Fréttablaðið - 03.05.2008, Side 73

Fréttablaðið - 03.05.2008, Side 73
LAUGARDAGUR 3. maí 2008 49 Lagið I Know You Sleep af væntanlegri plötu hljómsveitar- innar Bang Gang er komið í spilun á flestum útvarpsstöðvum landsins. Einnig er hægt að heyra lagið á myspace-síðu sveitarinnar, Myspace.com/banggangband. Fimm ár eru liðin síðan önnur plata Bang Gang, Something Wrong, kom út við góðar undir- tektir. Auk nýju plötunnar er fleira framundan hjá Bang Gang því sveitin, ásamt frönsku söngkonunni Keren Ann, hefur verið valin til að spila á lokatón- leikum Listahátíðar í Reykjavík með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Spila þau lög frá ferli beggja í útsetningum Þorvaldar Bjarna. Nýtt lag frá Bang Gang BARÐI OG KEREN Barði Jóhannsson, for- sprakki Bang Gang, og söngkonan Keren Ann spila á Listahátíð í Reykjavík. Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, hefur viðurkennt að vera ekki mikill aðdáandi Davids Bowie. Í viðtali við tímaritið Uncut sagði hann að Changes af plötunni Hunky Dory væri eina Bowie-lagið sem hann myndi eftir. „Þetta snýst allt um að stilla sér upp fyrir myndavélarnar hjá honum. Þetta hefur ekkert með tónlist að gera og hann veit það sjálfur,“ sagði Richards. „Ég man ekki eftir neinu öðru lagi sem hefur fengið hárin á mér til að rísa.“ Richards er um þessar mundir að kynna Rolling Stones-myndina Shine a Light, sem er sýnd í kvikmyndahúsum víða um heim. Ekki hrifinn af Bowie KEITH RICHARDS Gítarleikari Rolling Stones er ekki aðdáandi Davids Bowie. Þriðja sólóplata rapparans Sesars A, Of gott, kemur út 20. maí. Platan átti upphaflega að koma út snemma í desember í fyrra en vegna ófyrirséðra atburða kom hún út í lok desember og því var útgáfunni frestað. Sesar A vann plötuna með hléum samhliða því sem hann nam kvikmyndaleikstjórn og matreiðslu þegar hann bjó á Spáni. Lagið Hosur grænar er væntanlegt í spilun á næstunni auk þess sem myndband við lagið er á leiðinni. DVD-mynddiskur með heimildarmyndum og myndböndum er síðan væntanleg- ur með plötunni Of gott í viðhafn- arútgáfu sem fer í dreifingu í sumar. Of gott frá Sesari í maí SESAR A Rapparinn Sesar A gefur út plötu sína Of gott hinn 20. maí næst- komandi. Tónlistarmaðurinn will.i.am. úr hljómsveitinni Black Eyed Peas segir að sveitin ætli að spila í Kína í júní þrátt fyrir að listamenn hafi verið hvattir til að sniðganga landið vegna mannréttindabrota stjórn- valda. will.i.am. segir að framkoma Kínverja gagnvart Tíbetbúum hafi verið slæm en finnst ekki rétt að refsa heilli þjóð fyrir hegðun ráðamanna. „Ef Bandaríkjamenn vilja virkilega láta sig málið varða eiga þeir að hætta að flytja inn kínverskar vörur og hætta að borga til baka skuldir sínar,“ sagði hann. „Menn vilja sniðganga Ólympíuleikana. En er rétt að refsa almenningi þegar hann hefur ekkert um það að segja hvernig málum er háttað?“ Refsar ekki Kínverjum BLACK EYED PEAS Tónlistarmaðurinn will i.am. vill ekki refsa kínverskum almenningi. Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 - Bæjarlind 12 - S: 544 4420 - www.egodekor.is Madrid leðurtungusófi – EINGÖNGU Í BRÚNU LEÐRI Stærð: 305cmX220cm Verð áður: 258.000,- -30% Verð nú: 180.600,- Grando 4 sæta sófi og skemill Stærð: 290cmX93cm - Skemill: 87cmX70cm Verð áður: 164.000,- -25% Verð nú: 123.000,- VORT I LBOÐ Á SÓFUM 20-30% AFSLÁTTUR Austria tungusófi Stærð: 333cmX200cm Verð áður: 188.000,- -20% Verð nú: 150.400,- Appolo hornsófi og skemill Stærð: 280cmX220cm - Skemill: 100cmX75cm Verð áður: 218.000,- -20% Verð nú: 174.400,- Svefnsófi Stærð: 280cmX185cm Fáanlegur í dökkbrúnu og ljósbrúnu tweed áklæði Verð áður: 187.000,- -20% Verð nú: 149.600,- 4 sæta sófi og skemill Stærð: 270cmX100cm - Skemill: 100cmX100cm Fáanlegur í ljósbrúnu og rauðu tweed áklæði Verð áður: 158.000,- -20% Verð nú: 126.400,-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.