Fréttablaðið - 29.05.2008, Blaðsíða 62
34 29. maí 2008 FIMMTUDAGUR
„Kórinn var stofnaður af konum sem sungu í Kvennakór
Reykjavíkur. Nokkrar okkar vildu syngja meira og út frá
því var Vox Feminae-kórinn stofnaður,“ segir Sigríður
Anna Ellerup, sem hefur verið formaður kórsins frá 2006.
Kórinn var stofnaður árið 1993 og starfaði undir hatti
Kvennakórsins til ársins 2000.
„Stofnandi kórsins, Margrét Pálmadóttir, lét sig dreyma
um að til væri á Íslandi sönghús fyrir söngkonur- og stúlk-
ur og það hefur tekist,“ segir Sigríður brosandi.
Vox Feminae hefur gefið út þrjá geisladiska sem inni-
halda trúarlega tónlist og íslensk þjóðlög. Sá fyrsti kom út
árið 2000 og heitir „Mamma geymir gullin þín“ og er með
íslenskum þjóðlegum og söngljóðum. Árið 2003 kom síðan
út „Himnadrottning“ og árið 2006 „Ave María“.
„Meðal markmiða í kórnum er að taka íslensk ættjarð-
arlög, en það sem stendur í vegi er hve lítið af þeim hefur
verið útsett fyrir kvenraddir. Hins vegar er þetta framtíð-
arverkefni og okkur langar að láta útsetja fyrir okkur og
stóra hljómsveit,“ útskýrir Sigríður Anna.
Vox Feminae-kórinn kemur mikið fram á tónleikum en
syngur auk þess í jarðarförum, afmælum og árshátíðum.
Árið í ár hefur verið mjög sérstakt að sögn Sigríðar og að-
allega vegna fimmtán ára afmæli kórsins.
„Við létum semja fyrir okkur mjög stórt verk við ljóð
sem fjallar um þjáningar Maríu við krossfestingu sonar
síns. Verkið tekur fjörtíu mínútur í flutningi og er lengsta
verk sem samið hefur verið fyrir kvennakór í aðalhlut-
verki, eftir okkar bestu vitund. Verkið var flutt í dymbil-
viku við hátíðlega athöfn um síðustu páska og gekk mjög
vel. Kórinn var gríðarlega ánægður enda mjög gaman að
taka þátt í svona metnaðarfullu verkefni,“ segir Sigríður
sem segir kórinn ætla að ráðast í útgáfu á sögu- og ljós-
myndabók.
„Bókin á að vera söguleg heimild um íslenskan kvenna-
kór sem var stofnaður í lok tuttugustu aldar. Einnig mun
hún endurspegla litróf þeirra kvenna sem starfa með kórn-
um og hafa söng að sínu helsta áhugamáli og geisladiskur
fylgir bókinni sem kemur út í nóvember á þessu ári,“ segir
Sigríður. Allar upplýsingar á www.domusvox.is.
mikael@frettabladid.is
VOX FEMINAE: 15 ÁRA STARFSAFMÆLI
Sérstakt ár
METNAÐARFULLAR Vox Femine vilja að fleiri verk verði útsett fyrir
kvennakóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
timamot@frettabladid.is
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra
er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Júlíusar Guðlaugssonar
Efra Hofi, Garði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Ellen Einarsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hannes Sigurgeirsson
húsasmiður, Hveragerði,
lést þriðjudaginn 20. maí. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Guðrún Magnúsdóttir
Magnús Haukur Hannesson Hrönn Þorsteins
Þorvaldur Hannesson Ingveldur Sigurðardóttir
Inga Lóa Hannesdóttir
Emil Fannar, Hannes, Móeiður
og Magnús Þór.
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa,
Friðriks Friðrikssonar
Bárustíg 7, Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar V og III
á Hjúkrunarheimili Skagfirðinga fyrir góða umönnun.
Stefán Friðriksson Gunnhildur Vilhjálmsdóttir
Sólbrún Friðriksdóttir Jón Árnason
Friðrik G. Friðriksson
Guðni Friðriksson Valgerður Einarsdóttir
Erna Flóventsdóttir Valgarður Jónsson
og afabörnin.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ingvar Guðjónsson
frá Eiríksbakka, Biskupstungum, til
heimilis að Skaftahlíð 4, Reykjavík,
lést laugardaginn 17. maí á Landspítalanum við
Hringbraut. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 30. maí kl. 15.00.
Fjóla H. Halldórsdóttir
Hafdís Ingvarsdóttir Hilmar Bjarnason
Ingvar Örn Hilmarsson
Svana Fjóla Hilmarsdóttir
Birna Svanhvít Hilmarsdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Runólfur Dagbjartsson
(Dúddi múr)
múrarameistari, Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
andaðist 19. maí síðastliðinn. Minningarathöfn verður
haldin í Landakirkju í Vestmannaeyjum þriðjudaginn
3. júní kl. 13.00. Jarðsungið verður í Langholtskirkju í
Reykjavík föstudaginn 6. júní kl. 13.00. Blóm vinsam-
legast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Kvenfélagið Líkn, Vestmannaeyjum.
Ómar Runólfsson Auður Eiríksdóttir
Margrét Runólfsdóttir Sigurður Rafn Jóhannsson
Dagmar Svala Runólfsdóttir Guðjón Sigurbergsson
Kristín Helga Runólfsdóttir Ari Tryggvason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Marsibil Jónsdóttir
Erluhrauni 11, Hafnarfirði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði
21. maí, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 30. maí kl. 13.00.
Þórir Sigurðsson
Sigrún Sigurðardóttir Sigurjón Ingvarsson
Guðrún Sigurjónsdóttir Peter Nilsen
Eygló Sigurjónsdóttir Hilmar Már Ólafsson
Eyrún Sigurjónsdóttir Anton Kjartansson
og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir og amma,
Hulda Sylvía Jónsdóttir
Kársnesbraut 93, Kópavogi,
sem lést fimmtudaginn 22. maí á Vífilsstöðum,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 30. maí kl. 13.00.
Eyþór Sigmundsson
Guðrún Helga Eyþórsdóttir
Þórey Huld Jónsdóttir
Vala Rún Jónsdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem hafa
aðstoðað okkur og stutt vegna andláts og
útfarar ástkærs sonar okkar, bróður og
mágs,
Hugins Heiðars
Guðmundssonar
Greniteig 49, Keflavík.
Þakkir færum við öllu starfsfólki Barnaspítala
Hringsins og gjörgæsludeildarinnar við Hringbraut.
Þá sendum við öllum þeim sem hafa aðstoðað okkur
og stutt í veikindum Hugins og gert okkur kleift að
einbeita okkur að lífi hans og baráttu, kærar þakkir.
Án ykkar hefði þetta orðið svo miklu erfiðara.
Guðmundur Guðbergsson Fjóla Ævarsdóttir
Natan Freyr Guðmundsson Sóley Ásgeirsdóttir
Hafrún Eva Kristjánsdóttir
Guðjón Örn Kristjánsson
Ásdís Rán Kristjánsdóttir.
JOHN F. KENNEDY, 35. FORSETI
BANDARÍKJANNA.
„Fyrirgefið óvinum ykkar, en
gleymið aldrei nöfnum þeirra.“
Kennedy Bandaríkjaforseti naut
mikilla vinsælda en var skotinn til
bana í Dallas árið 1963.