Fréttablaðið - 29.05.2008, Qupperneq 44
29. MAÍ 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● vesturland
Ferðaþjónustan Hraunsnef í
Norðurárdal hefur notið mikilla
vinsælda frá stofnun en þar má
auk gistingar finna veitinga-
stað og skemmtun.
„Þetta er gamall draumur sem við
létum rætast fyrir nokkrum árum
en árið 2004 keyptum við jörðina og
hófum niðurrif á gömlum húsum.
Hótelið er þar sem fjárhúsin stóðu
en veitingastaðurinn er í haughús-
inu,“ útskýrir Brynja Brynjars-
dóttir, sem rekur ferðaþjónustuna
með eiginmanni sínum Jóhanni
Harðarsyni. Það er þó boðið upp á
margt fleira en gistingu á Hrauns-
nefi.
„Einn stærsti hluti rekstrarins er
veitingastaðurinn. Við höfum verið
með mikið af vorferðum fyrir fyrir-
tæki og er þá farið að leita að fjár-
sjóði kattarins,“ útskýrir Brynja
kímin. Fjársjóðs leikurinn byggir á
þjóðsögu frá staðnum. „Það bjó hér
kona sem átti kött sem þótti góður
til áheita. Hann var að lokum orð-
inn svo ríkur að hann gat keypt
heila bújörð. Síðan hafa spunn-
ist ýmsar sögur um hvað varð um
þetta fé. Einhverjar sögur snerust
um það að til hafi verið kista með
fénu og snýst leikurinn um að fjár-
sjóðurinn sé hugsanlega grafinn
hér í nágrenninu,“ útskýrir Brynja.
„Þetta er svolítið eins og ratleikur
með vísbendingum og þrautum en
allir geta verið með.“
Mikil stemning skapast í kring-
um leikinn og koma hóparnir gjarn-
an og snæða á veitingastaðnum.
„Þá myndast skemmtileg kvöld-
vökustemning og allir hafa gaman
af,“ segir Brynja.
Á Hraunsnefi er líka boðið upp
á fjallasafarí. „Við erum með stutt
safarí sem er mikil adrenalín-
sprauta. Þá er farið niður á sanda
og keyrt út í ár og vötn og gefið í.
Síðan erum við með fjallasafarí sem
er klukkutíma ferð og þar miðum
við hamaganginn við óskir hóp-
anna. Það er líka útsýnisferð þar
sem sést nánast niður í Borgar nes.
Við erum alltaf með álfasögurn-
ar inni í þessu líka,“ segir Brynja
áhugasöm en þau hjónin hafa
fengið Erlu Stefáns dóttur í lið með
sér til að vinna álfakort í tengslum
við gönguhring. „Við vinnum út
frá þeirri hugsun að gefa náttúr-
unni gaum og hugsa vel um hana.
Þú færð það sem þú gefur náttúr-
unni og uppskerð ekki neitt nema
leggja eitthvað til,“ segir Brynja
einlæg en hún vill gjarnan vekja
fólk til umhugsunar.
Síðast en ekki síst er boðið
upp á handverk eftir Brynju.
„Ég smíða skartgripi úr silfri,
kopar og messing en ég fór í
Iðnskólann í Hafnarfirði og lærði
hönnun þar fyrir rúmum áratug.
Síðan tók ég silfursmíðanámskeið
upp úr því. Þetta passar vel saman
því fólk vill gjarnan taka með sér
til minningar eitthvað sem er lítið
og létt og gert á staðnum,“ segir
Brynja hógvær. Hraunsnef er svo
að segja í túnfætinum á Bifröst
og er því stutt þangað frá Reykja-
vík; um 110 kílómetrar. Það er því
kjörið að líta við hvort sem er í gist-
ingu, fjör eða veitingar. - hs
Fjölbreytt ferðaþjónusta
Boðið er upp á jeppasafarí á Land Rover að rótum Hraunsnefsaxlar og má þannig
sameina spennandi skemmtun og náttúrusýn. MYND/HRAUNSNEF
Á Hraunsnefi er gott að slaka á í fallegri
náttúru og njóta lífsins.
Brynja er mikill náttúruunnandi og höfðu
hún og eiginmaður hennar lengi átt sér
þann draum að stofna ferðaþjónustu.
Brynja smíðar
skartgripi sem
hún selur á
staðnum.
Þjóðgarðurinn Snæfells jökull
var stofnaður árið 2001. Yfir
sumarmánuðina starfa land-
verðir við eftirlit og um-
hirðu jafnframt því að sjá um
fræðslu. Öllum er frjálst að
fara um þjóðgarðinn og skipu-
lagðar gönguferðir eru einnig
nokkrum sinnum í viku.
Alla laugardaga taka land-
verðir á móti börnum við Arnar-
bæ á Arnarstapa og fræða þau
um náttúruna og segja sögur.
Einnig á laugardögum er geng-
ið frá Arnarstapa meðfram
ströndinni að Hellnum þar sem
hægt er að fá
sér kaffi
og skoða
gesta-
stofu
þjóð-
garðs-
ins. Á
sunnudögum gefst fólki tæki-
færi á að ganga gegnum
blómaskrúð og hraunmyndir
að Frambúðum og skoða Búða-
kirkju. Þriðjudaga er gengið
fram á Þúfubjarg þar sem Kol-
beinn kvaðst á við kölska og á
fimmtudögum eru minjar ver-
stöðvarinnar skoðaðar í Drit-
vík.
Auk reglubundinnar dag-
skrár er boðið upp á sérferðir
með leiðsögn en dagana 8. og
14. júní verður farið að refa-
greni í Ábúð undir leiðsögn
Sæmundar Kristjánssonar.
15. júní er samnorrænn dagur
villtra blóma og þá verður
hægt að fræðast um blómin í
skoðunarferð við Rauðhól.
Nánar má lesa um dag-
skrána í þjóðgarðinum í sumar
á vef Umhverfisstofnunar,
www.ust.is - rat
Gengið undir jökli
Þar sem jökulinn ber við himin er alltaf eitthvað að gerast.
Háskóli
lífs og lands
Spennandi háskólanám
til BS-gráðu
· Náttúru- og umhverfisfræði
· Umhverfisskipulag (grunnnám að landslagsarkitektúr)
· Búvísindi
· Hestafræði
· Skógfræði/landgræðsla
Námið fer fram á Hvanneyri í Borgarfirði en þar hefur
risið háskólaþorp í fallegu umhverfi með allri aðstöðu
og skemmtilegu félagslífi.
Umsóknarfrestur er til 4. júní.
Einnig er í boði meistaranám (MS) og doktorsnám.
Kynntu þér námið á heimasíðu skólans!
www.lbhi.is