Fréttablaðið - 21.06.2008, Qupperneq 10
10 21. júní 2008 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 209
4.512 +0,01% Velta: 3.690 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: hlutabréf í úrvalsvísitölu: Atorka 6,40
0,00% ... Bakkavör 32,20 +0,47% ... Eimskipafélagið 14,20 0,00% ...
Exista 8,60 -0,92% ... Glitnir 16,30 0,00% ... Icelandair Group 15,25
+3,53% ... Kaupþing 780,00 0,00% ... Landsbankinn 23,10 0,00%
... Marel 91,30 +0,22% ... SPRON 3,68 -1,87% ... Straumur-Burðarás
10,14 +0,20% ... Teymi 2,11 -0,47 ... Össur 93,50 +0,21%
MESTA HÆKKUN
ICELANDAIR +3,53%
FÆREYJABANKI +1,04%
BAKKAVÖR +0,47%
MESTA LÆKKUN
CENT. ALUMINUM -1,92%
SPRON -1,87%
ATLANTIC AIRWAYS -1,84%
Þægindi um land allt
Polar hjólhýsi
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Evrópskar þrýstibremsur,
galvaníseruð grind, iDC stöðugleikakerfi og ríkulegur staðalbúnaður.
Rockwood fellihýsi
Sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum með galvaníseraðri
grind, fjöðrum fyrir akstur á erfiðum vegum og upphituðum lúxusdýnum.
19˝ LCD
skjár
Séstakur
vínkælir
DVD
spilari
44mm
einangrun
-40 °C
iDC
stöðugleikakerfi
Evrópskar
þrýstibremsur
Fjöðrun f.
ísl. aðstæður
Vatn tengt
heitt/kalt
CD spilari/
útvarp
Upphitaðar
lúxusdýnur
12 cm
Evrópskar
þrýstibremsur
Sumarg
jöf
Sólar
rafhla
ða,
fortja
ld og
gasgr
ill
fylgir ö
llum fe
llihýsu
m
Tilboð
ið gild
ir út jú
ní
Athugið!Sólarrafhlaða, fortjald, TV, DVD & Alde gólfhitakerfifylgir hjólhýsum.Fortjaldatilboðgildir út júní
í úrvali
Kynntu þér úrvalið af Galeon skemmtibátum, Regal og ChrisCraft
hraðbátum, Galía og Karnic sport- & veiðibátum.
Kínastjórn ákvað á fimmtudag
hækka álagningu á bensíni og dísil-
olíu um allt að átján prósent. Hækk-
unin tekur gildi um mánaðamótin.
Stefnt er að því að verðhækkunin
dragi úr eldsneytisnotkun hjá Kín-
verjum, sem eru næstmestu elds-
neytissvelgir í heimi.
Fréttastofa AP hafði eftir olíusér-
fræðingum í gær að reikna megi
með því að áhrifin seytli inn á neyt-
endamarkað á nokkrum vikum og
muni landsmenn þá fyrst draga úr
eldsneytiskaupum. Í kjölfarið geti
olíuverð lækkað á heimsmörkuð-
um.
Kínverjar hækkuðu síðast verð á
eldsneyti um ellefu prósent í nóv-
ember í fyrra. Það hafði lítil áhrif á
heimsmarkaðsverð.
Auk aðgerða Kínverja ákváðu
Sádi-Arabar að auka olíufram-
leiðslu sína um 200 þúsund tunnur á
dag í næsta mánuði. Aðgerðirnar
ollu verðlækkun á hráolíuverði
strax á fimmtudag. Verðið lækkaði
um fjóra dali á tunnu og fór í tæpa
132 dali. - jab
Kínverjar hækka
eldsneytisverð „Við setjum spurningarmerki við að lán Íbúðalánalánasjóðs skuli miðuð við söluverð í stað bruna-
bótamats en samt haldið við þetta
háa lánshlutfall, áttatíu prósent,“
segir Eiríkur Guðnason, banka-
stjóri Seðlabanka Íslands, þegar
hann er inntur eftir viðbrögðum
við breytingum á fyrirkomulagi
Íbúðalánasjóðs sem ríkisstjórnin
kynnti í gær.
„Þetta teljum við að geti verið
varasamt bæði fyrir lánveitand-
ann, Íbúðalánasjóð og lánþegann
sem hugsanlega kaupir sér fast-
eign núna þegar verð er hátt og
veðsetur hana með háu veðhlut-
falli en kann að þurfa að selja síðar
en þá kann verðið að vera lægra en
áhvílandi skuld,“ segir Eiríkur.
Hann fagnar því að umbætur
og breytingar skulu gerðar á
skipulagi Sjóðsins og segir að
Seðlabanki Íslands hafi mælt með
því að fyrirkomulag hans sé yfir-
farið og fagnar
einnig því að
efnt sé til sam-
vinnu við banka
og sparisjóði.
Auk þess tekur
Eiríkur undir
þær fullyrðing-
ar að breyting-
arnar á fyrir-
komulagi
íbúðalánasjóðs
auki virkni peningastefnunnar.
Eiríkur lítur svo á að þetta sé
fyrsta skrefið í að gera Íbúðalána-
sjóð að heildsölubanka og frekari
þróun í þá átt æskileg.
Hann telur að þeir flokkar bréfa
sem Íbúðalánasjóður hefur heim-
ild til að gefa út geri honum kleift
að endurfjármagna íbúðalán sem
þegar hafa verið veitt auk þess að
útvega bönkum og sparisjóðum
langtímafjármögnun til að veita
ný lán. - bþa
Varhugavert
„Þetta kom óvænt, ég vissi lítið
um þetta fyrr en í gær [á fimmtu-
dag],“ segir Guðmundur Bjarna-
son, forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Hann segir að sjóðurinn hafi
lengi beðið þess að hámarkslán
yrði afnumið og tengingin við
brunabótamatið sömuleiðis.
En með lánum til banka, er
sjóðurinn þá ekki orðinn heild-
sölubanki? „Hver og einn verður
að leggja út frá því. Það mætti
segja að þar sem sjóðurinn útveg-
ar öðrum fjármálastofnunum pen-
inga að það væri vísir að slíku.“
Rætt hefur verið um að lán
sjóðsins og lágir vextir vinni gegn
peningamálastefnu Seðlabankans.
„Ég álít nú ekki að þessar aðgerðir
hafi slík áhrif.“
- ikh
Kom á óvart
Hreiðar Már Sigurðsson,
forstjóri Kaupþings, telur
aðgerðir ríkisins sem tilkynnt
var um í gær „ömurleg tíðindi
fyrir íslenskan fjármálamark-
að“. Þetta kom fram í tölvu-
pósti sem Hreiðar sendi á
fimmtudag til stjórnar
Samtaka fjármálafyrirtækja
og nokkurra annarra stjórn-
enda í íslenskum fjármála-
fyrirtækjum og birtur var í
heild sinni á vef Viðskipta-
blaðsins í gær.
„Þetta eru ömurleg tíðindi fyrir
íslenskan fjármálamarkað. Lausnin á að
felast í auknum umsvifum ríkisins á
fjármálamarkaði. Ríkissjóður ætlar að
fara að gefa út skuldabréf til að gera
erlendum fjárfestum kleift að stunda sitt
„carry trade“ [vaxtamunarvið-
skipti] á 15% vöxtum.
Allir þeir sem hafa skoðað
málið gera sér grein fyrir að
ekkert atvinnulíf stendur undir
slíkum vöxtum og svo háir
vextir á ríkisskuldabréfum mun
einungis auka viðskiptahalla
landsins sem var ærinn fyrir.
Samkvæmt þessu er ekki tekið
á síaukinni uppgreiðsluáhættu
Íbúðalánasjóðs.
Enn þá rekur ríkið tvo banka,
annan sem setur vexti í 15% og
hinn sem er að auka við útlán sín til
íbúðakaupa á u.þ.b. 5% verðtryggðum
vöxtum.
Og svo skiljum við ekkert í því af hverju
það er ójafnvægi í fjármálakerfinu okkar,“
sagði í tölvupósti Hreiðars Más. - bih
„Ömurleg tíðindi“
„Ég get ekki annað sagt en að sumir
aðilar hafi verið óþolinmóðir,“ segir
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra um biðina eftir aðgerðum rík-
isstjórnarinnar, en margir hafa
gagnrýnt aðgerðarleysi hennar.
„Það er eins og það hafi ríkt ein-
hver misskilningur um hlutverk
gjaldeyrisvarasjóðsins. Samkvæmt
reglum um hann er bara fjárfest í
allra öruggustu bréfum, en hann er
ekki til þess að lána á almennum
markaði,“ segir Árni, og bætir því
við að gjaldeyrisviðbúnaður stórn-
valda sé nú fjórum sinnum meiri en
fyrir einu og hálfu ári.
Samkvæmt yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar verða nýttir 75 millj-
arðar af 500 milljarða króna lán-
tökuheimild ríkissjóðs, til að gefa út
skuldabréf.
„Þetta á að hafa það í för með sér
að viðskipti með krónuna aukist,“
segir Árni. - ikh
Óþolinmæði
eftir aðgerðum
EIRÍKUR
GUÐNASON
HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON
Á BENSÍNSTÖÐINNI Kínverjar verða að
greiða um átján prósentum meira fyrir
bensíndropann í næsta mánuði en nú
um stundir. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP