Fréttablaðið - 08.06.2008, Page 33
ATVINNA
SUNNUDAGUR 8. júní 2008 171
Höfðabakka 9 & Skipholti 19
Þjónustufólk
hjá Ruby Tuesday
Við hjá Ruby Tuesday erum alltaf að
leita að skemmtilegu og framfærnu
fólki til að þjóna viðskiptavinum okkar.
Skilyrði er að umsækendur séu opnir,
jákvæðir og hafi mikla þjónustulund.
Einnig er æskilegt að umsækjendur
hafi náð 18 ára aldri.
Umsóknir fyllast út á www.rubytuesday.is
S n æ f e l l s b æ r
Dvalar - og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir
hjúkrunarfræðingi til starfa. Um er að ræða 60%
starfshlutfall.
Jaðar er lítið og notalegt heimili 15 vistmanna. Þar ríkir
góður starfsandi og heimilisbragur góður.
Nú eru að hefjast framkvæmdir við stækkun heimilisins þar
sem aðstaða vistmanna og starfsmanna verður mjög góð.
Spennandi tímar eru því framundan við frekari uppbyg-
gingu í þjónustu, aðbúnaði og umönnun heimilisfólks.
Umsóknir berist forstöðumanni sem jafnframt veitir allar
frekari upplýsingar í síma 433 6933 eða 857 6605.
Skrifl egum umsóknum ber að skila fyrir 20. júní n.k.
Umsóknareyðublöð má fi nna á heimasíðu Snæfellsbæjar,
www.snb.is undir “Stjórnskipan” og “Eyðublöð”
Ólafsvík er einn af þremur þéttbýliskjörnum sem mynda sveitarfélagið Snæfellsbæ.
Snæfellsbær er ungt sveitarfélag sem vefur sig utan um Snæfellsjökul: Staðarsveit,
Búðir, Breiðuvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur, Rif, Ólafsvík og Fróðárhreppur.
Í góðu veðri er Ólafsvík í tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík - og veðrið er
að sjálfsögðu alltaf gott undir Jökli!
Hér býr gott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snæfellsbæinga velkomna.
Í Snæfellsbæ er sérstaklega fallegt umhverfi þar sem Snæfellsjökul ber hæst, enda
býður bæjarfélagið upp á alla fl óru landsins þegar kemur að landslagi, fugla- og
dýralífi .
Útivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem er ársins, skíði og snjóbretti,
gönguferðir, golf, hestamennsku, sund og margt fl eira. Nýtt glæsilegt íþróttahús
er í Ólafsvík.
Öfl ugt tónlistarlíf er í sveitarfélaginu og félagastarfsemi með miklum blóma.
H j ú k r u n a r f r æ ð i n g u r
óskast við Dvalarheimilið Jaðar í Ólafsvík
Hársnyrtir
Hársnyrtistofan Dalbraut óskar eftir hársnyrti til starfa.
Hársnyrtistofan • Dalbraut 1 • Sími 698 7537
Ferðamálastofa auglýsir
tvær stöður lausar til umsóknar
Rekstrarstjóri – Akureyri
Ferðamálastofa leitar eftir rekstrarstjóra í fullt starf á Akureyri frá og með 1. september 2008.
Rekstrarstjóri heyrir beint undir ferðamálastjóra. Starfssvið er m.a.:
- Dagleg fjárhagsleg umsýsla
- Vinna að gerð ársáætlana og eftirfylgni við þær
- Umsjón með samningagerð vegna styrkveitinga
- Umsjón með samningagerð og fjársýslu vegna alþjóðlegra kynningarmála
- Umsýsla vegna starfsmannahalds, í samvinnu við ferðamálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf í viðskiptafræði eða skyldum greinum er skilyrði
- Framhaldsmenntun er æskileg, sér í lagi á sviði mannauðsstjórnunar
- Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af fjármálastjórnun hjá hinu opinbera
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur
- Framtakssemi, sjálfstæði í vinnubrögðum og löngun til að takast á við síbreytileg verkefni
- Samskiptahæfni
Starfið er nýtt og verðandi rekstrarstjóra bíður krefjandi vinna við mótun þess og uppbyggingu stofnunarinnar til
að mæta nýjum verkefnum og áskorunum.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2008. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Ferðamálastofu í Reykjavík, Lækjargötu
3, 101 Reykjavík, merktar starfinu, eða á netfangið olof@icetourist.is. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Öllum umsóknum
verður svarað. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Markaðsfulltrúi – Reykjavík
Ferðamálastofa leitar eftir markaðsfulltrúa í 100% starf á markaðssviði stofnunarinnar í Reykjavík.
Markaðsfulltrúi starfar undir stjórn forstöðumanns markaðssviðs að kynningarmálum innanlands
og erlendis.
Starfssvið:
- Samskipti við íslenska ferðaþjónustu- og söluaðila á Íslandi og erlendis
- Aðstoð við starfsfólk Ferðamálastofu á starfsstöðvum erlendis
- Umsjón og framkvæmd markaðsverkefna í Bretlandi
- Gerð kynninga og kynningarefnis með markaðsteymi Ferðamálastofu
- Aðstoð við skipulagningu og framkvæmd blaðamannaferða frá öllum mörkuðum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði
- Framhaldsnám á sviði markaðsmála er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla á sviði áætlanagerðar og stefnumótunar er kostur
- Þekking á íslenskri ferðaþjónustu æskileg en ekki skilyrði
Umsóknir með upplýsingum um starfsferil og menntun sendist Ferðamálastofu, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík fyrir 1. júlí 2008, eða á
sigrun@icetourist.is. Launakjör eru samkvæmt samningum ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. ágúst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Hlín Sigurðardóttir,
forstöðumaður markaðssviðs Ferðamálastofu, sigrun@icetourist.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Bæði karlar og konur eru hvött til að sækja um störfin.
Upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar er að finna á www.ferdamalastofa.is.
www.ferdamalastofa. is
Lækjargata 3 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 464 9990 | Fax 464 9991 I Netfang: upplysingar@icetourist.is