Fréttablaðið - 18.05.2008, Page 88
> Fjöldi leikja í dag
Fjórir leikir fara fram í Landsbankadeild kvenna í dag
og þar ber hæst viðureign Breiðabliks og Keflavíkur í
Kópavoginum. Keflavíkurstúlkur stóðu í KR-stúlkum og
geta svo sannarlega gert
toppliðunum skráveifu.
Valur mætir HK/Víking
í Egilshöll, Fylkir tekur
á móti Aftureldingu og
Stjarnan á móti Fjölni. Þá fer
fram heil umferð í 1. deild
karla þar sem Víkingar taka
meðal annars á móti KA.
28 18. maí 2008 SUNNUDAGUR
sport@
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta hefur orðið fyrir
mikilli blóðtöku en Logi Geirsson
verður ekki með í undankeppni
Ólympíuleikanna og undankeppni
HM. Þetta kom í ljós á föstudag
en Logi er með rifinn magavöðva
eftir samstuð við liðsfélaga sinn
Florian Kehrmann. „Ég hélt ég
myndi enda í hjólastól,“ sagði
Logi um höggið.
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari fékk fréttirnar á
föstudag. „Ég er að skoða hvaða
möguleika við eigum og við
tökum ákvörðun fljótlega. Við
völdum stóran hóp í verkefnin,
meðal annars vegna þessara
meiðsla,“ sagði Guðmundur. Logi
meiddist í síðustu viku en eðli
meiðslanna voru óljós þar til á
föstudag.
Jalieski Garcia gaf ekki kost á
sér í landsliðið og því eru
rétthentar skyttur af skornum
skammti. „Raunverulega gaf
hann mér afsvar á sínum tíma en
það er ekki útilokað að ég ræði
við hann aftur.“
Arnór Atlason hefur einnig
spilað skyttustöðuna en hann
kemur beint til móts við landslið-
ið á Spáni þar sem hann spilar nú
til úrslita með GOG um titilinn í
Danmörku. „Við skulum vona að
hann komi heill út úr þeim. Þetta
er rosalegt hvernig þeir spila og
skemma fyrir undirbúningi
okkar,“ sagði áhyggjufullur
landsliðsþjálfari að lokum. - hþh
Logi Geirsson er meiddur:
Mikið áfall fyrir
landslið Íslands
LOGI Er hér í meðferð á EM í janúar, rétt
eins og núna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Logi Ólafsson vonast eftir því að fjórir sterkir
leikmenn sem hafa átt við meiðsli að stríða
geti leikið með KR á næstunni. Þetta
eru markmaðurinn Stefán Logi
Magnússon, Pétur Hafliði Marteins-
son, Grétar Ólafur Hjartarson og Atli
Jóhannsson.
„Pétur æfði á föstudag
og er byrjaður að hlaupa
of æfa með bolta. Það er
það mesta sem hann
hefur gert í langan tíma.
Svo sjáum við til hvort
eftirköst af þessu verða,“
sagði Logi en ýmislegt
hefur plagað Pétur. Meðal ann-
ars ökklameiðsli auk nára- og
bakmeiðsla. „Hann hefur verið
í stífum meðferðum.“
Grétar Ólafur æfði í fyrsta skipti á föstudag
þar sem hann tók þátt í reitabolta. „Það fer
stigvaxandi hversu mikið hann treystir sér í.
Hann finnur ekkert fyrir þessi þegar hann
hleypur og hann er að styrkja sig mikið,“
sagði Logi en Grétar viðbeinsbrotnaði í leik
gegn Þór í Lengjubikarnum.
Atli var á bekknum gegn Grindavík í fyrstu
umferð en kom ekki við sögu þar. Hann
var ekki í hópnum gegn Fjölni. „Hann
var aðeins stífur eftir að hafa leikið einn
hálfleik með U23 ára liðinu um daginn
þar sem hann skoraði meðal annars
stórbrotið mark með hjólhestaspyrnu.
Hann var í hópnum í fyrsta leiknum og
er allur að koma til. Hann hefur lagt
gríðarlega mikið á sig í aukaæfing-
um,“ sagði Logi en Atli var meiddur
í nára.
Stefán Logi tognaði á liðbandi á ökkla og
verður frá í nokkrar vikur til viðbótar. „Hann
hefur gengið með hækjur
en það eru um tvær vikur í
hann. Endurkoma þessara
manna hefur gríðarlega
mikið að segja fyrir okkar
hóp. Þeir hafa verið inni í
myndinni sem mjög
sterkir leikmenn og
þeir auka styrk-
leika hópsins
mikið. Þeir bæta
allt,“ sagði Logi
sem horfir þó
til betri vegar.
Næsti leikur KR er
gegn Breiðablik á
þriðjudag.
FJÓRIR LEIKMENN KR ERU Á BATAVEGI: STYTTIST Í LYKILMENN SEM STYRKJA HÓPINN MIKIÐ
Það horfir til betri vegar hjá fjórmenningunum
KÖRFUBOLTI Snæfell hefur gengið frá ráðningu á
þjálfara fyrir næsta tímabil. Sá heitir Jordanco
Davitkov sem lætur af starfi sem landsliðsþjálf-
ari Makedóníu til að flytja í Hólminn. Snæfell
ræddi við Sigurð Ingimundarson, þjálfara Kefla-
víkur, og kannaði áhuga hans á starfinu.
„Við ræddum við Sigurð til að heyra hug
hans en það fór ekki mikið lengra en það,“
sagði Sæþór H. Þorbergsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Snæfells. Frá-
farandi þjálfari, Jeff Kotila, aðstoð-
aði Snæfell við leitina að nýjum þjálf-
ara sem miklar vonir eru bundnar
við.
„Við horfum fram á veginn og við ætlum
okkur á hærra plan,“ sagði Sæþór. „Hann
vildi prófa einhverja nýja hluti og það er
ánægjulegt að hafa klárað þjálfaramál
okkar.“
Davitkov spilaði í tuttugu ár og vann
fjölda titla en hann spilaði í sautján ár með
Rabotnicki, sterkasta liði Makedóníu. Hann
var einnig fyrirliði landsliðsins. Þjálfaraferill
hans hófst árið 1999 þegar hann var spilandi þjálf-
ari hjá Nikol Fert-Gosti. Hann vann tvöfalt sitt
fyrsta ár með því og þjálfaði síðan nokkur lið og
náði góðum árangri en vann enga titla.
Hann var svo ráðinn þjálfari Rabotn-
icki árið 2004 og vann aftur tvöfalt
þrjú ár í röð með sínu gamla félagi
og var kosinn þjálfari ársins öll
árin. Hann var yfirþjálfari lands-
liðs Makedóníu frá 2001 og vann
fimmtán leiki en tapaði tíu með
því í undankeppni Evrópúmóts-
ins.
Justin Shouse er farinn frá
Snæfelli líkt og Anders Katholm.
Sæþór segir að vilji sé hjá báðum
aðilum að Slobodan Subasic komi
aftur en það er ekki frágengið. „Við
ætlum að bæta við okkur Evrópumanni
og Bandaríkjamanni fyrir næsta tíma-
bil,“ sagði Sæþór. - hþh
Snæfell ræddi við Sigurð Ingimundarson en réð landsliðsþjálfara Makedóníu:
Reyndur þjálfari í Hólminn
HANDBOLTI Fjögurra liða úrslita-
keppni hefur verið komið á í efstu
deildum handboltans. Deildafyrir-
komulagið hefur verið umdeilt og
skiptar skoðanir eru um gildi
úrslitakeppninni. Hefur þá helst
verið gagnrýnt að það dragi úr
vægi deildakeppninnar.
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, segir það ekki
endilega vera. „Það verða bara
fjögur lið sem fá að koma í úrslita-
keppnina og það setur auðvitað
pressu á öll liðin. Spennan ætti því
að haldast og samkeppnin verður
til staðar. Það gerir það að verkum
að það verður hápunktur í lok
mótsins,“ sagði Einar.
Hann benti á að fyrirkomulagið
hafi reynst vel áður á Íslandi.
Hann segir einnig að þetta sé nú
bundið í lög og býst ekki við því að
breyting verði á þeim í bráð.
„Þessi reglugerð er nú komin í
fastan ramma og það er búið að
taka allan slaginn. Úrslitakeppnin
er það sem félögin kusu um, það
eru á endanum þau sem ráða.“
Stjórn HSÍ fær nú meiri völd en
lagabreyting þess efnis var sam-
þykkt. Þar með getur stjórnin
breytt reglugerðum en ekki lögum.
Þá var samþykkt að umspil fari
fram um laust sæti í efstu deild á
milli liðs í sjöunda sæti úrvals-
deildar og 2-4. sætis neðri deildar.
Guðmundur Ingvarsson var
endurkjörinn formaður. Hann
hlaut 38 atkvæði gegn 29 atkvæð-
um Hlyns Sigmarssonar en þetta
er í fyrsta sinn í tólf ár sem Guð-
mundur fær mótframboð. „Ég
háði enga kosningabaráttu, hvorki
á fundinum né áður. Mín verk voru
lögð á vogarskálirnar og ég er
ánægður með þann stuðning sem
mér er sýndur,“ sagði Guðmund-
ur.
Félögin fá mismunandi fjölda
atkvæða sem ræðst af iðkenda-
fjölda. Mest fá félög fjögur
atkvæði. Guðmundur vildi lítið tjá
sig um hvort þessi naumi sigur
vekti hann til hugsunar um það
hvort óánægja sé með störf hreyf-
ingarinnar. „Í svona embætti hugs-
ar maður iðulega hvort maður sé
að gera rétt eða ekki. Hlynur var
með aðrar áherslur en ég og þing-
heimur mat það svo að mín verk
væru nógu góð. Því fór sem fór,“
sagði Guðmundur sem situr nú
sitt síðasta ár sem formaður.
Hlynur var ómyrkur í máli eftir
þingið. „Ég hefði þurft að snúa
einu félagi, þá hefði þetta horft
öðruvísi við. Það er ekkert gaman
að tapa en ég fer sáttur frá borði.
En ég vissi að svona gæti farið og
það var erfitt að berjast gegn
þessu,“ sagði Hlynur sem grunar
menn í innsta hring HSÍ um að
hafa óhreint mjöl í pokahorninu.
„Það var ýmislegt reynt. Mér
finnst sárast í þessu hvernig ýmsir
aðilar unnu nokkuð óheiðarlega
gegn mér. Ýmis vinnubrögð fannst
mér ekki til sóma í þessari bar-
áttu,“ sagði Hlynur dulur. „Það er
í lagi að menn berjist á milli félaga
og komi sínu á framfæri til að fá
góða kosningu en aðrar aðferðir
hélt ég að þekktust ekki í þessu.
Þetta kemur úr innsta kjarna sam-
bandsins og það kemur mér á
óvart,“ sagði Hlynur sem segist
nú vera hættur afskiptum af hand-
bolta. hjalti@frettabladid.is
Úrslitakeppnin er komin til að vera
Umdeild úrslitakeppni hefur verið sett á laggirnar á ný og stjórn HSÍ er komin með meira vald en áður. Guð-
mundur Ingvarsson var naumlega endurkjörinn formaður en mótframbjóðandi hans gagnrýnir kjörið.
TAPAÐI SLAGNUM Hlynur Sigmarsson
var nálægt því að skáka sitjandi forseta
HSÍ til átján ára en hafði ekki erindi sem
erfiði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRAMKVÆMDASTJÓRINN OG FORMAÐURINN Einar Þorvarðarson og Guðmundur Ingvarsson á ársþinginu í gær. Hagnaður HSÍ
nam tæpum fjórum milljónum og er eigið fé sambandsins nú orðið jákvætt um 500 þúsund krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI