Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 2
2 18. maí 2008 SUNNUDAGUR
flugfelag.is
Skráðu þig í
Netklúbbinn
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Félagar í Netklúbbnum
fá fyrstir upplýsingar
um tilboð og nýjungar
í tölvupósti.
Alltaf ódýrast á netinu
www.flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
U
4
16
84
0
4.
20
08
EFNAHAGSMÁL Afkoma íslenskra
sveitarfélaga versnar verulega á
árinu vegna efnahagsástandsins.
Afkoma Reykjavíkurborgar
versnar um í það minnsta 1,5 til 2
milljarða á þessu ári.
Sveitarfélögin skiluðu ágætu
búi á síðasta ári en hræringar í
efnahagslífinu undanfarið setja
fjárhagsáætlanir í uppnám, segir
Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri
hagsviðs Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Þar kemur margt til; aukin
verðbólga, gengisfall krónunnar,
kulnun á byggingamarkaði og
fleira.
Sigurður Snævar, borgarhag-
fræðingur, hefur reiknað út tap
borgarinnar vegna aukinnar verð-
bólgu og einnig vegna lækkandi
útsvarstekna.
Í fjárhagsáætlun var gert ráð
fyrir um fjögurra prósenta verð-
bólgu milli áranna 2007 og 2008.
Nú stefnir í að hún verði yfir tíu
prósent, segir Sigurður. Það eykur
kostnað borgarinnar um 1 til 1,5
milljarð króna, þar sem kaup-
máttur fjárhagsáætlunarinnar
hefur minnkað.
Þá virðist sem útsvarstekjur
verði umtalsvert lægri en ráð var
fyrir gert. Ástæðan fyrir því er sú
að þó ekki sé spáð meira atvinnu-
leysi en reiknað var með megi
gera ráð fyrir því að fólk missi
vinnuna og þurfi að taka verr
launuð störf.
Sigurður gerir ráð fyrir því að
útsvarstekjur borgarinnar verði
um hálfum milljarði króna lægri
en reiknað var með vegna þessa.
Fjárhagsáætlun borgarinnar
hljóðar upp á um 60 milljarða
króna, og 1,5 til 2 milljarða sam-
dráttur því 2,5 til 3,3 prósent af
fjárhagsáætluninni.
Þá er ótalið tekjutap vegna sam-
dráttar í sölu á lóðum og bygging-
arrétti og samdráttur í fasteigna-
sköttum, sem Sigurður segir ekki
hafa verið reiknað út.
Ekki er hægt að heimfæra þessa
útreikninga beint á önnur sveitar-
félög, en þó er ljóst að fjárhags-
áætlanir þeirra eru einnig í upp-
námi vegna verðbólguskotsins.
Gunnlaugur Júlíusson segir erf-
itt að meta kostnað sveitarfélaga
landsins með sama hætti og í
Reykjavík, enda margir óvissu-
þættir sem hafi áhrif. Þó gefi nið-
urstöðurnar í Reykjavík ákveðna
vísbendingu fyrir önnur sveitar-
félög á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu hafa burði til að
taka á sig skerðinguna, þó líklega
þurfi þau að draga úr útgjöldum
til annars en lögbundinna verk-
efna. brjann@frettabladid.is
Kólnun kostar sveit-
arfélögin milljarða
Slæmt efnahagsástand rýrir afkomu Reykjavíkurborgar um 1,5 til 2 milljarða
króna. Þó er ótalinn samdráttur í sölu á byggingarrétti og lóðum. Útreikning-
arnir gefa vísbendingu um stöðu annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
SAMDRÁTTUR Verðbólga og samdráttur í útsvarstekjum mun rýra tekjur borgarinnar
um allt að tvo milljarða á árinu. Við það mun bætast tekjusamdráttur vegna minni
lóðasölu og lægri fasteignaskatta, segir borgarhagfræðingur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ALÞJÓÐASAMSKIPTI Sendiherra
Breta á Íslandi fór á föstudag í
sérstaka kveðjuferð til Húsavíkur
áður en hann lætur af störfum. Á
heimasíðu Norðurþings segir að
Alp Mehmet hafi tengst Húsavík
sérstökum vináttuböndum.
„Það lýsir sér kannski best í því
að hann skuli gefa sér tíma til að
heimsækja okkur og kveðja
formlega. Mehmet mun án efa
verða fulltrúi okkar á erlendum
vettvangi og kynna okkar ágæta
samfélag. Við þökkum honum
fyrir komuna og óskum honum og
eiginkonu hans alls hins besta í
framtíðinni.“ - gar
Breski sendiherrann hættir:
Fór í kveðjuför
til Húsavíkur
ALP OG ELAEINE MEHMET Bresku
sendiherrahjónin með Guðbjarti Ellert
Jónssyni, fjármálastjóra Norðurþings.
AFMÆLI „Þetta er besti hestur sem
við höfum átt,“ segir Ósk Jóhanna
Sigurjónsdóttir, eigandi hestsins
Seifs en hún hélt honum veislu í
hesthúsahverfi Mosfellsbæjar í
gær til að minnast þess að í ár eru
þrjátíu ár frá því hann leit dagsins
ljós á Breiðavaði í Húnavatns-
sýslu.
Seif hefur Ósk átt í 25 ár. Hún
segir hann enn við hestaheilsu og
bregði hún sér enn á bak á honum
annað slagið. „Hann þjónar samt
börnum sem eru óvön hestum best
nú,“ segir Ósk.
Fáir hestar ná jafnháum aldri
og Seifur sem enn lítur vel út þótt
hann sé aðeins farin að grána.
Margir færðu honum gjafir í til-
efni dagsins en einkum var það
svokallað hestanammi sem vakti
lukku hjá fáknum aldna.
- kdk
Fjölskylda í Mosfellsbæ bauð til afmælisveislu aldurhnigins gæðings:
Fögnuðu þrítugsafmæli fáksins Seifs
ÁSTSÆLL SEIFUR Í hestahúsahverfinu í Mosfellsbæ var fjöldi vina Seifs mættur til að
minnast þess að á þessu ári eru þrjátíu ár síðan hann kom í heiminn. Um tauminn
heldur eigandi hans Ósk Jóhanna Sigurjónsdóttir en Seif hefur hún átt í 25 ár. Seifur
hefur á langri ævi farið um allt land nema Vestfirði og Austfirðina. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
BÚRMA, AP Talsmenn herforingja-
stjórnarinnar í Búrma segja að
búið sé að veita neyðaraðstoð á
svæðum sem verst urðu úti í felli-
byl í byrjun maí, og að nú taki upp-
byggingarstarf við. Alþjóðlegar
hjálparstofnanir draga yfirlýsing-
una stórlega í efa.
Alþjóða Rauði krossinn telur að
um 128 þúsund hafi látist vegna
fellibylsins, og að dauðsföllum
muni fjölga verulega fái alþjóð-
legar hjálparstofnanir ekki að
dreifa neyðaraðstoð til um 2,5
milljóna íbúa sem lifðu hamfar-
irnar af.
Hópar indverskra og taílenskra
björgunarmanna komu í gær til
höfuðborgar Búrma. Talsmaður
taílenska hópsins segir hann hafa
fengið leyfi til að fara til hamfara-
svæðanna. Indverski hópurinn
hefur ekki fengið slík vilyrði.
Neyðaraðstoð er farin að berast
til íbúa nærri borginni Yangon.
Fjær borginni eru enn stór svæði
þar sem ástandið er sagt hörmu-
legt. Stjórnvöld hafna enn öllum
beiðnum alþjóðlegra hjálparsam-
taka um leyfi til að dreifa neyðar-
aðstoð á hamfarasvæðunum.
Franskt herskip kom í gær að
strönd Búrma með um 1.000 tonn
af mat, vatni og lyfjum. Ekki hefur
enn fengist leyfi til að ferja birgð-
irnar með bátum og þyrlum beint
til hamfarasvæðanna og er nú
beðið frekari fyrirmæla. - bj
Alþjóða Rauði krossinn telur að 128 þúsund hafi látist í hamförunum í Búrma:
Um 2,5 milljónir þurfa aðstoð
SLÆMT ÁSTAND Neyðaraðstoð berst nú
íbúum nærri borginni Yangon í Búrma,
en óttast er að ástandið sé afar slæmt
víða á hamfarasvæðinu. NORDICPHOTOS/AFP
Sigurður, viltu veðja á úrslitin?
„Já það vil ég, og veðja á sigur.“
Gefin hefur verið út ákæra á hendur
veðmálafyrirtækinu Betsson. Um nokk-
urra ára skeið hefur fyrirtækið auglýst
fjárhættuspil og veðmál á vefsíðu sinni í
íslenskum fjölmiðlum. Sigurður G. Guð-
jónsson er lögmaður Betsson hér landi.
KÍNA, AP Eftirskjálfti sem mældist
sex á Richter-skala skók Beichu-
an-sýslu í suðvestur Kína í gær.
Þúsundir íbúa flúðu svæðið þegar
fór að rigna þar sem óttast var að
Qingzhu-áin myndi flæða yfir
bakka sína eftir að skriður
stífluðu hana að hluta.
Stjórnvöld í Kína töldu í gær að
um 29 þúsund manns hefðu látist
í skjálftanum, en gera ráð fyrir
að talan geti farið yfir 50 þúsund
þegar öll kurl verða komin til
grafar. Enn finnst fólk á lífi í
rústunum, og í gær var 31 árs
gamalli konu bjargað eftir að
hafa verið grafin í rústunum í 124
klukkustundir. - bj
Annar eftirskjálfti í Kína:
Fólk flúði vegna
flóðahættu
FLÓÐAHÆTTA Hermaður ber litla stúlku
burt af hættusvæði í Beichuan í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
NAÍRÓBÍ, AP Sómalískir sjóræn-
ingjar rændu í gærmorgun
jórdönsku skipi sem var á leið til
Mógadisjú, höfuðborgar Sómalíu,
með hjálpargögn.
Áhöfn jórdanska skipsins er í
haldi sjóræningjanna. Ekki hefur
náðst samband við skipið.
Þetta er í annað sinn sem
jórdanska skipinu er rænt en það
var einnig gert á síðasta ári.
Mörg sjórán hafa verið framin á
þessu ári undan ströndum
Sómalíu. Sómalísk stjórnvöld
kenna Vesturlöndum um tíðni
sjórána, þar sem þau láti undan
kröfum ræningjanna um lausnar-
gjald. - mmr
Sjórán algeng við Sómalíu:
Skipi með hjálp-
argögnum rænt
SHARM EL-SHEIK, AP George Bush
Bandaríkjaforseti sagði það
einbeittan vilja sinn að koma á
sáttum milli Ísrael og Palestínu og
að gengið yrði frá friðarsáttmála
fyrir lok árs. Þetta sagði hann eftir
að hafa átt fund með Mahoud
Abbas, forseta Palestínu í gær, en
Bush var á svæðinu til að taka þátt
í 60 ára afmæli Ísraelsríkis.
Bush sagði jafnframt að honum
rynni til rifja að sjá aðbúnað fólks í
Palestínu og vildi ráða bót á högum
þeirra. Margir gerðu lítið úr
ummælum Bush og heimsókn hans
til Palestínu vegna þátttöku hans í
60 ára afmæli Ísraelsríkis. - mmr
Deilur Ísrael og Palestínu:
Bush vill sættir
fyrir lok árs
Féll af baki í miðborginni
Kona féll af hestbaki við Hafnarhúsið
í Tryggvagötu um hádegi í gær. Við
fallið meiddist hún á baki og höfði.
Konan var með meðvitund þegar
sjúkraliðar komu á staðinn og var hún
flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar.
LÖGREGLAN
Lúinn ökumaður ók á staur
Átján ára ökumaður sofnaði undir
stýri á Drottningarbraut á Akureyri í
gær með þeim afleiðingum að hann
ók á rafmagnsstaur. Háspennulína
slitnaði við höggið en ökumanninum
var ekið á sjúkrahúsið á Akureyri til
skoðunar.
Fíkniefnaakstur á Hvolsvelli
Tveir ökumenn voru teknir við eftirlit
lögreglunnar á Hvolsvelli í gærdag.
Við athugun reyndust mennirnir undir
áhrifum fíkniefna við aksturinn.
SPURNING DAGSINS