Fréttablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 20
20 15. maí 2008 FIMMTUDAGUR
nám, fróðleikur og vísindi
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
53
91
105
150
182 191
201
264
343
482
Viðskiptadeild Háskólans í
Reykjavík (HR) var á dögunum
valin á lista yfir eitt þúsund bestu
viðskiptaháskóla og viðskipta-
deildir háskóla í heimi. Skólinn
hafnaði í 117. sæti.
Það eru samtökin Eduniversal
sem standa fyrir valinu, en þau
meta háskóla víða um heim. Tólf
manna nefnd valdi eitt þúsund
skóla frá 150 löndum. Forsetar
deildanna/skólanna nefndu síðan
þá skóla sem þeir gætu mælt með.
Fjórði hver deildarforseti merkti
við HR sem skóla sem þeir gætu
mælt með. Það er því ljóst að við-
skiptadeild HR er vel kynnt víða
um heim.
Á listanum eru 256 skólar í
Vestur-Evrópu og hafnaði HR í 46.
sæti af þeim.
Þorlákur Karlsson, forseti við-
skiptadeildarinnar, segir að viður-
kenningin sé hvatning til aukinnar
sóknar. „Það er óskaplega mikil
samkeppni í þessu og allt svona
brýnir okkur áfram. Við lítum á
þetta sem viðurkenningu á okkar
starfi, ekki síst því alþjóðlega
tengslaneti sem við höfum eflt.“
Þorlákur segir nú unnið að því
að fá alþjóðlega vottun fyrir MBA-
nám í skólanum og í kjölfarið fylgi
fleiri námsleiðir.
Ekki komust aðrir íslenskir
skólar á blað í könnuninni. - kóp
Viðskiptadeild HR fær viðurkenningu:
Á meðal þeirra bestu í heimi
GÓÐUR ÁRANGUR Þorlákur Karls-
son og hans fólk í viðskiptadeild
HR hefur unnið gott starf sem
vakið hefur athygli víða.
Kjarni málsins
> Fjöldi grunnskólanema með pólsku að móðurmáli.
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS.
Reikna má með að vel á
þriðja þúsund nemenda
stundi nám sem hægt er
að meta til stúdentsprófs í
sumar. Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti býður upp á
sumarskóla og hægt er að
stunda fjarnám í sumar við
Verzlunarskóla Íslands og
Fjölbraut í Ármúla.
Námsframboð hefur breyst mikið
undanfarin ár. Sú tíð er liðin þegar
skólinn var sniðinn að þörfum
atvinnulífsins og unglingar fengu
sumarfrí þegar sauðburður hófst
og komu í skóla að loknum réttum.
Nú geta nemendur púslað námi
sínu saman sjálfir og sumarnámið
eykur valmöguleikana.
Í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti (FB) er starfræktur sumar-
skóli. Torfi Magnússon, einn af
umsjónarmönnum hans, segir
aðsóknina mjög góða. „Í fyrrasum-
ar voru hér 1.060 nemendur og
ætli þeir verði ekki eitthvað fleiri í
ár,“ segir Torfi.
Skólinn er ekki bundinn við
nemendur FB og meirihluti nem-
enda kemur úr öðrum skólum.
Torfi segir marga sem vilja flýta
útskrift sækja í sumarskólann.
„Hér geta menn tekið 21 einingu
yfir sumartímann og kannski stytt
nám sitt um eina önn. Þá er mjög
algengt að nemendur sem hafa
fallið í einhverjum fögum taki þau
upp hér.
Þá hefur það færst í aukana að
nemendur úr grunnskóla taki svo-
kallaða 0-áfanga hér, en þá áfanga
verða þeir að taka falli þeir á sam-
ræmdu prófunum. Þannig geta
þeir hafið nám að hausti á sama
stað og þeir sem náðu. Í fyrra voru
þetta um 260 nemendur,“ segir
Torfi.
Sumarskóli FB er rekinn af
Fjölvali, sem er sjálfseignastofn-
un í eigu FB. Rukkað er fyrir
hverja einingu og kostar hún 6.200
krónur. Kennsla fer fram á kvöldin
alla virka daga.
Versló og FÁ bjóða upp á fjar-
nám yfir sumartímann. Engin
mætingaskylda er en prófað er að
lokinni námsönn. Nemendur koma
víðsvegar að, úr öðrum skólum
eða utan hefðbundins náms.
Steinunn H. Hafstað, fjarnáms-
stjóri FÁ, segir nemendur hafa
verið um 800 í fyrra. „Við erum
með níu eininga hámark, en end-
urskoðum það ef óskað er eftir.“
Fastur kostnaður í FÁ er 6.250
krónur og hver eining kostar 1.500
krónur.
Sigurlaug Kristmannsdóttir,
fjarnámsstjóri Versló, segist
reikna með ríflega 600 nemendum
í sumar. Skráningargjald þar er
5.000 krónur og hver eining kostar
2.000.
Nemendur í fjarnámi eru, eðli
málsins samkvæmt, ekki bundnir
við ákveðinn stað. Prófin fara því
fram víðsvegar um heim, jafnt í
Kína sem Kanada. Þá hafa nem-
endur tekið próf á hafi úti og gegn-
ir skipstjórinn þá hlutverki próf-
dómara.
Aðsókn í fjarnám hefur aukist
mikið. Nú er svo komið að ein-
hverjir nemendur sem hafa stund-
að allt sitt nám í fjarnámi nálgast
útskrift. Mun algengara er þó að
nemendur hefji hefðbundið nám
en ljúki því í fjarnámi. Fleiri skól-
ar bjóða upp á fjarnám, en ekki að
sumarlagi. kolbeinn@frettabladid.is
Þúsundir við
nám í sumar
FJÖLBREYTT NÁMSFRAMBOÐ
Um 80 einingar eru í boði í Sumar-
skóla FB og mega nemendur taka
eins marga áfanga og þeir kjósa.
Engin mætingaskylda er og prófað
er að önn lokinni. Meðal þess sem
boðið er upp á er:
■ Fjöldi áfanga í íslensku og sögu.
■ Sálfræðiáfangi
■ Fjöldi stærðfræðiáfanga.
■ Heilbrigðisfræði og sýklafræði.
■ Bókhald og þjóðhagfræði.
■ Fjöldi málaáfanga.
Elísabet Jökulsdóttir er í fyrsta útskriftarár-
gangi fræða og framkvæmdar, sem byrjað
var að kenna við leiklistardeild Listaháskóla
Íslands fyrir þremur árum. Um þessar
mundir standa yfir sýningar á leikriti sem
hún samdi og setti upp sem lokaverkefni í
náminu.
Elísabet segir að námið sé illskilgreinan-
legt en best sé að lýsa því sem blöndu
fræðilegrar og listrænnar fræðslu um svið-
slistir. „Við förum í gegnum það hvað ótal
fræðimenn hafa um leikhúsið að segja en
svo er líka miklu púðri eytt í að vera á sviði
– læra og leika okkur þar.
Strákarnir í bekknum hafa notað orðið
leikhúslistamaður til að lýsa náminu í víðri
merkingu; við erum ekki lokuð af í einum
bás heldur látin atast í þessu öllu. Við
vorum að grínast með hvaða titil við ættum
að útskrifast með. Ég stakk upp á því að ég
gæti einfaldlega kallað mig leikhús.“
Elísabet segist hafa ákveðið að fara í
þetta nám með það að markmiði að reka
smiðshögg á leikrit sem hún hafði verið að
skrifa í átta ár og telur námið hafa gagnast
sér mikið. „Verkið er sprottið af ákveðnu
„trauma“ í sjálfri mér sem var orðið að
„trauma“ í leikritinu – og þannig séð tvílæst
og ég var alltaf að fara í hringi með það,
en skólinn opnaði ákveðnar dyr sem gerðu
mér kleift að vinna úr því.“
Elísabet segir námið líka hafa verið
gæfuspor því hún hafi fundið dansarann
í sér og einn af hápunktunum hafi verið
dansverk sem hún samdi, en dýrmætasta
reynslan hafi verið að kynnast því hvernig
er að vera á sviðinu. Það skiptir öllu – líka
fyrir leikritaskáld.“
NEMANDINN: ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR NEMANDI Í FRÆÐUM OG FRAMKVÆMD
Þverfræðilegar leikhúslistir
FR
ÉT
TA
LB
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
SUMARSKÓLI FB Magnús Ingvason og Torfi Magnússon, umsjónarmenn sumarskól-
ans. Nemendur geta einnig sótt fjarnám hjá Versló og FÁ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI