Fréttablaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 49
MIÐVIKUDAGUR 14. maí 2008 29
Bítlarnir fullunnu allar sínar plöt-
ur á sjö ára tímabili. Það tók þau
Geoff Barrow, Adrian Utley og
Beth Gibbons sem skipa Bristol-
sveitina Portishead hins vegar ell-
efu ár að gera Third... Portishead
sló í gegn með plötunni Dummy
árið 1994 og fylgdi henni eftir með
plötunni Portishead þremur árum
síðar.
Nú er þriðja platan loksins
komin. Yfirleitt veit það ekkert
sérstaklega á gott að sveitir séu
svona lengi að koma frá sér plötu,
virðist það oft vera ávísun á and-
leysi og vandræðagang. Það er
þess vegna sérstaklega ánægjulegt
að komast að því að Third er mjög
vel heppnuð, eiginlega alveg frá-
bær. Sveitinni hefur tekist að gera
plötu sem er mjög ólík fyrri plöt-
unum, en samt er Portishead-
stemningin þarna ennþá. Söngur
og textar Beth Gibbons setja sterk-
an svip á útkomuna eins og áður, en
tónlistin er harðari og hrárri, og
líka fjölbreyttari. Eins og á fyrri
plötunum er gríðarlega mikil
áhersla lögð á að ná réttu stemn-
ingunni. Hljómurinn og útsetning-
arnar, sem eru þaulúthugsaðar
niður í minnstu smáatriði, búa til
galdurinn.
Third er sérstaklega heilsteypt
verk. Svínvirkar frá upphafi til
enda. Trausti Júlíusson
Galdurinn enn til
staðar eftir 11 ára bið
TÓNLIST
Third
Portishead
★★★★
Third var ellefu ár í smíðum, en hún
er biðarinnar virði. Harðari og hrárri
Portishead, en Portishead-galdurinn
er enn til staðar.
Hljómsveitin Infernó 5 heldur
útgáfutónleika á Barnum á
fimmtudag til að fagna sinni fyrstu
plötu í rúman áratug, Fávitaein-
veldi. Aðrir sem koma fram verða
Gjöll, Product 8, Digital Madness
og Klive, sem mun kynna efni af
sinni fyrstu sólóplötu, Sweaty
Psalm. Sérstakur gestur verður
Kokkur Kirkjan Kvæsir sem mun
kynna plötusafnið sitt fyrir gestum
kvöldsins. Tónleikarnir verða
haldnir á öllum hæðum Barsins
með aðstoð nútíma margmiðlunar-
tækni. Viðburðurinn er samstarfs-
verkefni Nýju samvinnuhreyfing-
arinnar og Triangle Productions.
Nánari upplýsingar um viðburðinn
má sjá á síðunni myspace.com/
electronicethics.
Fyrsta platan
í áratug
DIGITAL MADNESS Hljómsveitin Digital
Madness kemur fram á tónleikunum í
kvöld.
Kjötborg, heimildarmynd
um bræðurna Gunnar og
Kristján sem reka kjör-
búðina á Ásvallagötu, fékk
áhorfendaverðlaun heim-
ildarmyndahátíðarinnar
Skjaldborg. 35 íslenskar
heimildarmyndir voru
frumsýndar um helgina
fyrir vestan.
Þetta er í annað sinn sem Skjald-
borg er haldin, en heiðursgestur
hátíðarinnar var hinn 82 ára
gamli Albert Maysles, guðfaðir
heimildarmynda.
Aðstandendur myndanna
mættu velflestir á hátíðina, báru
saman bækur sínar og skemmtu
sér konunglega. Einnig voru sýnd
verk í vinnslu og Ásgrímur Sverr-
isson, ritstjóri vefsíðunnar logs.
is, ræddi við leikstjóra þeirra
verka.
Patreksfirðingar tóku vel í
þessa innrás kvikmyndagerða-
fólks og opnuðu hús sín fyrir gest-
unum. Kvenfélagið eldaði plokk-
fisk í félagsheimilinu og í nýja
sjóræningjasafninu var haldin
grillveisla. Hátíðin endaði á
sveitaballi og limbókeppni, DJ
Platurn frá Oakland í Kaliforníu
þeytti skífur en systir hans Ragn-
hildur Magnúsdóttir frumsýndi
mynd um bróður sinn á hátíðinni.
Kjötborg best á Skjaldborg
STÓRLEIKARI Á VESTFJÖRÐUM Brian Cox, sem leikur eitt aðalhlutverkanna í kvik-
myndinni The Good Heart eftir Dag Kára, mætti á hátíðina og leist vel á þá grósku
sem er í íslenskri heimildarmyndagerð. Hér er hann ásamt ferðamálafulltrúanum
Soffíu Gústafsdóttur.
STUTT BROT Friðrik Þór Friðriksson
sýndi stutt brot úr heimildarmynd sinni,
Sólskinsdrengur, á heimildarmynda-
hátíðinni. Hér er hann ásamt Hafsteini
Gunnari Sigurðssyni, einum af skipu-
leggjendum hátíðarinnar.