Fréttablaðið - 18.05.2008, Page 58

Fréttablaðið - 18.05.2008, Page 58
ATVINNA 18. maí 2008 SUNNUDAGUR28 Tannsmíði er vanda- samt starf því tann- smiðum er ætlað að endurgera þá líkams- hluta sem stundum eru nefndir perlur andlits- ins. Tannsmíði er löggilt iðn- grein, en til að öðlast rétt- indi sem tannsmiður er bæði hægt að læra fagið á Íslandi jafnt og erlend- is. Tannsmiðaskóli Íslands er starfræktur við Vatns- mýrarveg í Reykjavík og eru þrír nemendur teknir inn ár hvert í skólann. Inntökuskilyrði í skól- ann eru að nemandi hafi lokið grunnskólaprófi og hafi jafngildi stúdents- prófs í ensku og norð- urlandamáli, auk undir- stöðuþekkingar í efna- fræði. Námið tekur fjögur ár sem skiptast í bóklegan og verklegan hluta. Fyrstu þrjú árin fer kennsla fram í skólanum, en á lokaárinu fara nemendur í starfs- þjálfun á tannsmíðaverk- stæði hérlendis eða er- lendis. Hægt er að skipta tann- smíði í plast-, málm- og postulínsvinnu. Plast- vinna felst í gerð heil- góma, partgóma, bráða- birgðaparta, fóðrana og tannréttinga. Málmvin- an felst í gerð einstakra krónu og brúarsmíði, upp- byggingar og stálgrindur. Postulínsvinna er fólgin í að leggja postulín á und- irstöðu til að skapa endan- legt form og velja lit á þá tönn sem við er átt. Tannsmiðastarfið krefst ýmissa tækja og verkfæra sem bæði eru sígild og ný- tískuleg. Tannsmiður þarf að hafa listrænt auga fyrir litum og litbrigðum, en einnig útsjónarsemi og til- finningu fyrir heildarsvip þegar kemur að uppstill- ingu á gervitönnum. Því má segja að tannsmíði sé á mörkum þess að vera iðn- grein og listgrein, en þeir sem læra vilja tannsmíði þurfa líka að hafa fínt handbragð bestu iðnaðar- manna. Tannsmíði er því iðngrein fyrir laghenta, þolinmóða og vandvirka. Umsóknarfrestur í Tannsmiðaskóla Íslands er til 1. júní. Með umsókn þarf að fylgja staðfest afrit af prófskírteinum, læknisvottorð um almennt heilsufar og vottorð um óbrenglað litskyggni. Heimild: Heimasíða Tannsmiðafé- lags Íslands. Tannsmiðir smíða gervigóma, lausa tannhluta, postulínsbrýr, stakar krónur og implönt, en að baki slíkra verka liggur mikil og vanda- söm vinna. Háskólinn á Bifröst býður upp á nýja þjón- ustu við fyrirtæki í leit að starfsfólki og nemendur í leit að starfi. Þjónustan ber heitið Framatorgið og hóf nýlega starfsemi sína. Atvinnuþjónustan Framat- orgið hóf nýlega starfsemi sína hjá Háskólanum á Bi- föst. Þetta er vettvangur á vefnum þar sem fyrirtæki og nemendur Háskólans á Bifröst mætast. Þar býðst fyrirtækjum að birta starfs- auglýsingar sér að kostnað- arlausu og fá um leið beint aðgengi að nemendum skól- ans. Atvinnuauglýsingarn- ar eru eingöngu aðgengileg- ar nemendum Háskólans á Bifröst sem eru innskráð- ir á vef skólans. Einnig er mögulegt fyrir fyrirtæki að óska eftir samstarfi við nemendur á þessum vett- vangi vegna misserisverk- efna eða lokaverkefna að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Bifröst. Sjá www.bifrost.is . -rh Framatorg opnað Framtíðarstarfið fyrir nemendur Bifrastar gæti leynst á nýstofnuðu framatorgi skólans. HVERNIG VERÐUR MAÐUR TANNSMIÐUR? Perlur andlitsins 0 Lyf skipta sköpum! „Lyf eru nauðsyn í nútímasamfélagi!” „Í starfi mínu er ég daglega minntur á hve lífið er mikið kraftaverk og að það eru forréttindi að fá að vinna við að lækna og líkna. Vönduð og vel rannsökuð lyf skipta þar oft sköpum, bæði þau lyf sem byggja á gömlum og traustum þekkingargrunni og hin sem eru þróuð á grunni nútímaþekkingar í lyfjafræði og vísindalegri læknisfræði. Án lyfja hefði framþróun heilbrigðismála orðið með öðrum hætti. Mannkynið stæði verr. Að baki lyfjaframleiðslu liggur gífurleg vísinda- vinna til að tryggja að lyfin skili sem bestri verkun með fyrirsjáanlegum hætti. Lyf eru nauðsyn í nútíma þjóðfélögum og ein meginstoð öflugs heilbrigðiskerfis.“ Reynir Tómas Geirsson, prófessor/yfirlæknir, forstöðumaður fræðasviðs, Kvennasviði LSH. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n – ódýrari valkostur Vantar þig auka- pening? Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu fólki til að bera út blöð milli 6 og 7 á morgnana. Um er að ræða holla og hressandi útiveru, annars vegar á virkum dögum og hins vegar um helgar. Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu þig og fáðu borgað fyrir það. Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt að sækja um á www.posthusid.is Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is Pósthúsið er ungt og öflugt dreifingarfyrirtæki á sviði blaða- og vörudreifingar. Hjá Pósthúsinu starfa um sjöhundruð manns að uppbyggingu á fjölbreyttum og skemmtilegum vettvangi. H im in n o g h a f / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.