Fréttablaðið - 18.05.2008, Side 4
4 18. maí 2008 SUNNUDAGUR
10 tíma lúxusnámskeið í tennis
Innifalið:
• Öll undirstöðuatriði tennisíþróttarinnar kennd
• Skemmtilegir tennisleikir og reglur kenndar
• Fjórir á hverjum velli með einum tennisþjálfara
• Hádegisverðarhlaðborð á veitingastaðnum Nítjándu
Árangursrík og skemmtileg leið til að læra tennis
Verð kr. 24.900 á mann.
Verð með sumarkorti í tennis kr. 37.900.
Verð með gistingu á Hótel Smára kr. 39.900
Í boði allar helgar í sumar
Skráning og upplýsingar í síma
564 4030 og á tennishollin.is
LÆRÐU TENNIS
Á EINNI HELGI
UMHVERFISMÁL Þeir sem leigja sér íbúðar-
húsnæði geta ekki orðið sér úti um hina
umhverfisvænu bláu tunnu frá Reykjavík-
urborg. Gjaldið fyrir tunnuna er bundið í
fasteignagjöld, eins og önnur sorphirðugjöld.
Heildarfjöldi leigjenda í Reykjavík liggur
ekki fyrir, en tæplega 6.000 manns þiggja
húsaleigubætur.
Magn dagblaða, tímarita og markpósts hefur
aukist mjög undanfarið, um 76 prósent frá
árinu 2003. Til að sporna við því býður borgin
upp á bláa sorptunnu. Í hana fer pappír til
endurvinnslu og starfsmenn borgarinnar
tæma hana reglulega, gegn 7.400 króna gjaldi
á ári. Þar sem sorphirðugjald er bundið í
fasteignagjöld eru það einungis húseigendur
sem hafa með það að segja hvort pappírstunn-
an er fengin.
Guðmundur B. Friðriksson,
skrifstofustjóri hjá umhverfis- og
samgöngusviði Reykjavíkurborg-
ar, segir að ennþá séu sorphirðu-
gjöld bundin fasteignagjöldin. Ekki sé
því hægt að fjölga eða fækka tunnum
nema beiðni komi um það frá eiganda.
Innheimtumálin séu til skoðunar hjá
Reykjavík.
Gísli Marteinn Baldursson, formaður
umhverfis- og samgönguráðs, segir að
á meðan staðan sé svona verði menn
einfaldlega að semja við sína leigusala
og greiða þeim gjaldið beint.
- kóp
Bláa pappírstunnan er aðeins fyrir húseigendur:
Leigjendur eru undanskildir
BLÁA TUNNAN frá Reykjavíkurborg.
DÓMSMÁL Fjögur rétthafasamtök
hafa á ný höfðað mál gegn
eigendum vefsíðunnar Istorrent,
þar sem þess er krafist að
lögbann á síðuna verði staðfest.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Istorrent. Hæstiréttur vísaði
nýverið frá fyrri málshöfðun
samtakanna.
Á Istorrent gátu notendur
skipst á kvikmyndum, tölvuleikj-
um og öðrum skrám. Síðan hefur
verið lokuð frá því í nóvember
vegna lögbannsins.
Forsvarsmaður Istorrent segir
að krafist verði skaðabóta vegna
tjóns sem hlotist hefur af
lögbanninu. - bj
Lögbann á Istorrent stendur:
Nýtt mál höfð-
að eftir frávísun
UMHVERFISMÁL „Þetta er bara
sorglegt,“ segir Halldóra Guðrún
Ísleifsdóttir, íbúi við Egilsgötu sem
mótmælt hefur því að um fjörtíu
stór reynitré á lóð gömlu Heilsu-
verndarstöðvarinnar við Baróns-
stíg voru felld.
Halldóra spyr sig hvernig það
megi vera að leyfi fáist til að fella
tugi trjáa við íbúðagötu án þess að
íbúarnir fái að vita að slíkt standi
til. Hún segir engan geta sagt sér
hvers vegna trén voru felld. „Þá er
þetta bara til að gera umhverfið
ljótara og eyðileggja,“ segir
Halldóra sem telur að trén hefðu
náð sex metra hæð í sumar.
Sérstakt leyfi yfirvalda þarf til að
fella tré sem eru hærri en átta
metrar eða eru eldri en 60 ára. - ovd
Ósáttir íbúar við Egilsgötu:
Trén felld og
kurluð niður
ENGAR SKÝRINGAR Á FELLDUM TRJÁM
Sunna Styrmisdóttir sér mikið eftir trján-
um við gömlu heilsuverndarstöðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JÓHANNESARBORG, AP Forsetafram-
bjóðandinn Morgan Tsvangirai
frestaði heimkomu sinni til
Simbabve í gær vegna hótana um
banatilræði.
Áætlað er að seinni umferð
forsetakosninganna fari fram 27.
júní og ætlaði Tsvangirai að hefja
kosningabaráttuna gegn Robert
Mugabe, núverandi forseta
landsins. Tsvangirai hefur dvalist
erlendis að undanförnu og var
væntanlegur til landsins í gær en
vegna hótananna var hætt við. - mmr
Forsetakosningar í Simbabve:
Tsvangirai kom
ekki heim í gær
MENNTAMÁL Kennara við Borga-
skóla hefur verið vikið frá störf-
um vegna óviðeigandi hegðunar
gagnvart stúlkum í 9. og 10. bekk
skólans. Brottvikningin tók gildi í
byrjun mars.
Kvörtuðu nemendurnir undan
óþægilegri hegðun kennarans
gagnvart þeim og hafði hann
meðal annars mynd af stúlku sem
hann kenndi á skjáhvílu í tölvunni
sinni.
Í bréfi sem Inga Þ. Halldórs-
dóttir, skólastjóri Borgaskóla, rit-
aði foreldrum barna við skólann
segir að málið hafi fyrst komið á
borð umsjónakennara 11. janúar
síðastliðinn. Var þá rætt við kenn-
arann og hann beðinn að breyta
hegðun sinni en einnig var sál-
fræðingi skólans og fleirum greint
frá málinu.
„Tíminn sem líður frá því þegar
fyrstu stúlkurnar sögðu umsjón-
arkennara sínum frá líðan sinni til
þess tíma er annað mál kemur upp
er of langur,“ segir í bréfi skóla-
stjórans. Þann tíma hefði kennar-
inn fengið til að breyta hegðun
sinni en réttum mánuði síðar hafi
móðir stúlku í 10. bekk komið með
dóttur sinni til fundar við umsjón-
arkennara vegna atviks í lok
kennslustundar vikunni áður. Í
bréfinu segir að stúlkan hafi þegið
viðtöl við sálfræðing skólans.
Einnig hafi málið verið kynnt í
ráðum skólans og reynt að finna
leiðir til úrbóta.
Í bréfi skólastjórans segir að
málið hafi verið þolendum mjög
erfitt og að málsmeðferð hafi
tekið lengri tíma en allir aðilar
vildu. „Engin fordæmi eru til á
Menntasviði um mál af þessu tagi
og því er enginn ferill til að fara
eftir við málsmeðferð. Það ásamt
töfum við athugun á málinu varð
til þess að málið dróst úr hömlu.“
Þá segir að í kjölfar málsins
hafi sviðsstjóri Menntasviðs
ákveðið að ferill verði mótaður
hjá sviðinu ef mál af þessu tagi
koma upp í framtíðinni. Ragnar
Þorsteinsson, sviðsstjóri segir þá
vinnu í bígerð og verið sé að
mynda starfshóp sem í munu sitja
fulltrúar Menntasviðs, barna-
verndar Reykjavíkur, þjónustu-
miðstöðvanna í Reykjavík og full-
trúi skólastjóra. „Þessi vinna
hefst í sumar undir stjórn lög-
fræðings Menntasviðs og verður
vonandi unnin hratt og örugglega
þannig að henni megi ljúka í ágúst
eða september,“ segir Ragnar.
Inga Þ. Halldórsdóttir skóla-
stjóri segir málinu lokið og að
hún viti ekki annað en að það sé í
fullri sátt. Kennarinn hafi ekki
verið kærður vegna málsins.
olav@frettabladid.is
Kennari sýndi af sér
óviðeigandi hegðun
Kennara við Borgaskóla hefur verið vikið frá störfum vegna óviðunandi hegð-
unar gagnvart stúlkum í skólanum. Engin fordæmi eru fyrir málinu og því eng-
inn ferill til að fara eftir. Stefnt er að því að starfshópur skili tillögum í haust.
FRÁ BORGASKÓLA Nemendur við skólann kvörtuðu undan óþægilegri hegðun
kennara. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NOREGUR Axel Stoltenberg, sonur
Jens Stoltenbergs, forsætisráð-
herra Noregs, er
sakaður um að
hafa ráðist á nema
sem var að
dimitera með
félögum sínum,
eins og hann
sjálfur var að gera.
Hóparnir höfðu
lagt rútum sínum
við Fornebu-
flugvöll við Ósló
þegar meint árás átti sér stað.
Stoltenberg neitar ásökuninni.
Dimissjón stendur yfir í Noregi
þessa dagana og aka stúdentar um
í fagurlega skreyttum rútum og
skemmta sér. Á norskum vefmiðl-
um kemur fram að einn stúdenta-
hópurinn haldi því fram að sonur
forsætisráðherrans hafi ráðist á
rútu og lagt hana í rúst. Málið er
til rannsóknar. - ghs
Sonur Stoltenbergs:
Ásakaður um
árás á nema
JENS
STOLTENBERG
Engin fordæmi eru til á
Menntasviði um mál af
þessu tagi og því er enginn ferill
til að fara eftir við málsmeðferð.
INGA Þ, HALLDÓRSSDÓTTIR
SKÓLASTJÓRI BORGASKÓLA
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Bassel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
14°
12°
7°
12°
14°
14°
17°
11°
18°
23°
28°
16°
21°
19°
33°
19°
15°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt
um allt land
MIÐVIKUDAGUR
Austlæg eða
norðaustlæg átt
8
7
7
9
9
9 9 10 9
5
6
7
6
7 8
8
8
9
8
10
6
4
5
4
5
2
2
3
4
2
3
2
MILT EN SKÝJAÐ
á öllu landinu
með rigningu eða
skúrum norðan til.
Styttir upp í kvöld
og nótt, hægur
vindur um allt land
og hiti á bilinu 6-10
stig.
Elín Björk
Jónsdóttir
Veður-
fræðingur
FÉLAGSMÁL Anna Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar á
Landspítalanum, var í gær kjörin
nýr formaður Rauða kross Íslands.
Hún tekur við af
Ómari H. Krist-
mundssyni, sem
var formaður
síðastliðin tvö ár.
„Ég hef sérstak-
an áhuga á því að
efla starf Rauða
krossins með ungu
fólki sem hefur
flust til landsins,“
segir Anna. Hún segist ekki hafa
mótað nýjar áherslur, en farið
verði yfir stöðuna með nýrri stjórn
á næstunni.
Anna hefur setið í stjórn RKÍ frá
2002, og verið varaformaður frá
2006. - bj
Nýr formaður Rauða krossins:
Anna Stefáns-
dóttir kjörin
ANNA STEFÁNS-
DÓTTIR
GENGIÐ 16.05.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
147,7172
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
73,88 74,24
143,94 144,64
114,22 114,86
15,307 15,397
14,518 14,604
12,224 12,296
0,7047 0,7089
119,44 120,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR