Fréttablaðið - 14.05.2008, Page 54

Fréttablaðið - 14.05.2008, Page 54
34 14. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 GAMLA MYNDIN LÁRÉTT 2. barnahjal 6. kusk 8. hamfletta 9. tilvera 11. samanburðart. 12. frækorns 14. dans 16. tveir eins 17. nálægt 18. drulla 20. horfði 21. könnun. LÓÐRÉTT 1. ekki læs 3. frá 4. fugl 5. hamingja 7. ófreskja 10. röst 13. utan 15. rænu- leysi 16. skaði 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. babl, 6. ló, 8. flá, 9. ævi, 11. en, 12. sæðis, 14. tangó, 16. tt, 17. nær, 18. aur, 20. sá, 21. próf. LÓÐRÉTT: 1. ólæs, 3. af, 4. blesgæs, 5. lán, 7. óvættur, 10. iða, 13. inn, 15. óráð, 16. tap, 19. ró. „Ég hafði alltaf mjög gaman af fötum og uppáhaldslitirnir voru rauður og kóngablár. Ég var ófeimin við undarlegar blöndur í fatavali og var eflaust eins og jólatré á köflum. Það hefur aðeins dempast með árunum en uppáhaldslitirnir eru þeir sömu.“ Katrín Jakobsdóttir alþingismaður. Myndin var tekin í maí 1996 þegar Katrín varð dúx í MS. Bubbi Morthens flutti ásamt fjöl- skyldu sinni í nýja húsið við Með- alfellsvatn á föstudaginn. „Það er óhætt að segja að Kjósin sé magnaður staður,“ segir Bubbi, „og það er ekki leiðinlegt að labba um landareignina þar sem maríuerlur og þrestir standa syngjandi í lóðaúthlutunum, býflugur suða og kryddjurtir ilma. Það er bara eitt orð yfir þetta: Sveitasæla.“ Þó stutt sé í bæinn segist Bubbi helst vilja dvelja við Meðalfellið. „Það er mokveiði í vatninu, sem er eins og gler í logni og fjallið er freistandi. Maður gengur samt ekki upp á fjöll heldur hleypur upp á þau. Ég er ekki enn búinn að hlaupa upp á það en trúðu mér, það kemur að því. Þótt það sé hrikalega erfitt.“ Nýja Bubba-platan Fjórir nagl- ar kemur út á afmælisdegi Bubba, 6. júní. Titillagið er komið í spilun og þar kveður við sálarlegan tón. Bubbi segir lagið alls ekki ein- kennandi fyrir plötuna. „Nei, það ægir öllu saman á þessari plötu. Það eru alls konar stílar á henni, pönk, soul, þjóðlagatónlist og tón- list sem var í tísku rétt eftir alda- mótin 1900. Það er samt ákveðinn hljómur sem bindur hana saman og má lýsa sem töffaragítar.“ Fjórir naglar er fyrsta sólóplata Bubba með nýju efni síðan 2005, þegar hann gerði skilnaðarplötu- tvennuna Ást og Í 6 skrefa fjar- lægð frá paradís. - glh Bubbi Morthens fluttur í Kjósina „Var þetta ekki bara næsta skref? Ég held að það sé tími til kominn að fá raunsæja mynd af íslensk- um lögfræðingum. Við erum ekki eins leiðinlegir og menn kynnu að halda,“ segir Brynjar Níelson hæstaréttarlögmaður. Í farvatninu er Réttur, ný íslensk sjónvarpsþáttaröð í átta þáttum um líf og störf íslenskra lögfræðinga. Handritshöfundar eru þau Sigurjón Kjartansson, Kristinn Þórðarson og Margrét Örnólfsdóttir og hefur Brynjar átt fundi með þeim. „Menn eiga það til að rugla saman hugtökum hér á landi. Oft koma þeir með ranghugmyndir frá Bandaríkjun- um hvernig þetta virkar og ég var bara að útskýra fyrir þeim hvernig tungumál væri talað fyrir dómi hér á landi,“ útskýrir Brynjar en hann hefur ekki mikið álit á þeim lögfræðingaþáttum sem hafa flætt yfir íslenskt sjón- varp undanfarin ár. Eða ekki síðan Perry Mason vann hvert málið af fætur öðru. „Ég hef þó haft gaman af Bos- ton Legal, finnst skemmti- legt hvernig þeir taka á málefnum líðandi stundar og setja þá í lögfræðilegt samhengi. Vonandi verða þessir þættir eitthvað í líkingu við þá,“ segir Brynjar. Sigurjón sagði í samtali við Frétta- blaðið að þetta væri vissulega lögfræðidrama þar sem einkalíf lögfræðinga yrði ekkert síður í kastljósinu en dómsmál þeirra. „Hver og einn þáttur er sjálfstæð saga og þar er fylgt eftir einu máli frá a til ö. Hins vegar verður einkalíf lögfræðinganna í fram- haldsþáttastíl,“ útskýrir Sigurjón sem var að vonum sáttur við sam- starfið við Brynjar. „Maður vill ekki láta hanka sig á einhverjum lögfræðilegum smáatriðum,“ útskýrir hann. Ekki liggur fyrir hvenær hafist verði handa við tökur á þáttunum, hverjir skipi aðalhlutverkin né hver leikstýri, en Sigurjón sagði þau mál eiga að skýrast á næstunni. - fgg Brynjar vill íslenskt Boston Legal GOTT SAMSTARF Brynjar Níels- son sér til þess að menn tali rétt lögfræðitungumál í nýjum sjónvarpsþáttum sem Sigurjón Kjartans- son á hugmyndina að. Ekki væsir um þau Friðrik Ómar og Regínu Ósk í Serbíu. Þau eru hvort með sína svítuna á hótelinu í Serbíu. „Hér er allt í toppklassa og okkur gæti ekki liðið betur. Vinnufundirn- ir eru haldnir inni á herbergjunum okkar enda eru þau með glæsileg- asta móti,“ segja Friðrik Ómar og Regína. Fyrsta æfing hópsins var í gær- morgun og bæði Friðrik og Regína eru sammála um að hún hafi gengið vel. „Okkur leið alveg ofsalega vel á sviðinu,“ segir Regína og Friðrik skýtur því inn í að tæknihliðin hafi verið á heimsmælikvarða. Regína og Friðrik voru ekki í neinum feluleik á fyrstu æfingunni og frumsýndu búningana sem þau klæðast á undanúrslitakvöldinu. „Við ákváðum frá fyrsta degi að æfa atriðið með öllu og það má ekki gleyma því að við þurfum ekki að koma Íslendingum á óvart. Við þurfum að koma Evrópu á óvart og vildum því breyta út af vananum,“ útskýrir Friðrik. Regína bætir við að auðvitað eigi eitthvað eftir að breytast þegar nær dregur en þetta sé grunnurinn. Mikla athygli vakti hér heima að Friðrik Ómar nýtti sér þjón- ustu Ingibjargar Gunnarsdóttur sem notaði dáleiðsluaðferð til að ná fram hámarksárangri í Smára- lindinni. Ingibjörg kemur til Ser- bíu á föstudaginn en Friðrik sjálf- ur segist vera fullur sjálfstrausts og telur sig jafnvel ekki þurfa þjónustu hennar þegar að stóru stundinni kemur. Og það er kannski ekki að undra að þeim Friðriki og Regínu skuli líða vel. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hafa þau verið dug- leg í ræktinni og hún verður ekki látin sitja á hakanum þrátt fyrir að út fyrir landsteinana sé komið. „Við vorum vöknuð klukkan fjögur í morgun, fórum þá í rækt- ina og svo í förðun,” segja Friðrik og Regína sem gefst lítið færi á að taka því rólega enda fram undan blaðaviðtöl og blaðamanna- fundir. freyrgigja@frettabladid.is FRIÐRIK ÓMAR OG REGÍNA ÓSK: MEÐ EINKASVÍTUR Á HÓTELINU Í SERBÍU Í ræktina um miðja nótt MEÐ BLEIKU ÍVAFI Svart og bleikt er meginþemað í búningum þeirra Friðriks og Regínu sem voru ekkert að halda þeim leyndum heldur frumsýndu strax á fyrstu æfingu. NÝTT HÚS OG NÝ PLATA Bubbi Morthens er kominn í sveitasæluna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Great minds think alike,” er stund- um sagt upp á engilsaxnesku og gaman að fylgjast með því hversu samstiga samherjarnir og sjónvarps- stjörnurnar Sigmundur Ernir og Jón Ársæll eru þegar viðmælendur eru annars vegar. Þannig var Bjarni Haukur gam- anleikari viðmæl- andi Sigmundar í Mannamáli nýverið og hefur einnig verið auglýstur sem viðfang Jóns Ársæls í Sjálfstæðu fólki. Um helgina ræddi Sigmundur Ernir við Jakob Frímann sem einnig verður efniviður Jóns Ársæls í næsta þætti. Þannig að viðtalshaukar Stöðvar 2 kunna að læsa klónum saman í þá þar sem safinn er. Árni Matthíasson og þeir Mogga- menn eiga í stökustu vandræðum með bloggsvæði sitt en þar togast á anarkisminn sem hlýtur að vera for- senda þess hversu netið blómstrar og svo þess að vilja viðhalda virð- ingu sinni – eða firra sig kvörtunum. Enn einni síðunni hefur verið lokað á moggablogginu: hebbi.blog.is. Þar hefur Herbert Fr. Stefánsson skrifað og þykir í skrifum sínum að mörgu leyti líkjast ofur- bloggaranum Stefáni Fr. Stefánssyni. Herbert kvartaði í síðasta bloggi sínu undan árásum á sig og í athugasemda- kerfinu lýsti kona hans, Sigurlaug Helgadóttir Eggerz, eftir honum: Sagði hann ekki hafa komið heim síðan á föstudag. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að engan Herbert Fr. né nafn konu hans er að finna í þjóðskrá. Vogar á Vatnsleysuströnd er fallegt bæjarfélag um 1.300 íbúa, en það hefur helst verið í fréttum að undan- förnu vegna ýmissa fíkniefna- og ofbeldismála. Nýverið gaf bæjar- félagið út glæsilegan litprentaðan „hér-er-gott-að-búa” bækling, en heldur þótti friðsömum bæjarbúum sumum skjóta skökku við að húsið á forsíðu bæklingsins er hús einhvers frægasta íbúa Voga: Annþórs Kristjáns Karlssonar dæmds handrukkara með meiru. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Taka allt að 4 mm vír. Handhægar - aðeins um 5 kg. Flott verð. Hátíðni rafsuðuvélar Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.