Fréttablaðið - 18.05.2008, Síða 36
ATVINNA
18. maí 2008 SUNNUDAGUR180
Markaðsstjóri í fjölbreytilegu
og alþjóðlegu umhverfi
Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. óskar eftir að ráða kraftmikinn og
áhugasaman einstakling í starf markaðsstjóra. Um mjög skemmtilegt
og spennandi starf er að ræða í fjölbreytilegu og alþjóðlegu umhverfi.
Starfssvið:
• Gerð markaðs- og kynningaráætlana
• Stefnumótandi vinna við markaðs- og kynningarmál
• Stýring kynningarstarfsemi
• Umsjón og greining markaðsrannsókna
• Auglýsingasala
Menntunar-og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í markaðs- eða viðskiptafræðum
• Reynsla á sviði markaðsmála æskileg
• Hugmyndaauðgi og frumkvæði í starfi
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi samskiptahæfileikar
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar ohf. á 3. hæð Flugstöðvarinnar. Einnig er hægt að sækja
um á heimasíðu Flugstöðvarinnar www.airport.is.
Umsóknum skal skila fyrir 31. maí nk.
Upplýsingar um starfið veitir starfsþróunarsvið í síma 425 0427
fyrir hádegi. Tölvupóstfang: soley@fle.airport.is
Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. er
opinbert hlutafélag í eigu ríkisins.
Félagið var stofnað árið 2000 og
annast eignarhald, rekstur, við-
hald og uppbyggingu Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar, auk þess að
tryggja flugfarþegum ávallt góða
þjónustu í flugstöðinni. Markmið
félagsins er að stuðla að eftir-
sóttu, öruggu og metnaðarfullu
starfsumhverfi.
VEFSTJÓRI
Samgönguráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið leita að kröftugum einstaklingi í fullt starf í stöðu
tæknilegs vefstjóra fyrir bæði ráðuneytin sameiginlega. Notast er við vefumsjónarkerfi ð Eplicu. Ráðningin er
tímabundin til reynslu í eitt ár.
Helstu verkefni:
• Almennt viðhald og þróun á vefsvæðum ráðuneytanna, þar með talið innri vefi r og tímabundin
vefsvæði vegna tilfallandi verkefna.
• Innsetning á efni og aðstoð við ritstjóra um framsetningu á efni. Vefstjóri annast ekki samningu efnis
fyrir vefi nn.
• Verkefni sem tengjast rafrænni stjórnsýslu, meðal annars sem snúa að framkvæmd stefnu stjórnvalda
um íslenska upplýsingasamfélagið.
• Stjórn verkefna og samskipta við hugbúnaðarhús vegna þróunar á vefsvæðum ráðuneytanna.
• Sjá til þess að vefsvæði ráðuneytanna mæti markmiðum stjórnvalda um rafræna þjónustu.
• Sjá til þess að vefsvæði ráðuneytanna mæti kröfum um aðgengi að opinberum vefjum og uppfylli
aðgengisstefnu fyrir stjórnarráðsvefi .
• Þátttaka í vinnu samráðshóps ráðuneytanna um vefmál.
Hæfniskröfur:
• Kunnátta í notkun vefumsjónarkerfa og reynsla af umsjón vefsvæða er nauðsynleg. Þekking á vefum
sjónarkerfi nu Eplica er kostur.
• Æskilegt er að vefstjóri hafi færni í notkun myndvinnsluforrita.
• Skipulögð vinnubrögð, nákvæmni, dugnaður og góður skilningur á vefumhverfi og því hvernig
markmiðum góðs og aðgengilegs vefsvæðis verður best náð.
• Færni í íslensku er kostur.
• Frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
Í samræmi við ályktun Alþingis um störf án staðsetningar eru íbúar á landsbyggðinni sérstaklega hvattir til að
sækja um starfi ð. Vakin er athygli á því að starfi ð stendur opið jafnt konum og körlum. Um launakjör fer
samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags starfsmanna Stjórnarráðsins.
Nánari upplýsingar veita Böðvar Héðinsson, skrifstofustjóri þjónustu- og mannauðssviðs, og Margrét
Erlendsdóttir, deildarstjóri á stjórnsýslu- og stefnumótunarsviði, í félags- og tryggingamálaráðuneytinu í
síma 545 8100.
Skrifl egar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist með tölvupósti til postur@fel.stjr.is
eða til félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, fyrir 2. júní 2008.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Stöður vaktmanna lausar
Lausar eru til umsóknar stöður vaktmanna í
Gistiskýlinu. Bæði er um að ræða sumar-
afl eysingar og fasta stöðu. Uppsetning vakta:
Unnið í eina viku og svo frí í eina viku.
Upplýsingar gefur Þórir Haraldsson dagskrárstjóri
í síma 5611000 og um netfangið
thorir@samhjalp.is. Einnig er hægt að senda
fyrirspurn og umsókn á netfang framkvæmda-
stjóra, heidar@samhjalp.is.
Sjá einnig uppl. á www.samhjalp.is
Framkvæmda- og eignasvið
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar óskar eftir
að ráða verkefnastjóra við fasteignaumsýslu til starfa á
skrifstofu gatna- og eignaumsýslu sviðsins.
Starfssvið
• Verkefnastýring og umsjón verkefna á sviði fasteigna-
umsýslu.
• Áætlanagerð varðandi rekstur og viðhald, gerð leigu
samninga, og endurleigu húsnæðis.
• Umsjón með kaupum og sölu eigna, matsgerðir, yfi rferð
eignaskiptasamninga og almenn vinna vegna skráningar
eigna.
• Þátttaka í vinnuhópum og samskipti við önnur svið
borgarinnar.
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólanám á sviði tæknifræði, verkfræði eða bygginga
fræði.
• Skipulagsfærni og hæfi leikar til að vinna sjálfstætt.
• Almenn ökuréttindi.
Á skrifstofu gatna- og eignaumsýslu starfa um 25 starfs-
menn á skrifstofu og um 130 starfsmenn á hverfastöðvum.
Skrifstofa gatna- og eignaumsýslu sér meðal annars um
viðhald og rekstur gatna og gönguleiða, opinna svæða og
fasteigna Reykjavíkurborgar.
Umsóknareyðublöð er að fi nna á vef Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is undir” Störf í boði”. Áhugasamir sendi
umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
fyrir 26. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Óli Jón Hertervig, deildarstjóri
eignaumsýsludeildar, oli.jon.hertervig@reykjavik.is og í
síma 411 1111.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar Borgartúni
10-12 www.reykjavik.is/fer
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.
is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 411 1111 færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Verkefnastjóri
Starfsmaður
Í spilliefnamóttöku
Starfsmaður óskast til starfa í spilliefna-
móttöku Hringrásar.
Upplýsingar um starfi ð gefur Jóhann Karl Sigurðsson
s: 8997979 eða johannkarl@hringras.is
Hringrás hf. hefur rekið spilliefnamóttöku sl. 3 ár þar sem tekið er á móti öllum
þeim efnum sem fl okkast sem spilliefni. Hringrás hefur þjónustusamning við
fjölmörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög um spilliefni. Í spilliefnamóttöku
Hringrásar eru efnin fl okkuð og send til förgunar til viðurkenndra aðila hér heima
og erlendis.
Hringrás hf. • Klettagörðum 9 • 104 Reykjajvík
sími 5501900