Fréttablaðið - 14.05.2008, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 14.05.2008, Qupperneq 50
Það er óhætt að segja að leikmenn í Lands- bankadeild karla hafi farið vel af stað í fyrstu umferð tólf liða efstu deildar sem fór fram um síðustu helgi. Öflugur sóknarleikur var þá í fyrirrúmi hafður og alls voru skoruð 24 mörk í leikjunum sex, eða 4 mörk að meðaltali í leik. Íslandsmeistarar Vals fengu heldur óvæntan skell gegn Keflavík í fyrstu umferðinni og töpuðu 5-3 í fjörugum leik í Keflavík en þetta var versta byrjun Íslandsmeistara í 39 ár. Jafntefliskóngar Breiðabliks, sem gerðu níu jafntefli á síðustu leiktíð, urðu að sætta sig við enn eitt jafnteflið þegar þeir mættu ÍA. KR-ingar stóðust pressuna með 3-1 sigri gegn Grindavík, þar sem tvö mörk þeirra- komu á lokakafla leiksins. Fjölnir stimplaði sig hressilega inn í fyrsta leik í sögu félagsins í efstu deild þegar Grafarvogsliðið sigraði Þrótt örugglega 0-3 í nýliðaslag. Nýju þjálfararnir, Þorvaldur Örlygsson hjá Fram og Heimir Guðjónsson hjá FH stýrðu liðum sínum til sigurs. 30 14. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is > Atvik umferðarinnar Glæsimark Scotts McKenna Ramsay hjá Grindavík í leik gegn KR á KR-vellinum. Bæði markið sjálft og spilamennskan í aðdraganda þess var fyrsta flokks. > Bestu ummælin Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, sá fulla ástæðu til bjartsýni eftir 5-3 skell gegn Keflavík. „Ég er virkilega stoltur af mínu liði. Við börðumst allar níutíu mínúturnar, alveg sama hvað á dundi, og það var nú nóg af því,“ sagði Willum Þór í viðtali við Fréttablaðið í leiks- lok í Keflavík. TÖLURNAR TALA Flest skot: 22, Fjölnir Flest skot á mark: 13, Fjölnir Fæst skot: 3, HK Hæsta meðaleink.: 7,5, FH Lægsta meðaleink.: 3,9, HK Grófasta liðið: 25 brot, ÍA Prúðasta liðið: 8 brot, Grindavík Flestir áhorf.: KR-völlur, 2089 Fæstir áhorf.: Valbjarnarv., 769 Áhorfendur alls: 8730 > Besti dómarinn: Einar Örn Dan- íelsson fékk hæstu einkunn dómara í einkunnargjöf Fréttablaðsins eða 8 fyrir fyrstu umferð Landsbankadeild- arinnar en hann dæmdi leik KR og Grindavíkur á KR-vellinum. Bjarki Freyr Guðmundsson Sam Tillen Tommy Nielsen Kristján Hauksson Arnar Grétarsson Scott Ramsay Tryggvi Guðmundsson Paul McShane Gunnar Már Guðmundsson Guðmundur Steinarsson Guðjón Baldvinsson 1. UMFERÐ LANDSBANKADEILDAR KARLA: VERSTA BYRJUN MEISTARA Í 39 ÁR Aldrei fleiri mörk í fyrstu umferð FÓTBOLTI Það kemur eflaust fáum á óvart að Tryggvi Guðmundsson hljóti nafnbótina leikmaður 1. umferðarinnar hjá Fréttablaðinu. Tryggvi átti stjörnuleik á Kópa- vogsvelli gegn þar sem hann lék HK-vörnina grátt. Þrjár stoðsend- ingar og eitt mark var uppskeran. Tryggvi spilaði sitt fyrsta heila tímabil í efstu deild árið 1993 en hafði fengið smjörþefinn sumarið áður. Hann skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í fyrstu umferð- inni 1993 í 2-1 tapi gegn Fram með ÍBV. „Ég man vel eftir þessum leik,“ sagði Tryggvi en áður hafði hann spurt hvort það væri virki- lega svona langt síðan. En hverju sætir árangur hans í fyrstu umferðinni? „Ég er greini- lega klár þegar flautan gellur,“ sagði Tryggvi léttur. „Ég veit ekki hvað þetta er. Ég tala reyndar oft um að þetta felist í leikgleðinni, mér finnst þetta svo gaman,“ sagði hinn síungi Tryggvi sem er 33 ára. Tryggvi lék lengi sem atvinnu- maður erlendis og atvinnumennsk- an er í fyrirrúmi heima á Íslandi líka. „Ég æfi vel. Þó að ég sé kom- inn á þennan aldur vil ég ekki missa af æfingu. Ég bið líka sér- staklega um að spila alla æfinga- leiki, annað en kannski margir leikmenn. Hungrið og leikgleðin heldur mér ungum,“ segir hann og bætir við að hann hugsi vel um líkamann. Tryggvi er, eins og allt FH-liðið, greinilega tilbúinn fyrir átökin í sumar. „Við erum með lengsta undirbúningstímabil í heimi og eftir átta mánuði af leiðindum þá er upphafsflautan eitthvað sem maður hefur beðið lengi eftir. Við höfum æft vel í vetur og komum tilbúnir til leiks.“ Reynslubanki Tryggva er greini- lega drjúgur og hann virðist ekk- ert vera að fyllast. Hann bendir á að hækkandi aldri fylgi líka kostir, ekki bara gallar. „Það er oft talað um að menn séu að verða of gaml- ir en eitt af því jákvæða við að eld- ast er að maður verður reyndari og klókari um leið. Hæfileikarnir hverfa ekkert með aldrinum þrátt fyrir að hraðinn detti kannski niður,“ sagði Tryggvi sem hefur enga tölu á því hversu mörg mörk hann hefur lagt upp. „Ég hef ekki hugmynd um hvað ég hef lagt upp mörg mörk, það er ómögulegt að vita. Þótt ég hafi mikið álit á sjálfum mér þá hef ég ekki haldið þessum tölum til haga,“ sagði Tryggvi. hjalti@frettabladid.is Hungrið og leikgleðin halda mér ungum Tryggvi Guðmundsson bar af í fyrstu umferð Landsbankadeildar karla. Hann skoraði mark og lagði upp þrjú gegn HK í 4-0 sigri FH en í átta leikjum hans í 1. umferð Íslandsmóts hefur hann skorað alls tólf mörk. YFIRBURÐIR Tryggvi Guðmundsson var besti maður 1. umferðar Landsbankadeildar- innar. Hann sýndi frábæra takta og var HK-ingum illviðráðanlegur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM TRYGGVI Í 1. UMFERÐINNI: Með ÍBV: 1993: 1-2 tap fyrir Fram – 1 mark 1994: Í leikbanni í 1. umferð 1995: 8-1 sigur á Val – 4 mörk 1996: 1-3 tap fyrir Leiftri – Ekkert mark 1997: 3-1 sigur á ÍA – 2 mörk Með FH: 2005: 3-0 sigur á Keflavík – 1 mark 2006: 3-0 sigur á KR – 2 mörk 2007: 3-2 sigur á ÍA – 1 mark 2008: 4-0 sigur á HK – 1 mark Samtals: Átta leikir og tólf mörk. Landsbankadeild kvenna Keflavík-KR 1-2 1-0 Vesna Smiljkovic (40.), 1-1 Hrefna Huld Jóhannesdóttir (41.), 1-2 Katrín Ómarsdóttir (85.). Fjölnir-Fylkir 0-2 0-1 Thelma Gylfad. (4.), 0-2 Lára Gunnarsd. (5.). Afturelding-Breiðablik 1-3 0-1 Harpa Þorsteinsdóttir (19.), 1-1 Sigríður Þóra Birgisdóttir (26.), 1-2 Greta Mjöll Samúelsdóttir (59.), 1-3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (80.). HK/Víkingur-Stjarnan 1-1 0-1 Björk Gunnarsdóttir, 1-1 Karel Sturludóttir (58). 1. deild karla Þór-KS/Leiftur 3-2 1-0 Ármann Ævarsson (19.), 2-0 Ibra Jagne (26.), 2-1 Gabríel Reynisson (62.) 2-2 Gabríel Reynisson (76.), 3-2 Alexander Linta (88.). ÚRSLIT Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . Frumsýnd 7. maí Sendu SMS JA PNV á númerið 1900 Þú gætir unnið bíómiða! Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, DVD myndir, varningur tengdur myndinni og margt fleira! Frumsýnd 14. maí FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM 3-4-3 FÓTBOLTI Þrátt fyrir að rekstur knattspyrnudeildar Fylkis hafi gengið erfiðlega mun það ekki bitna á leikmönnum liðsins. Þetta sagði Örn Hafsteinsson fram- kvæmdastjóri félagsins við Fréttablaðið og neitaði því um leið að leikmenn hafi verið beðnir um að taka á sig tímabundna launa- lækkun til að sporna við fjárhags- vandanum eins og Stöð 2 greindi frá í gær. Bæði Kristján Valdimarsson og Ian Jeffs, leikmenn Fylkis, staðfestu að þeir hefðu fengið greidd laun og að þeir hafi ekki verið beðnir um að taka á sig launalækkun. „Það er ekki búið að lækka launin hjá einum né neinum en ef það kæmi upp verður það bara rætt,“ sagði Kristján og bætti við að hann væri tilbúinn að hjálpa uppeldisfélaginu sínu með því að taka á sig tímabundna launalækk- un ef uppeldisfélag sitt væri í vanda. - hþh Erfið fjárhagsstaða Fylkis: Vandinn bitnar ekki á liðinu KRISTJÁN Er tilbúinn að taka á sig launa- lækkun tímabundið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson skoraði þrjú stig á þeim sautján mínútum sem hann spilaði í 75- 73 tapi Lottomati- ca Roma gegn Tisettanta Cantú í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni ítölsku úrvals- deildarinnar. Roma vann fyrsta leikinn í einvíginu örugglega. - óþ Ítalski körfuboltinn: Tap hjá RomaFÓTBOLTI KR sigraði Keflavík 1-2 og Breiðablik bar sigurorð af Aftureldingu 1-3 þegar síðustu leikirnir í 1. umferð Landsbanka- deildar kvenna fóru fram í gær. Vesna Smiljkovic kom Kefla- víkurstúlkum yfir í lok fyrri hálfleiks en Hrefna Huld Jóhann- esdóttir jafnaði leikinn stuttu síðar. Staðan var 1-1 alveg þang- að til á 85. mínútu þegar Katrín Ómarsdóttir skoraði og sá til þess að öll stigin þrjú færu í Vesturbæinn. Helena Ólafsdótt- ir, þjálfari KR, var virkilega sátt með sigurinn og hrósaði baráttu- glöðu Keflavíkurliði. „Þetta var baráttusigur hjá okkur. Keflavíkurstúlkur mættu gríðarlega grimmar til leiks en sem betur fer náðum við að klára dæmið. Ég er í raun mjög sátt með sigurinn og sátt við að vera búin að fara til Keflavíkur vegna þess að ég er viss um að mörg lið eiga eftir að lenda í erfiðleikum þar,“ sagði Helena sem kvað deildina virka jafnari í sumar. „Þetta virðist vera jafnari deild í sumar og það er það sem allir vilja en ég hefði nú alveg þegið að geta verið rólegri á hlið- arlínunni í þessum leik,“ sagði Helena á léttum nótum. - óþ 1. umferð Landsbankadeildar kvenna lauk í gær: KR lenti í kröppum dansi í Keflavík BARÁTTA Keflavík veitti KR harða mótspyrnu á Sparisjóðsvellinum í Keflavík í gær. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.