Fréttablaðið - 21.06.2008, Síða 12
12 21. júní 2008 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í
103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
UMRÆÐAN
Jóhanna Sigurðardóttir skrifar um
húsnæðismál
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðis-málum munu sporna gegn fjárhagsleg-
um áföllum heimilanna og treysta hagkerfi
landsins.
Afar mikilvægt er að koma í veg fyrir að
mjög mikil og hröð verðlækkun á fasteign-
um magni upp efnahagssamdráttinn.
Leiðrétting á háu fasteignaverði undan-
farinna missera var hins vegar óumflýjan-
leg en of hröð kólnum á fasteignamarkaði getur haft
afar óæskileg áhrif á stöðu efnahagsmála. Auk þess
gæti djúp fasteignakreppa og snögg kæling á
markaðnum komið harkalega niður á íbúðarkaup-
endum og skuldsettir íbúðareigendur gætu tapað
eigin fé sínu í fasteignum.
Nýir lánaflokka sem stofnaðir verða hjá Íbúða-
lánasjóði og snúa að endurfjármögnun eldri
lánveitinga og nýrra útlána hjá ÍLS fyrir almennar
lánastofnanir ættu að losa um þann tappa sem
myndast hafði á fasteignamarkaði, þar sem lán
Íbúðalánasjóðs, sem var nánast orðinn eini virki
lánveitandi á markaði, voru að hámarki 18 milljónir
og dugði aðeins vegna minnstu íbúðanna.
Það mun skipta sköpum fyrir marga
íbúðarkaupendur, ekki síst á höfuðborgar-
svæðinu, að brunabótamatsviðmið lánveit-
inga Íbúðalánasjóðs verður afnumið en þess í
stað miðað við allt að 80% af kaupverði. Sama
gildir um hækkun hámarksláns hjá Íbúða-
lánasjóði í 20 milljónir króna úr 18 milljónum.
Þá verða heimildir til leiguíbúðalána
Íbúðalánasjóðs á almennum markaði auknar
til að breyta söluíbúðum í leiguhúsnæði og
efla þannig leigumarkaðinn. Slík lán verða þó
aðeins veitt að fyrir liggi óháð mat á því að
eftirspurn eftir leiguhúsnæði sé fyrir hendi.
Sú leið ætti að leiða til virkari leigumarkaðar
og hjálpa þeim sem kjósa að leigja og fresta
íbúðarkaupum um einhvern tíma.
Þó þessar aðgerðir komi væntanlega í veg fyrir
það alkul á fasteignamarkaði sem allt stefndi í má
áfram vænta einhverrar lækkunar á fasteignaverði.
Afar mikilvægt er að bankar og sparisjóðir bregðist
við þessum aðgerðum með ábyrgum hætti, haldi vel
utan um sína viðskiptavini, ekki síst þá sem lenda í
greiðsluerfiðleikum, og nýti ekki endurfjármögnun
Íbúðalánasjóðs til að ná sér í vaxta- eða þóknana-
tekjur umfram það sem nauðsynlegt er vegna
umsýslukostnaðar.
Höfundur er félags- og tryggingamálaráðherra.
Róttækar aðgerðir
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
E
ftir svartsýnisfréttir um uppsagnir í byggingageir-
anum og frost á fasteignamarkaði voru það jákvæðar
fregnir sem bárust frá ríkisstjórninni á fimmtudag.
Þegar uppgangur á fasteignamarkaði var sem mest-
ur skapaðist óeðlilegt ástand og því er ekki að undra
að markaðurinn hafi leitað eftir stöðugleika. Eftir uppsveifl-
una kom samsvarandi dýfa. Vonandi verða þessar breytingar á
starfsreglum Íbúðalánasjóðs til þess að lendingin verði ekki jafn
hörð fyrir byggingariðnaðinn og við blasti. Uppgangurinn væri
of dýru verði keyptur með atvinnuleysi.
Tvennt er það í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem mestu
skiptir fyrir fasteignamarkaðinn. Annars vegar að Íbúðalána-
sjóður hættir að miða við brunabótamat og miðar við raunvirði
íbúða í staðinn. Sérstaklega er það hagstætt fyrir ungt fólk sem
er að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaðnum. Munur á
brunabótamati og fasteignaverði getur verið nánast óyfirstígan-
legur fyrir fyrstu kaupendur, sérstaklega þá sem ekki hafa
aðgang að öðru veði hjá næstu aðstandendum.
Hins vegar eru það ríkisábyrgðarlán til banka til þess að fjár-
magna íbúðalán. Þar til vextir á íbúðalánum lækka verulega
verður væntanlega ekki mikil eftirspurn eftir lánum til endur-
fjármögnunar. En bankarnir búa ekki við tuttugu milljóna króna
hámark á íbúðalán, líkt og Íbúðalánasjóður. Það verður því í
gegnum bankana sem ýtt verður undir viðskipti með stærri og
dýrari fasteignir. Þessar aðgerðir bæta jafnframt lausafjárstöðu
bankanna, og því ætti að verða auðveldara að fá lán til annarra
nota en íbúðakaupa.
Meðal gagnrýnisatriða sem fram hafa komið á þessar aðgerðir
er að ekki sé gengið nógu langt. Formaður Félags fasteignasala
hefur meðal annars hvatt til þess að níutíu prósenta lánin verði
tekin upp aftur. Fasteignasalar líta sjálfsagt til þeirrar gósen-
tíðar þegar níutíu prósent lánin voru í gildi, en þau lán voru hag-
stjórnarmistök og gæfuspor voru tekin þegar þau voru dregin
til baka. Félagsmálaráðherra segir að bankarnir hafi farið offari
á fasteignamarkaði fyrir fjórum árum, en orsökina á því má
einnig rekja til þess að hámarkslán Íbúðalánasjóðs voru hækkuð
upp í níutíu prósent.
Forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings segir að með
hreyfingu á markaði muni lækkun fasteignaverðs loks verða
mæld. Þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu er verðbólga enn
í methæðum. Undir þeim kringumstæðum er það misræði
að hvetja til hárrar veðsetningar. Fyrst þurfa Seðlabankinn
og ríkis stjórnin að sýna fram á að krónan geti verið stöðugur
gjaldeyrir.
Undirliggjandi vandamálið er hin íslenska króna. Gildi hennar
minnkar bara; bæði að verðgildi og í hugum fólks. Hvernig á
að vera hægt að skipuleggja útgjöld til fjörutíu ára, líkt og með
íbúðalán, þegar ekki er hægt að treysta á lögeyrinn? Núverandi
vaxtastig og verðbólga draga ekki síður úr áhuga á fasteignavið-
skiptum en takmarkaður aðgangur að lánum.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar:
Markaðurinn
hvattur áfram
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR SKRIFAR
Vill meira
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hlaupa
undir bagga með bönkum og fast-
eignamarkaðnum með breytingum
á starfsemi Íbúðalánasjóðs. Lánveit-
ingar sjóðsins miðast héðan í frá við
kaupverð eigna í stað brunabóta-
mats, lánshlutfall er hækkað í áttatíu
prósent og hámarks lánsupphæð úr
átján milljónum í tuttugu. Ingibjörg
Þórðardóttir, formaður Félags
fasteignasala, telur hins vegar of
skammt gengið; rétt væri að
hækka hámarks lánsfjárhæð
enn meira og lánshlutfall til
fyrstu kaupa ætti að vera
níutíu prósent. Með öðrum
orðum: stefna í nokkurn veginn
sama horfið og orsakaði núver-
andi stöðnun.
Hestur fyrir björn
Efnt var til víðtækrar leitar á Hveravöll-
um í fyrradag og í gær eftir að skelk-
aðir ferðamenn sögðust hafa rekist á
spor eftir bjarndýr. Draumfarir bónda
í Skagafirði þóttu renna stoðum undir
þær grunsemdir að hér væri um að
ræða þriðja ísbjörninn á stuttum
tíma hér á landi og ferðamönnunum
snúið við í leit að sporunum. Leit var
hins vegar hætt eftir að í ljós
kom að hin meintu
bjarnarspor
voru hófför
eftir hesta.
Lögreglumenn
hafa því líklega
snúið aftur úr
þessari fýluferð
með skeifu.
Minna frelsi
Friðjón R. Friðjónsson, Eyjubloggari
og sjálfstæðismaður, er óhress með
flokkssystkin sín í Sambandi ungra
sjálfstæðismanna – SUS. Friðjón
kveðst hafa rekist á áhugaverða grein
um lögleiðingu fíkniefna, sem hann
kom eftir krókaleiðum áleiðis til
SUS-ara. Viðbrögðin ollu Friðjóni hins
vegar vonbrigðum: „Skilaboðin innan
úr ungliðahreyfingu Sjálfstæðis-
flokksins voru einföld. „Ungliða-
hreyfingin mun ekki hreyfa við
neinu varðandi þetta. Það er
alveg bannað. Umræða innan
hennar mun heldur ekki eiga
sér stað“,“skrifar Friðjón og spyr
hvort SUS sé orðið svo undirlagt
pólitískum rétttrúnaði að ekki
megi ræða umdeilda hluti leng-
ur. bergsteinn@frettabladid.is
HALLGRÍMUR HELGASON
Í DAG |
Það má ekki tala um ESB
Það má ekki tala um ESB
og ekki harma gengisfallið fé
og ekki skipta um stjórann
sem situr uppí banka
á myntinni sem gerir alla blanka.
Það má ekki minnast neitt á Baug
og ekki vekja eftirlaunadraug.
Og ekki tala um strákinn
með bláu axlaböndin
né ráðherrann sem kyssir enn á vöndinn.
Þetta sjálfstæðisfólk er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
Það er alltaf að skamma mann.
Það má ekki tala um Óla f***
og sundurleitan borgarstjórnarflokk
og ekki spyrja Gísla
hvort hann ætli í spyrnu
um borgarstjórastól við Hönnu Birnu.
Það má ekki blogga seint um nótt,
í stjórnarhúsi allt skal vera hljótt.
Að bíða útá tröppum
með mæk er algjört nó-nó
því spyrja Geir um fjármálin er dónó.
Þetta sjálfstæðisfólk er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
Það er alltaf að skamma mann.
(Lag: Það má ekki pissa bak við hurð… e.
Sveinbjörn I. Baldvinsson)
Það sem ekki má
Sönglög
Akureyri
Vík
Egilsstaðir
Selfoss
Hveragerði
Hafnarfjörður
Neskaupstaður
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Súðavík
Ísafjörður
Akranes
Njarðvík
Sandgerði
Hreðavatnsskáli
Reykjavík
Þú sparar á Orkustöðvunum
Net Orkustöðvanna umhverfis landið þéttist sífellt til enn frekari
hagsbóta fyrir almenning. Kynntu þér hvar Orkustöðvarnar eru og
hvað bensínið er ódýrt þar.
SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR!
www.orkan.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
IK