Fréttablaðið - 15.05.2008, Side 80
60 15. maí 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Handknattleikskappinn Heimir Örn Árnason hefur ákveðið að yfirgefa
Stjörnuna og ganga í raðir Valsmanna og mun hann skrifa undir árs
samning við Hlíðarendafélagið með möguleika um að framlengja
um annað ár. Heimir Örn fór á kostum á nýafstöðnu tímabili í N1-
deildinni; var markakóngur deildarinnar með 169 mörk og var svo
valinn handknattleikmaður ársins á lokahófi HSÍ auk þess að
fá háttvísverðlaunin. Heimir Örn var vissulega ánægður með
verðlaunin en kvað tímabilið þó
hafa valdið sér vonbrigðum.
„Val mitt á lokahófinu breytir
í raun engu um það að þetta
tímabil með Stjörnunni var
vonbrigði. Ég tel að við höfum
verið með nógu sterkan hóp til
þess að vera með í baráttunni um titilinn en því miður mis-
stum við dampinn einhvern veginn allt of fljótt. Auðvitað
lentum við í meiðslavandræðum eins og gengur og gerist
en það breytir því ekki að leikmenn og þjálfarar klikkuðu
einfaldlega þegar upp er staðið,“ sagði Heimir Örn, sem
var mjög eftirsóttur á leikmannamarkaðnum eftir að í ljós
kom að hann vildi yfirgefa Stjörnuna eftir nýafstaðið tíma-
bil. Það var þó einkum FH sem veitti Val harða samkeppni
um að fá Heimi Örn, sem viðurkennir að valið hafi ekki
verið auðvelt.
„Ég verð að játa að þetta var mjög erfitt val fyrir mig
því bæði Valur og FH voru í mínum huga spennandi
dæmi. Ég hef aftur á móti átt við ákveðin meiðsli að
stríða undanfarið og ég held að ég muni nýtast betur
í liði með sterkari breidd þar sem ég þarf ekki að
spila í sextíu mínútur í hverjum leik eins og ég hef
gert undanfarin ár. Ég hugsa að það sem hafi hjálpað
mér líka á endanum að taka þessa ákvörðun er að ég
kannast betur við aðstæður hjá Val og þekki þar bæði
þjálfara og leikmenn,“ sagði Heimir Örn, sem væntir
mikils af komandi veru sinni hjá Val.
„Valur er með mjög sterkan leikmannahóp og það
væri gaman að taka þátt í því að endurheimta titilinn á
Hlíðarenda,“ sagði Heimir Örn að lokum.
HEIMIR ÖRN ÁRNASON: HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ SKIPTA YFIR Í VAL EFTIR TÍMABIL VONBRIGÐA MEÐ STJÖRNUNNI
Leikmenn og þjálfarar klikkuðu þegar upp er staðið
FÓTBOLTI Gunnar Már Guðmunds-
son, sem ber gælunafnið „Herra
Fjölnir“ meðal margra í Grafar-
voginum, hefur haft í nógu að
snúast síðustu daga. Gunnar Már
er ekki bara lykilmaður í Fjölnis-
liðinu því hann er einnig vallar-
stjóri og stendur því í ströngu
fyrir leikinn.
„Það mæðir mikið á manni núna.
Þetta er stóra prófið fyrir Fjölni,
þegar KR-ingar koma í heimsókn,
bæði fyrir liðið og fyrir umgjörð-
ina. Það eru fá lið með jafnmarga
áhorfendur og KR,“ sagði Gunnar
Már, sem skoraði tvö mörk í fyrsta
leiknum á móti Þrótti.
„Þetta verður gríðarlega
skemmtileg stund og maður er
búinn að bíða eftir því lengi að fá
Landsbankadeildarleik í Grafar-
voginum.“
Fjölnismenn hafa unnið á fullu
til þess að gera völlinn sinn kláran
fyrir kvöldið og búast má við góðri
mætingu frá báðum félögum eftir
tvo flotta sigra þeirra í fyrstu
umferðinni. „Þetta lítur vel út,
stúkan er komin upp og við erum
bara að bíða eftir síðustu sætun-
um. Það má búast við hörku mæt-
ingu. Það eru fimm hundruð sæti
og svo held ég bara að fólki verði
raðað út um allt.“
Fjölnir varð aðeins þriðja liðið
frá 1977 til að vinna sinn fyrsta
leik í efstu deild þegar liðið vann
öruggan þriggja marka sigur á
Þrótti í fyrstu umferð Lands-
bankadeildarinnar á laugardaginn.
Hin tvö eru Stjarnan (vann 2-0 úti-
sigur á Þór 1990) og Skallagrímur
(vann 3-0 heimasigur á Leiftri
1997), sem náðu hins vegar hvor-
ugt að fylgja eftir glæsilegum
sigri í frumraun sinni; töpuðu
bæði næstu tveimur leikjum. Því
eru menn spenntir að sjá hvernig
Fjölnisliðinu vegnar í næstu
leikjum.
„Við vissum alveg að fyrsti leik-
urinn yrði alveg eins og 1. deildar-
leikur. Við erum vanir því að spila
við Þrótt þannig að það var enginn
munur á því. Spurningin er hvern-
ig þetta verður þegar við mætum
stórveldinu úr Vesturbænum. Ef
við spilum svipað og síðast, erum
þéttir og skipulagðir, þá eigum við
alveg möguleika,“ segir Gunnar
Már, sem vonar að Fjölnir vinni
leikinn bæði innan og utan vallar.
„Það verður líka gaman að sjá
baráttu Káramanna og Miðjunnar
í stúkunni. Ég hef trú á Káramönn-
um því þeir voru stórkostlegir í
Laugardalnum á laugardaginn og
þeir lofa alveg eins frammistöðu í
þessum leik,“ segir Gunnar Már
en leikur liðanna hefst klukkan
19.15 í kvöld.
- óój
Mjög stór dagur fyrir Gunnar Már Guðmundsson, lykilleikmann Fjölnis og vallarstjóra Fjölnisvallar:
Hefur trú á Káramönnum gegn Miðjunni
ÞRJÚ STIG Í FYRSTA LEIK Gunnar Már Guðmundsson og félagar í Fjölni fagna sigrin-
um á Þrótti á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Hvorki Jaliesky
Garcia Padron né Roland Valur
Eradze gáfu kost á sér í landslið-
ið vegna meiðsla. Sögðust þeir
einfaldlega ekki treysta sér í
leikina. Guðmundur valdi 23
leikmenn, þar af fjóra mark-
menn. Þá á Sverre Jakobsson von
á barni og þrír leikmenn, Snorri,
Ásgeir og Arnór, koma líklega
beint til Spánar þar sem dönsku
deildinni er enn ekki lokið.
Guðmundur útilokaði hvorki að
fækka í hópnum né bæta við. - hþh
Íslenski landsliðshópurinn:
Garcia gaf
ekki kost á sér
HÓPURINN TIL Landsliðið var kynnt á
Loftleiðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ
Birkir Ívar Guðmundsson (Lübecke)
Björgvin Páll Gústavsson (Bittenfeld)
Hreiðar Levý Guðmundsson (Savehof)
Ólafur Haukur Gíslason (Valur)
Útileikmenn
Alexander Petersson (Flensburg)
Andri Stefan (Haukar)
Arnór Atlason (FC Köbenhavn)
Ásgeir Örn Hallgrímsson (GOG)
Bjarni Fritzson (St. Raphael)
Einar Hólmgeirsson (Flensburg)
Guðjón V. Sigurðsson (Gummersbach)
Guðlaugur Arnarson (Malmö)
Hannes Jón Jónsson (Fredericia HK)
Ingimundur Ingimundarson (Elverum)
Logi Geirsson (Lemgo)
Ólafur Stefánsson (Ciudad Real)
Róbert Gunnarsson (Gummersbach)
Rúnar Kárason (Fram)
Sigfús Sigurðsson (Ademar Leon)
Snorri Steinn Guðjónsson (GOG)
Sturla Ásgeirsson (Aarhus GF)
Sverre Jakobsson (Gummersbach)
Vignir Svavarsson (Skjern)
HANDBOLTI Guðmundur Guð-
mundsson hefur ekki setið auðum
höndum frá því hann var með
landsliðið í æfingabúðum á
Íslandi um páskana. Hann hefur
unnið ötullega að því að nálgast
upplýsingar um mótherja liðsins í
undankeppni Ólympíuleikana og
undankeppni heimsmeistara-
mótsins sem eru fram undan.
Ísland mætir Pólverjum, Svíum
og Argentínumönnum í lok maí
þar sem tvö lið komast áfram á
ÓL. Síðan eru tveir leikir við
Makedóníu um laust sæti á HM.
Guðmundur greinir andstæð-
ingana, og leik íslenska liðsins, og
hleður inn í hið alíslenska hug-
vitsforrit Sideline sem hann
hrósar í hástert.
Þeim skjölum og skráum sem
Guðmundur býr til hefur hann
svo komið fyrir á miðlægum
gagnabanka sem leikmenn geta
nálgast hvaðan sem er í heimin-
um. Bæði texti og myndband fylg-
ir hverju leikkerfi, en þau heita
eftir borgum í Evrópu að ósk leik-
manna. Meðan leikkerfa sem
Guðmundur getur flogið á milli
eru Minsk, Berlín og Köben.
„Ég get síðan fylgst með hverj-
ir eru að fara inn á hvað og hve-
nær,“ sagði Guðmundur og viður-
kenndi að menn væru misduglegir
að fara inn, hverju sem það
sætti.
Guðmundur leggur mikla
áherslu á að með þessu kunni
leikmenn liðsins öll leikkerfin
sem spiluð verða og þekki and-
stæðinga sína út og inn. „Ég vil
ekki þurfa að kenna mönnum
hvert þeir eiga að hlaupa. Við
fáum aðeins fáa daga til undir-
búnings og það er mikilvægt að
nýta tímann vel. Með þessu fáum
við hnitmiðaðri æfingar,“ sagði
landsliðsþjálfarinn.
Um aðra helgi verða leiknir
tveir æfingaleikir gegn sterku
liði Spánverja en liðið kemur
fyrst saman á Íslandi á mánudag.
„Við munum útfæra okkar leik
gegn þeim. Það er ákveðin próf-
raun fyrir verkefnin fram undan.
Leikmenn eiga að vera búnir að
undirbúa sig og þarna fínpússum
við leik okkar. Þarna veljum við
líka endanlega leikaðferðir okkar
og hvað við ætlum að leggja
áherslu á,“ sagði Guðmundur.
Frá Spáni fer liðið svo í æfinga-
búðir við toppaðstæður í Magde-
burg áður en haldið verður til
Póllands. hjalti@frettabladid.is
Fínpússar liðið á Spáni
Guðmundur Guðmundsson leggur áherslu á að landsliðsmenn kunni leikkerfi
sín út og inn. Fram undan eru tvö risaverkefni og var landsliðið valið í gær.
Leiknir verða tveir æfingaleikir gegn Spáni þar sem leikkerfin verða fínpússuð.
SVONA VIRKAR ÞETTA Guðmundur sýndi blaðamönnum hvernig Sideline-kerfið virk-
ar. Í því getur hann greint leikaðferðir bæði Íslands og andstæðinga þess. Þetta getur
hann svo spilað á auðveldan máta fyrir leikmenn sína, sem ættu þannig að læra að
þekkja andstæðinga sína vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRAM UNDAN HJÁ LIÐINU
19.-21. maí: Æfingar á Íslandi
24. og 25. maí: Æfingaleikir við Spán
26. maí: Æfingabúðir í Magdeburg
30. maí: Argentína í undankeppni ÓL
31. maí: Pólland í undankeppni ÓL
1. júní: Svíþjóð í undankeppni ÓL
8. júní: Makedónía í undankeppni HM
15. júní: Makedónía, síðari leikur heima.
HANDBOLTI Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ, lýsti í
gær yfir mikilli ánægju með að
Claes Hellgren skyldi vera á leið
til landsins. Fyrsta markmanns-
þjálfunarnámskeið þessa
reynslubolta verður í Digranesi
um næstu helgi og þrjú önnur
verða á þessu ári. HSÍ fékk um
1,5 milljónir í styrk til námskeið-
ishaldsins en Einar lýsir
Hellgren sem einum besta
markmannsþjálfara í heimi. - hþh
HSÍ eflir markmannsþjálfun:
Einn sá besti í
heimi á leiðinni
FÓTBOLTI Þróttarar hafa ekki
unnið leik í fyrstu tveimur
umferðum efstu deildar karla í
28 ár, eða síðan þeir unnu 1-0
sigur á KR í fyrstu umferð
sumarið 1980 en sigurmark
liðsins í þeim leik skoraði
Þorvaldur Þorvaldsson úr
vítaspyrnu.
Þróttarar steinlágu 0-3 fyrir
Fjölni á heimavelli í fyrstu
umferð en heimsækja Blika í
Smárann klukkan 19.15 í kvöld.
Þróttur tapaði báðum leikjum
sínum í fyrstu umferðunum
sumurin 2003 og 2005 en gerði
tvö jafntefli 1998.
Þróttur hefur aðeins fengið 5
stig af 34 mögulegum í fyrstu
tveimur umferðunum á þeim
tímabilum sem liðið hefur spilað
í efstu deild undanfarin 28 ár, en
hefur gert fimm jafntefli og
tapað átta leikjum.
Markatalan er 17-24 Þróttur-
um í óhag, sem er ekki alslæmt,
en þeir hafa þrisvar skorað þrjú
mörk í þessum umferðum án
þess að vinna. - óój
Þróttur í umferðum 1 og 2:
Er án sigurs
síðustu 28 ár
STEINLÁGU Eysteinn Lárusson og félagar
í Þrótti byrjuðu ekki vel gegn Fjölni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Félagaskiptaglugginn á
Íslandi lokast á miðnætti í kvöld
og hafa KR og Fram bæði fengið
leikheimildir fyrir nýja menn.
KR samdi við Portúgalann
Jordao Diogo sem er vinstri
bakvörður og Fram við kant-
manninn Joe Tillen. Bróðir hans,
Sam Tillen, leikur nú með
félaginu. Vísir.is greindi frá.
- hþh
Landsbankadeild karla:
KR og Fram
fá liðsstyrk
> Engin óskastaða í Grindavík
Þrír erlendir leikmenn hafa á vordögum hætt við á síðustu
stundu að ganga í raðir Grindvíkinga eftir að frágengið var
að þeir kæmu. „Þetta er engin óskastaða,“ sagði
Ingvar Guðjónsson, framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildarinnar, við Fréttablaðið í gær. Nú
er mál þess fjórða komið inn á borð FIFA
eins og Vísir.is greindi frá í gær. Félag
hans er gjaldþrota og skiptastjóri
þess neitar að sleppa leikmann-
inum. Ingvar bjóst reyndar við
að vinna málið en sagðist vera
með önnur járn í eldinum hvað
aðra erlenda leikmenn varðar.
Félagaskiptaglugganum verður
lokað á miðnætti í kvöld.