eigi sér þó rökréttar útskýring- ar. „Það koma reglulega ýmis flækingsdýr hingað til lands; síðast í fyrra sást til leðurskjaldböku í sjónum skammt frá landi. Það má því leiða líkur að því að fólk hafi fyrr á öldum rekist á ýmis dýr sem það kannaðist ekki við og búið til sögur um þau. Það er ekki þar með sagt að fólk hafi trúað hverju sem er þá, frekar en í dag, en þessar sögur höfðu ótví- rætt skemmtanagildi á tíma þegar ekki var mikið um afþreyingarefni.“ Sýningin Kynjaskepnur stendur til 7. september og vert er að geta þess að þeir Jón og Sigurður, höfundar fyrrnefndrar bókar, verða með leiðsögn um sýn- inguna kl. 15.30 í dag. vigdis@frettabladid.is Kynjaskepnur vaktar til lífsins Danski trompetleikarinn Per Nielsen heldur tónleika í Langholtskirkju í dag kl. 15 ásamt píanóleikaranum Carl Ulrik Munk-Andersen. Nielsen er einn virtasti tónlistarmaður Dana og nýtur tón- list hans að auki nokkurra vinsælda þar í landi. Hann útskrifaðist árið 1973 frá Konunglega tónlistarháskólan- um í Kaupmannahöfn og starfar sem sólotrompet- leikari við Suður-jósku sinfóníuhljómsveitina. Hann hefur gefið út 14 geislaplötur með trompetleik sínum sem selst hafa í yfir 350.000 eintökum. Á tónleikunum í dag fær Nielsen til liðs við sig Kammerkór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stef- ánssonar, en með honum syngur kórinn meðal annars Laudate Dominum eftir Mozart og Slá þú hjartans hörpustrengi eftir J. S. Bach. - vþ Trompettónar óma SELAMÓÐIR Ein af myndskreytingum Jóns Baldurs Hlíðbergs á sýningunni Kynjaskepnur. NÝ OG FÁRÁNLEGA SKEMMTILEG SÝNING UM FJÁRMÁL ÍSLENDINGA! D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Sýnt í Salnum Kópavogi Miðasala hjá Salnum í síma 5700 400, á salurinn.is og midi.is. Miðaverð 2000 kr. 50% afsláttur er fyrir viðskiptavini Byrs (allt að 5 miðar) ef keypt er í miða- sölunni í Salnum. ATH! Takmarkaður sýningafjöldi. Fyrst var það Hellisbúinn, síðan Pabbinn og nú er það HVERS VIRÐI ER ÉG? Óborganlega fyndin sýning Bjarna Hauks Þórssonar um fjármál Íslendinga. Frábær sýning í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Fös 2 /5 kl. 19 Fös 2/5 kl. 21 Lau 3/5 kl. 20 Lau 3/5 kl. 22 Fös 16/5 kl. 19 Fös 16/5 kl. 21 Lau 17/5 kl. 19 Lau 17/5 kl. 21 Örfá sæti laus Örfá sæti laus Örfá sæti laus Örfá sæti laus Uppselt S Ý N I N G A R „HEILMIKIÐ FYRIR PENINGINN“– M.K. MBL „Fyndinn ma ður um fjár mál“ – P.B.B . Frétta blaðið DAGUR HARMONIKUNNAR Tónleikar Harmonikufélags Reykjavíkur verða haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, laugardag, kl. 14:00. Flytjendur eru: Harmonikusnillingurinn Vadim Fjodrov, nemendur Vadims og hljómsveitir Félags harmoniku- unnenda á Suðurnesjum, Harmonikufélags Selfoss og Harmonikufélags Reykjavíkur. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. HARMONIKUBALL í kvöld kl. 22:00 í Húnabúð, Skeifunni 11 Reykjavík. Allir velkomnir. Aðgangseyrir: kr. 1.500. Harmonikufélag Reykjavíkur LAUG. 2. OG SUNN. 3. MAÍ HVERS VIRÐI ER ÉG? GAMANLEIKUR ÚR SMIÐJU BJARNA HAUKS ÞÓRSSONAR LAUGARDAGUR 3. MAÍ KL. 14 SELLÓTÓNLEIKAR TR ÁSTA MARÍA KJARTANSDÓTTIR LAUGARDAGUR 3. MAÍ KL. 17 FIÐLUTÓNLEIKAR LHÍ JOAQUIN PALL PALOMARES SUNNUDAGUR 4. MAÍ KL. 13 LÚÐRAHLJÓMUR SKÓLAHLJÓMSVEIT KÓP. OG BLÁSARASVEIT ÁRNESS. SUNNUDAGUR 4. MAÍ KL. 16 PÍANÓTÓNLEIKAR LHÍ HELENE INGA STANKIEWICZ SUNNUDAGUR 4. MAÍ KL. 20 TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR HRAFNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR OG MARTYN PARKES MÁNUDAGUR 5. MAÍ KL. 18 VORTÓNLEIKAR FJÖLMENNTAR ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ KL. 20 FIÐLUTÓNLEIKAR GEIRÞRÚÐUR ÁSA GUÐJÓNSDÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ KL. 20 TÍBRÁ: TRÍÓ ROMANCE VORSTEMNING OG GLEÐI Í tilefni tónleikanna verða diskar Hjaltalín og Önnu á sérstöku tilboðsverði í búðinni. 15:00 Anna Jónsdóttir sópran flytur lög af nýrri plötu sinni Móðurást við undirleik Sigríðar Freyju Ingimarsdóttir píanóleikara. 15:30 Dansdúettinn Fiskur og Björn flytja nýtt dansverk sitt „Bækur og Blóð“; átakamikið verk um lestur, hatur og bækur. 16:00 Hljómsveitin Hjaltalín flytur nokkur lög af plötu sinni Sleepdrunk Season. í Máli og menningu í dag LANGUR LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.