Fréttablaðið - 29.05.2008, Qupperneq 34
[ ]
Salsa er gott meira en sósa. Salsa er ástríðu-
fullur dans fyrir lífsglatt fólk á öllum aldri.
„Salsa á rætur að rekja til Kúbu og Afríku, og breidd-
ist um heiminn með tónlistarmönnum sem fluttust
frá Kúbu fyrir byltinguna. Dansinn hefur þróast á
mismunandi hátt í mismunandi hlutum heimsins, en
sameiginlegur hjartsláttur felst í salsataktinum sem
sleginn er með klassískum salsahljóðfærum,“ segir
Edda Lúvísa Blöndal, sjúkraþjálfari, karate- og salsa-
danskennari, sem árið 2003 stofnaði dansskólann
Salsa Iceland með það markmið að byggja upp salsa-
samfélag á Íslandi.
„Ég kynntist salsa í Svíþjóð þegar ég var að klára
keppnisferilinn í karate. Það kvisaðist út að aðal-
stjarna sænska landsliðsins væri að hætta í karate
vegna þess að honum þætti svo gaman í salsa og ég
plataði hann til að taka mig með sér á salsakvöld.
Sama kvöld dansaði ég mig inn í þetta mikla ævintýri
sem salsa hefur orðið í mínu lífi,“ segir Edda Lúvísa,
sem alkomin heim þurfti að útskýra fyrir Íslending-
um að salsa væri meira en bara sósa.
„Ég varð gagntekin af salsadansinum og vildi
kenna Íslendingum að dansa. Því fór ég í læri til
þeirra bestu í Stokkhólmi, kom með það veganesti
heim og stofnaði SalsaIceland. Það skemmtilega við
salsa er að dansinn hentar fólki á öllum aldri og spor-
in eru svo einföld að maður kemst mjög fljótt á það
stig að geta notið félagslega hluta salsadansins, sem
er að fara út og hitta fólk til að dansa. Í alþjóðlega
salsasamfélaginu er hefð fyrir því að dömur jafnt
sem herrar bjóði upp og þar af leiðandi dansar maður
ekki alltaf við sama félagann,“ segir Edda, sem reglu-
lega fer til útlanda á salsaklúbba þar sem hún þekkir
engan í fyrstu en yfirgefur samkvæmið
með nýja kunningja eftir dansinn.
„Þannig er mjög auðvelt að ganga inn í
salsasamfélag hvar sem er í heiminum.
Þessi félagslega hlið salsadansins er
skemmtileg í gráköldum veruleikan-
um hér heima þegar fólk hefur mögu-
leika á að hitta hresst fólk sem vill
leika á dansgólfinu, en í því felst
mikil sáluhjálp. Langflestir okkar
nemenda mæta stakir og við víxlum
fólki til á námskeiðum. Í raunveru-
leikanum situr fólk oft í sama lokaða
vinahópnum og hittir aldrei nýtt
fólk, en það er mikil gjöf, eykur víð-
sýni og víkkar sjóndeildarhringinn
að kynnast fleira fólki,“ segir Edda
Lúvísa og staðfestir að ástin kvikni
oft á dansgólfinu, enda sé salsa
dans þar sem útilokað sé að vera í
fýlu og danssporin kalli á mikla
nánd.
„Víst hafa mörg pör orðið til á dans-
gólfinu og alltaf jákvætt þegar fólk finn-
ur sálufélaga með sameiginlegt áhuga-
mál. Við erum með námskeið allan
ársins hring og ég bæti sífellt við mig
hjá kennurum mínum í Stokkhólmi
sem eru á heimsmælikvarða, hafa
margsinnis tekið við verðlaunum á
heimsmeistaramótum og verið dans-
höfundar í raunveruleikaþáttunum So
You Think You Can Dance. Salsa-
samfélagið er lifandi og skemmtilegt, við
grillum saman á Miklatúni, dönsum á
Austur velli þegar sólin skín og hittumst á
salsakvöldum til að dansa.“
Ókeypis prufutímar fyrir byrjendur
eru á salsakvöldum fyrsta og þriðja
mánudag hvers mánuðar. Nánari upplýs-
ingar á www. salsaiceland.com.
thordis@frettabladid.is
Sáluhjálp í salsatakti
Edda Lúvísa Blöndal kennir Íslendingum blóðheitt salsa í allt
sumar, og allan ársins hring. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Andlitskrem mýkja húðina og gefa henni raka. Á sumrin þegar
við erum meira úti í sólinni og förum oftar í sund er mikilvægt að
næra húðina vel.
www.eirberg.is 569 3100 Stórhöfða 25
Rafskutlur
-umhverfisvænn ferðamáti
COMB &CARE
Fæst í apótekum um land allt.
Sjampó og næring til varnar flóka
• Mild formúla sem svíður ekki undan.
• Sterkt flókavarnarefni fyrir sítt hár.
• Hárið verður hreint, mjúkt
og viðráðanlegt.
• Endingargóður ilmur.
Flókasprey
og flókahárkrem
• Verndar raka hársins
með B5 vítamíni.
• Fjarlægir flóka, auðveldar greiðslu
og verndar hreinlæti hársins.
• Endingargóður ilmur.
Auðvelt í notkun – frábær árangur
(Lúsaforvörn) Lúsin helst síður í vel hirtu hári. Inniheldur rósmarín sem fælir lúsina frá.
Compeed plásturinn
Fyrir útivistarfólk
• Verndar fætur og hindrar blöðrumyndun
• Vatnsheldur – vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum og sársauka
Fæst í apótekum