Fréttablaðið - 18.05.2008, Síða 24

Fréttablaðið - 18.05.2008, Síða 24
MENNING 6 K arrierebar er kaffihús/ bar/ veitingastaður á Vesterbro í Kaup- mannahöfn, á torginu sem nefnt er eftir kjöti, Flæsketorvet. Barinn er umkringd- ur kjötverkunarhúsnæði þar sem stærðarinnar vörubílar eiga afdrep milli kjötflutninga. Barinn opnaði snemma árs og er hugar- fóstur systkinanna Jeppes og Lærke Hein. Jeppe er danskur listamaður sem er þekktur á heimsvísu og systir hans Lærke hafði lengi unnið í veitinga- og næturlífsbransanum í Kaup- mannahöfn. Að sögn Lærkes laust hugmyndinni niður í kollinn á þeim samstundis. „Við vildum safna saman listamönnum á heimsklassa og af öllum listsvið- um og fengum frábær viðbrögð. Allir sem tóku þátt hjálpuðu til við að móta barinn með hugmyndum og gagnrýni,“ útskýrir hún. „Í raun er allt, sérhver hlutur, allt frá borðunum til lampanna, til krananna á barnum hluti af lista- verki. En Karriere er allt öðruvísi en listasafn eða gallerí, hér er list- ina að finna á stað þar sem fólk hittist yfir mat, kokkteil eða dans. Verkin deila rýminu með okkur öllum, verða hluti af upplifun okkar og svo er jafnvel hægt að sitja á þeim.“ Á Karrierebar er að finna verk eftir 32 listamenn og eru þau meðal annars hluti af innrétting- unum. Karlaklósettið er til dæmis eftir Norðmanninn Gardar Heide Einarsson, lamparnir eftir Ólaf Elíasson og skjólveggurinn úti er eftir Bandaríkjamanninn Dan Graham. Sjálft nafnið á barnum og skiltið er listaverk eftir Michael Elmgreen og Ingvar Dragset og fjallar um hvernig vinskapur og óformleg félagstengsl nýtast á framabrautinni og að barir séu í raun besta „ tengslanetið“ sem til er. Einnig stendur Karrierebar fyrir útgáfu mánaðarlegs lista- dagblaðs sem kallast einfaldlega Karriere og fjallar um þá lista- menn sem sýna hverju sinni í rým- inu og viðburði tengda barnum. Karrierebar er að finna á Flæsketorvet 57- 67, DK 1711 Kaupmannahöfn. FRAMAGJARN bar Systkinin Jeppe og Lærke Hein reka barinn „Karri- ere“ í kjötverkunarhverfi Kaupmannahafnar en stað- urinn er heilt listakonsept sem skartar meðal annars verkum eftir Ólaf Elíasson. MYNDLIST ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON Sucksass eftir ítalsku listakonuna Monica Bonvicini ( f. 1965) Í fjarska virðist orðið „ success“ standa á hálsfestinni sem allir þjónar á Karrierebar bera um hálsinn. Orðið sucksass er hins vegar mun meira ögrandi og má skilja bæði sem skipun eða beiðni. Verk Bonvicini eru djörf og beinskeytt og einkennast af kynlífi, völdum, tungumáli og arkitektúr og hún hefur meðal annars sýnt verk sem fjalla um sadó- masó kynlíf og spurningalista sem hún sendi til verkamanna og spurði til dæmis: „Hvað finnst konunni þinni um hrjúfar hendur þínar? “ Fountain eftir ítalska listamanninn Massimo Bartolini ( f. 1962) Vaskur í miðjum barnum þar sem vatnið spýtist upp úr niðurfallinu í stað þess að renna úr krananum. Bartolini er upptekinn af vísindum og arkitektúr barokktímabilsins sem hann blandar við nútímalegan skilning á rökleysu og því afstæða. Dividing Wall eftir bandaríska listamanninn Dan Graham ( f. 1942) Graham hefur lengi fengist við skilrúm í verkum sínum, meðal annars í vídeóverkum frá áttunda áratugnum þar sem hann skoðar hvernig skilrúm bæta samskipti frekar en að hindra þau. Á Karrierebar er skilrúmið gert úr gegnsæju gleri, speglum og stáli. Sumstaðar er hægt að heyra í gegnum skilrrúmið og sjá í gegn- um önnur en allstaðar bregður fyrir spegilmynd af þér sjálfum. The Mona Lisa Toaster eftir danska listamanninn Kristoffer Akselbo ( f.1975) allt brauð sem er ristað á Karrierebar er hluti af listaverki Askselbos þar sem sjálf Móna Lísa er brennd á brauðið sem er borið fram á morgnana og í hádeginu. Verk da Vincis hefur verið fjöldaframleitt og birtist til dæmis á póstkortum, púslu- spilum og bolum. Hér vísar Akselbo til popp-listar í anda Warhols en með brauðristinni vildi hann koma með eitthvað stórfenglegt inn í daglegt líf hins almenna neytanda. Þjóðmenningarhúsið – The Culture House National Centre for Cultural Heritage Hverfi sgötu 15, 101 Reykjavík Sími 545 1400, www.thjodmenning.is Sýningar - leiðsögn - verslun Opið daglega kl. 11.00 – 17.00 Leiðsögn án endurgjalds í boði fyrir skólahópa. Leiðsögn á ensku um handritasýninguna kl. 15.30 á mánu dögum og föstudögum. Veitingar á virkum dögum. Myndlistarsýning Húberts Nóa í verslun. Handan um höf – Helgi Hálfdanarson Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir Ferðalok – Jónas Hallgrímsson 1807–1845 Surtsey – jörð úr ægi SÝNINGAR Á ÖLLUM HÆÐUM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.