Fréttablaðið - 03.05.2008, Side 36
● Forsíðumynd: Arnþór Birkisson tók þessa mynd á heimili
Svanhvítar Valgeirsdóttur Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald
Eyvindsson roald@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir
emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Ámundi Ámundason
s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
HEIMILISHALD
JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR
Ég heyrði andköf
innan úr eldhúsi
þar sem verið var
að raða í kassa og
nokkrum mínútum
síðar mætti mér
svarthærð og
skeggjuð vera
böðuð ljósi með
opna bók og fannst
mér sem að úr
bókinni flæddi birta
yfir andlit hans.
● heimili&hönnun
Þráðlaus þægindi frá Danfoss
Gólfhiti - einfaldari en nokkru sinni fyrr
Þráðlausar gólfhitastýringar
Háþróaðar en einfaldar
Við erum leiðandi í hönnun og
framleiðslu gólfhitastýringa
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Nýr frelsari
Fjóla María Ágústsdóttir vinnur krefjandi starf hjá
Capacent en þar er hún ráðgjafi í stefnumótun, ár-
angurs- og mannauðsstjórnun. Auk þess rekur hún
fyrirtæki og hannar tölvutöskur úr íslensku roði. Frí-
tímann notar hún til að hlaða batteríin og líður henni
sérstaklega vel í stofunni.
„Ég hef valið mér mjög ljós húsgögn en mér finnst
þau róandi. Með þeim hef ég persónulega, fallega og
litríka muni sem gleðja mig. Ég vel yfirleitt látlaus
húsgögn en held í smá rómantík,“ segir Fjóla. Flest-
ir hlutir á heimili hennar eiga sér einhverja sögu og
þykir henni sérstaklega vænt um þá sem hún hefur
fengið að gjöf frá vinum og vandamönnum.
Fjóla segist hafa mjög gaman af því að bjóða gest-
um í heimsókn en stofan hennar er laus við sjónvarp,
sem hún segir mikinn kost. „Ég er með sérstakt sjón-
varpsherbergi og get því átt betri stofu sem er lítið
notuð, eins og fínar húsmæður áttu í gamla daga,“
segir Fjóla og brosir út í annað.
Úr einu horni stofunnar getur hún fylgst með sól-
inni setjast. Þar er hún með hvítan sófa sem hún segir
sérlega mjúkan og kósí. „Mér finnst gott að sitja
og lesa góðar bækur, blöðin eða bara hugsa,“ segir
Fjóla. Hún segist gjarnan kveikja á kertum og þykir
vænt um kertastjaka sem bróðir hennar og mágkona
keyptu í Barcelona. „Þeir eru litríkir og hafa verið á
sófaborðinu mínu í mörg ár.“
Í glugganum fyrir ofan sófann er falleg orkídea
sem Fjóla fékk í innflutningsgjöf frá vinkonum
sínum þegar hún keypti fyrstu íbúðina sína fyrir
þremur árum. „Hún er alveg yndisleg og hefur að-
eins einu sinni fellt blöðin. Það var þegar ég flutti
með hana í þessa íbúð. Hún var líklega bara að mót-
mæla umskiptunum en tók íbúðina fljótlega í sátt og
hefur blómstrað síðan,“ segir hún glöð í bragði. - ve
Líður best í ljósu umhverfi
● Fjóla María Ágústsdóttir nýtur sín best í sparistofunni sem er björt og falleg.
Fjóla lætur fara vel um sig í betri stofunni. Þar hvílir hún lúin bein, horfir á kvöldsólina, les eða lætur hugann reika.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fjóla hefur átt sömu orkídeuna í þrjú ár og hefur hún aðeins
einu sinni fellt blöðin.
É
g hafði næstum gleymt fyrirbærinu brauðtertu. Í mínum huga
tilheyrðu þær fermingarveislum 9. áratugarins – majónes,
skinkutæjur á milli og ananas og kirsuber á topp. Allt þar til að
ég kynntist sambýlismanni mínum. Í hans huga voru rækjukok-
teilar og heitir saumaklúbbsréttir í alvörunni eitthvað sem hann útbjó
sér þegar hann vildi gera sér glaðan dag. Aleinn, heima hjá sér, opnaði
hann Ora-aspasdós og smurði majónesi ofan á fransktbrauð. Og bauð
upp á í kvöldmat, eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Síðustu árin hafa verið hanukkah matar-upp-
ans og því hef ég alltaf haft ótrúlega gaman að
stælalausum og heiðarlegum matarsmekk sam-
býlismannsins. Og fundist það eitthvað sérstak-
lega karlmennskulegt að horfa á hann taka stóra
bita af hangikjötssamlokum í stað þess að hann
narti í mangósneiðar-kjúklingsspjóts-sætra kart-
aflna-metrórétti. (Og hér koma auðvitað mínir
fordómar í ljós: karlmaður sem á djúsvél er ekki
karlmaður).
Mín rómantíska sýn á karlmann heimilis-
ins með majónesdolluna sína er hins vegar eitt-
hvað að kárna. Ástandið ætlar þessa dagana um
þverbak að keyra og hófst það allt þegar við
fluttum okkur í nýtt húsnæði á dögunum. Þegar
farið var að pakka dótinu niður kom nefnilega í
ljós að í einum skápnum leyndist fjársjóður. Ég
heyrði andköf innan úr eldhúsi þar sem verið var
að raða í kassa og nokkrum mínútum síðar mætti mér svarthærð og
skeggjuð vera böðuð ljósi með opna bók og fannst mér sem að úr bók-
inni flæddi birta yfir andlit hans.
Brauðréttir Hagkaupa heitir bókin. Gefin út fyrir nokkrum árum,
Jói Fel tók saman. Síðan þá hefur Biblíunni á náttborðinu verið skipt
út fyrir Brauðréttabókina og á hverju kvöldi fyrir svefninn spáir hann
og spekúlerar hvaða brauðrétt hann ætli að gera næst, les og lætur sig
dreyma. Brauðréttir á stangli hér og þar, á nokkurra mánaða fresti,
voru ágætir en nú er nýtt formbrauð keypt einu sinni í viku og trúar-
brögðin boðuð daglega með Gunnars-majónes í broddi fylkingar. Það
sem var bara nokkuð skemmtilegt og
fyndið fyrir einhverjum mánuðum
er nú orðið grátt gaman. Sér í lagi
þegar restin af fjölskyldu og vinum
er farin að gleypa hið nýja guðsorð og
það stefnir allt í eilífðar brauðtertu-
þema í sumar.
3. MAÍ 2008 LAUGARDAGUR2