Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 85
SUNNUDAGUR 18. maí 2008 25
Hópur bandarískra hermanna í
varðstöð í Írak lendir í því að einn
úr hópnum er myrtur. Eftir að hafa
ráðist inn á heimili í leit að söku-
dólgum snúa hinir svörtu sauðir
hópsins aftur þangað til að nauðga
15 ára stelpunni sem býr þar.
Íraksstríðið er umfjöllunarefni
nýjustu kvikmyndar Brians De
Palma, meistarans sem gerði The
Untouchables og Scarface. Mynd-
inni svipar að einhverju leyti til
fyrri myndar hans, Casualties of
War, þar sem bandarískur hermað-
ur í Víetnamsstríðinu verður vitni
að nauðgun sem fer að naga sam-
visku hans. Redacted er innblásin
af sönnum atburðum, um nauðgun
bandarískra hermanna í Írak, en er
að öðru leyti algjörlega skálduð.
Redacted sýnir hins vegar
atburðarásina líkt og hún hafi
virkilega gerst, með því að vera
algjörlega byggð upp af upptökum
sem hafa „fundist“, hvort sem þær
koma úr myndbandsupptökuvélum
eða t.d. eftirlitsmyndavélum. Sýnd-
ar eru klippur úr sjónvarpsfréttum
og af vefnum, sem koma þá frá
bloggurum, eiginkonum hermann-
anna eða jafnvel hryðjuverka-
mönnunum sjálfum. Eitthvað til að
íhuga hvernig sannleikurinn getur
týnst í skoðanaflórunni. Að lokum
er sýnt frá listrænni, tilbúinni
franskri stuttmynd um daglegt líf
hermannanna.
En þrátt fyrir að fjalla um eld-
fimt málefni á tilraunakenndan
hátt, tekst Redacted illa að við-
halda dramatísku yfirbragði. Per-
sónur myndarinnar skortir dýpt,
og talsmáti þeirra hljómar oft ótrú-
legur og þaulskrifaður, andstætt
við raunveruleikatilfinninguna
sem De Palma vill ná fram. Leikar-
ar eru heldur ekki trúverðugir,
koma ýktir út og virðast vera að
koma fram á sviði. Sé þó leitað að
ljósum punktum má nefna að ein-
staka senum tekst að vera spennu-
þrungnar.
Ofan á það virðist Redacted
segja lítið nýtt um ástandið í Írak
þótt andagift De Palma sé vissu-
lega til staðar. Í lokin reynir hann
svo að hreyfa við fólki með raun-
verulegum myndum af blóðbaðinu,
sem tekst, en minnir í leiðinni á
hversu miklu átakanlegri myndin
hefði getað orðið.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Óhugnaður í Írak
KVIKMYNDIR
Redacted
Leikstjóri: Brian De Palma.
★★
Misheppnuð tilraun De Palma til að
varpa nýju ljósi á ástandið í Írak.
Kynningarfundur um umhverfi smál
Umhverfi sdagur iðnfyrirtækjanna Norðuráls Grundartanga ehf.
og Íslenska járnblendifélagsins ehf. verður haldinn miðvikudaginn
21. maí kl. 16:00 til 20:30 á Hótel Glymi á Hvalfjarðarströnd.
Starfsmenn fyrirtækjanna kynna árangur í umhverfi smálum og niðurstöður
umhverfi svöktunar ársins 2007. Jafnframt verður starfsemi fyrirtækjanna kynnt.
Áhugafólk er hvatt til að koma á fundinn.
Óskað er eftir sjálfboðaliðum til þátttöku í fjölþjóðlegri rannsókn á nýju lyfi við ofvirkri þvagblöðru.
Bakhjarl rannsóknarinnar er lyfjafyrirtækið Astellas Pharma Europe B.V. Vísindasiðanefnd, Persónuvernd
og Lyfjastofnun hafa gefi ð leyfi fyrir rannsókninni. Rannsóknin fer fram á göngudeild þvagfæra-
rannsókna Landspítalans við Hringbraut. Ábyrgðarlæknir rannsóknarinnar á Íslandi er Guðmundur
Geirsson þvagfæraskurðlæknir, Baldvin Þ. Kristjánsson þvagfæraskurðlæknir er meðrannsakandi.
Leitað er eftir þátttöku karla og kvenna 18 ára og eldri, sem hafa verið með einkenni ofvirkrar þvagblöðru
í að minnsta kosti 3 mánuði. Einkennin eru: tíð og bráð þvaglát (8 sinnum eða oftar/sólarhring) með eða
án þvagleka
Megintilgangur rannsóknarinnar er að athuga verkun, öryggi og þol nýja lyfsins samanborið við annað
virkt lyf og lyfl eysu.
Á heimsvísu verða þátttakendur 2160, en á Íslandi verða þeir 12. Heildarþátttökutími er 18 vikur.
Sjálfur meðferðartíminn er 14 vikur en fylgst er með þátttakendum í fjórar vikur til viðbótar. Heimsóknir
til læknisins verða 5-6.
Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins bæði þekktum og
óþekktum. Ekki er hægt að tryggja árangur af lyfjameðferðinni en niðurstöður rannsóknarinnar geta leitt
til framfara í meðferð á ofvirkri þvagblöðru.
Ef þú hefur áhuga á að fá frekari upplýsingar um rannsóknina geturðu sent tölvupóst á netfangið
sigrunrs@landspitali.is eða hringt í Sigrúnu Rósu Steindórsdóttur hjúkrunarfræðing í síma 543 7100
milli kl. 8-16.
Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa á engan hátt skuldbundið sig til þátttöku í
rannsókninni, jafnframt skal tekið fram að þátttakendum er frjálst að hætta þátttöku hvenær sem er á
rannsóknartímabilinu.