Fréttablaðið - 29.05.2008, Side 18
29. maí 2008 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Norðurheimsskautssvæðið
Ráðherrar frá ríkjunum
fimm sem eiga strandir að
Norður-Íshafi – Rússlandi,
Bandaríkjunum (Alaska),
Kanada, Danmörku/Græn-
landi og Noregi – eru nú
saman komnir í Ilulissat
á Grænlandi til að ræða
þann ágreining sem ríkir
um yfirráð yfir íshafinu og
hafsbotninum undir því.
Margt veldur því að þessi ágrein-
ingur hefur nú færzt í brenni depil
heimsstjórnmála. Meðal helztu
ástæðnanna er sú hraða bráðnun
sem á sér nú stað á norður-
skautsísnum og þau tækifæri sem
hún skapar á aðgengi að auðlind-
um á svæðinu – einkum og sér í
lagi jarðgasi og olíu – svo og á
opnun nýrra og styttri siglinga-
leiða milli Atlants- og Kyrrahafs.
Hagsmunakapphlaup
Þegar Rússar sendu rannsókna-
kafbáta niður á hafsbotn á norður-
pólnum í byrjun ágúst í fyrra og
stungu þar niður þjóðfána sínum
(úr títani, svo að hann þyldi þrýst-
inginn sem þarna er á 4,3 kíló-
metra dýpi) vaknaði athygli
umheimsins svo um munar fyrir
því hagsmunakapphlaupi sem á
sér stað um yfirráð og auðlindir á
þessu svæði.
Eins og Artúr Tsjilingarov,
rússneski leiðangursstjórinn,
hefur sjálfur bent á er þó ástæðu-
laust að gera of mikið úr þessari
táknrænu aðgerð. Þá skoðun
ítrekaði rússneski utanríkisráð-
herrann Sergei Lavrov er hann
mætti til ráðherrafundarins á
Grænlandi. Í fánaplöntuninni
fælist „engin krafa til yfirráða,“
sagði Lavrov og benti á að Haf-
réttarsáttmáli SÞ sæi fyrir regl-
um og ferlum til lausnar á ágrein-
ingi, „þar á meðal hvað varðar
landgrunnsréttindi“.
Rússar hafa enda lagt kröfu
sína um útvíkkuð lögsögumörk
umfram 200 mílna efnahagslög-
sögu með lögformlega kórréttum
hætti fyrir úrskurðarnefnd Haf-
réttarsáttmála SÞ um land-
grunnsmörk, sem fulltrúar 21
ríkis eiga sæti í. Kröfuna byggja
þeir á því að Lomonossov-
hryggurinn svonefndi, sem liggur
þvert yfir norðurpólinn á botni
Norður-Íshafs, sé jarðfræðilega
framlenging á landgrunni Rúss-
lands (Síberíu).
Sögulega má reyndar segja að
Rússar byggi kröfuna einnig á
tilkalli sem stjórn Sovétríkjanna
gerði árið 1924 til þess að lög-
sögumörk þeirra í Norður-Íshafi
teygðu sig frá ystu mörkum Rúss-
lands í vestri og austri norður
eftir lengdarbaugslínum alveg að
norðurpólnum, svipað og samið
var um milli þeirra ríkja sem
gerðu tilkall til yfirráða yfir
Suður skautslandinu á sama tíma
(lögsögusvæði þeirra afmarkast
af lengdarbaugslínum alla leið á
Suðurpólinn).
Rússar með „sterka stöðu“
„Rússland er í sterkustu stöð-
unni á norðurskautssvæðinu til
að verja hagsmuni sína og auka
áhrif sín þar,“ skrifar hermála-
fréttaritari rússnesku frétta-
stofunnar RIA-Novosti í skoðana-
pistli á vef fréttastofunnar á
dögunum. Í lok pistilsins tekur
hann fram að Rússar hafi „lang-
mestu hernaðargetuna á norður-
slóðum“. Hún sé „miklu meiri
en sú hernaðargeta sem nokk-
urt annað land heldur varanlega
úti“. Sé rétt að farið skapi þetta
grundvöll „sem ætti að tryggja
vernd hagsmuna okkar [Rússa]
á norðurslóðum, og verka sem
þungvæg rök fyrir því að við
færum út yfirráðasvæði
okkar“.
Í samræmi við reglur Haf-
réttar sáttmála SÞ hafa hin
strandríkin við Norður-Íshaf
einnig lagt fram kröfur um
útvíkkuð lögsögumörk, eða eru
að vinna að því að leggja slíkar
kröfur fram. Einkum á þetta við
um Kanada og Danmörku fyrir
hönd Grænlands, en Lomonossov-
hryggurinn nær einnig að strönd
Grænlands og Ellesmere-eyju
nyrst í Kanada. Bandaríkin, sem
á grundvelli þess að Alaska er
hluti af þeim eru líka að reyna
að tryggja sína hagsmuni í þess-
um slag, standa illa að vígi þar
sem Bandaríkjaþing hefur enn
ekki fullgilt Hafréttarsáttmál-
ann.
Miklar ófundnar lindir
Oft er vitnað til þess að Jarðvís-
indastofnun Bandaríkjanna hafi
látið það frá sér fara, að allt að
fjórðungur þeirra jarðgas- og
olíulinda sem enn hafa ekki
verið uppgötvaðar sé að finna í
Norður-Íshafi. Stofnunin vill
reyndar ekki kannast við að hafa
sagt þetta en fullyrðingin lifir
nú sínu eigin lífi í skýrslum,
greinum og fréttainnslögum
sem samin eru um „Kapp hlaupið
um norðurskautið“.
Sérfræðingar sem meðal ann-
ars er vitnað til í ítarlegri grein
um „Olíuæðið á norðurslóðum“
(The Arctic Oil Rush) í maíhefti
bandaríska tímaritsins Vanity
Fair segja að slíkar prósentutölur
yfir ófundnar olíulindir séu
alltaf skot út í loftið. Rétt sé þó
að umtalsverðar olíu- og gas-
lindir sé að finna á svæðinu.
Stærstur hluti þeirra sé innan
efnahagslögsögu Rússlands.
Svo lengi sem ísinn heldur
áfram að bráðna, tækninni
fleygir fram við að bora eftir
gasi og olíu við hinar erfiðu
aðstæður svo langt í norðri og
heimsmarkaðsverð á olíu heldur
áfram að hækka mun kapp-
hlaupið um að nýta þessar auð-
lindir norðurhjarans halda
áfram að harðna.
Snertir Ísland
Þetta „olíuæði á norðurslóðum“
gæti snert Ísland að minnsta
kosti á tvo vegu. Ef spár ganga
eftir um að umtalsverðar olíu-
lindir finnist undan óbyggðum
ströndum Norðaustur-Græn-
lands væru íslenzkar hafnir bezt
í stakk búnar að þjónusta þann
iðnað. Burtséð frá því hvort
nokkuð verður af áformum um
olíuhreinsunarstöð á Vest-
fjörðum.
Það sem myndi breyta enn
meiru fyrir Ísland í þessu sam-
hengi er ef siglingaleiðirnar
norður fyrir Evrasíu og Norður-
Ameríku skyldu opnast drjúgan
hluta ársins. Þá væri landið
gríðar vel í sveit sett til að hýsa
umskipunarhafnir fyrir vöru-
flutninga milli stórhafna norðan-
verðs Atlantshafs og stórhafna
norðanverðs Kyrrahafs.
Ef til vill myndi íslenzku efna-
hagslífi ekki veita af þeirri lyfti-
stöng, því bráðnun heimskauta-
íssins og aðrar afleiðingar
hinnar hnattrænu hlýnunar á
fiskveiðar við Ísland eru ófyrir-
sjáanlegar.
Með tilliti til þessara hags-
muna sem Ísland tvímælalaust á
í húfi og þeirrar staðreyndar að
landið er, ásamt Svíþjóð, Finn-
landi og löndunum fimm sem að
ofan eru talin, aðili að Norður-
skautsráðinu skýtur það skökku
við að engum frá fyrrnefndu
löndunum þremur var boðið að
taka þátt í fundinum í Ilulissat.
Það var ákvörðun dansk/græn-
lenzku gestgjafanna.
NORÐUR-ÍSHAF Eins og sjá má á kortinu réði Rússland yfir nær helmingi N-Íshafs ef
lögsögumörk færu eftir lengdarbaugslínum. Í miðju sést Lomonossov-hryggur.
TÁKNRÆNT Róbótaarmur rússnesks rannsóknakafbáts kemur rússneska fánanum
fyrir á hafsbotni á Norðurpólnum 2. ágúst í fyrra. NORDICPHOTOS/AFP
Glímt um auð norðursins
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
RV
U
N
IQ
U
E
05
08
01
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Servíettur NexxStyle 39x39cm 80stk, ýmsir litir
Satiné Clean, gólfsápa
Brial Clean, alhliða hreinsiefni
Kristalin Clean, baðherbergishreinsir
Into WC Clean
Lotus eldhúsrúllur Lotus WC pappír
Lotus Maraþon Plus Lotus WC Júmbó
Lotur T-Þurrkur
Lotus V-Þurrkur
Á tilbo
ði í ma
í 2008
Umhve
rfisvott
uð hre
insiefn
i
og pa
ppírsvö
rur
20%
afslá
ttur
Umhverfisvottaðar vörur
- fyrir sumarbústaðinn, veiðihúsið og ...
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA