Fréttablaðið - 29.05.2008, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 29. maí 2008 3
Victoria leggur
línurnar
VICTORIA BECKHAM HEFUR
LÖNGUM LAGT LÍNURNAR HVAÐ
TÍSKUNA VARÐAR OG NÚ SÉST HÚN
Æ OFTAR Í ÚTVÍÐUM BUXUM.
Nýlega kynnti Victoria Beckham
nýjstu dVb-línu sína í Harrods í
London klædd þessum útvíðu
gallabuxum.
Þær minna óneitanlega á
klæðaburðinn á hippatímabil-
inu margrómaða sem sannar enn
og aftur að tískan gengur í hringi.
Þó er ekki víst að hipparnir hefðu
klæðst tjulltopp sem þessum við.
Victoria leggur allan sinn metn-
að í línuna, sem hún fór af stað
með árið 2006, og engar vörur
fara í framleiðslu öðruvísi en að
hún leggi blessun sína yfir þær.
Línan samanstendur af galla-
buxum, skóm, sólgleraugum og
töskum sem hún
hefur hann-
að en merk-
ið er samsett
úr upphafsstöf-
um Victoriu
og eigin-
manns
henn-
ar,
Dav-
ids
Beck-
ham.
- ve
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Skjöpp til að hylja það allra heilagasta
Það styttist óðum í að baðfötin verði tekin fram og nú fer hver að
verða síðastur að velja sér rétta búninginn til að nota á ströndina.
Því miður fylgir strandfötum að þá er ekki lengur hægt að fela mis-
fellurnar og því annaðhvort að reyna eitthvert undralyfið eða
megrunarkúr sem lofar nýjum englakroppi á þremur vikum en það
endar svo aftur oft með því að kílóin sem hverfa koma til baka og
það tvöföld. Annars er einfaldlega hægt að lifa í sátt við líkama
sinn og gefa þeim mjóu langt nef. Fæstir eru reyndar þegar vel er
að gáð fullkomnir, ólíkt því sem tískuheimurinn reynir að telja
okkur trú um. Varla birtist mynd í tískublaði öðruvísi en að hún
hafi verið endurunnin til að fela allar misfellur. Hrukkur hverfa og
appelsínuhúð á lærum er nokkuð sem er ekki til í þessum drauma-
heimi.
Reyndar eru undirföt þetta sumarið stundum með þeim hætti að
það má alveg nota brjóstahaldarana í sólinni, til dæmis í sveita- eða
lautarferð, hvort sem um er að ræða rómantískt blómamunstur,
doppur eða sterka liti. Efnin í brjóstahöldurunum eru þykkri en oft
áður, jafnvel úr gallaefni, og því ekkert að því að sýna þá. Í sumar
er gullna reglan að kaupa brjóstahaldara og nærbuxur með ólíkum
litum eða munstri og nota saman.
Sundbolir og bikiní eru alveg heimur út af fyrir sig en taka þó
mið af tískunni almennt. Þess vegna er mikið um skæra liti eins og
grænt eða bleikt flúó en einnig má finna í þessum klæðnaði mynst-
ur í anda hippaáranna eins og í tískunni almennt. Blóm og friður
sumarsins ´68 svífur yfir vötnum í baðfatatísku eins og annarri
tísku. Síðan í fyrra eru sundbolir í mikilli sókn og í sumar eru þeir
með stórum blómum eða einlitir í sterkum litum, til dæmis epla-
grænir með ferköntuðu hálsmáli og samlitum semelíusteini. Annar
er fuchsia-bleikur og fleginn niður fyrir nafla.
Í tvískiptum baðfötum eru útgáfurnar nánast óteljanlegar. Blóm
í öllum útgáfum, frá einu eilífðar smáblómi yfir í heilan skrúðgarð
eða frumskógarlauf, Vichy-munstur og doppur í öllum stærðum.
Sumir neðripartar eru með belti, aðrir með semelíusteinum eða
perlum og svo mætti áfram telja. Fyrir þær sem eru topplausar er
það svo mónókiní sem gildir, aðeins með neðri hluta.
Hjá Chanel er hægt að fá litla ökklatösku í leðri í stíl við hárauða
skó alveg í réttri stærð fyrir kreditkort, varalit og nokkra seðla.
Svo er auðvitað ein lausn sem svarar öllum spurningum um bað-
fatatísku en það er að fara bara á nektarstrandir og þá þarf engin
baðföt! En þá vakna spurningar um tískustrauma í kantskurði og
háreyðingu. Það er nú önnur saga. bergb75@free.fr