Fréttablaðið - 21.06.2008, Blaðsíða 59
LAUGARDAGUR 21. júní 2008 31
1. Gobbledigook
Fyrsta smáskífulag Suðsins og hér
er strax slengt blautri tusku framan í
andlit hlustenda til þess að sýna að
Sigur Rós er að breyta til. Ógurlegur
trumbusláttur í anda Animal Collect-
ive og Liars og almenn kátína í gangi
með trallalala-harmóníusöng og Jónsi
að syngja um vindinn í hárinu og
óhræsisdrenginn sinn. Eitt besta lag
Sigur Rósar fyrr og síðar.
2. Inní mér syngur vitleysingur
Einkar bjart og fallegt lag með
léttleikandi píanólínu í bland við
taktfastar trommur. Kæruleysislegur
texti er í forgrunni og einfalt rím setur
skemmtilegan svip á lagið, sérstak-
lega fyrir okkur sem skiljum íslensku.
Magnast upp í lokin og undirstrikar
frábæra byrjun á plötunni.
3. Góðan daginn
Hér byrja hlutirnir að róast og sveitin
byrjar fyrst að hljóma eins og gamla
Sigur Rós. Einfalt og þægilegt lag
sem kemur kannski ekki nærri eins
mikið á óvart og lögin tvö á undan.
Líður samt mjúklega í gegn og er hin
fínasta ballaða.
4. Við spilum endalaust
Byrjar á pumpuorgeli en síðan verður
dynjandi bassalína mjög áberandi.
Þegar söngurinn hefst minnir lagið
örlítið á Sprengjuhöllina af einhverjum
ástæðum, „Við keyrðum út um allt,
í gegnum sól og malarryk”. Hér er
poppgleðin við völd og lagið er með
hápunktum plötunnar.
5. Festival
Lengsta lagið á plötunni, rúmar níu
mínútur að lengd. Minnir mest á
eitthvað af svigaplötunni enda eina
lagið á Suðinu sem er sungið á von-
lensku. Mjög rólegt lag með nánast
engu undirspili en síðan tekur það
mjög Sigur Rósar-lega beygju og við
bætast öll hin hljóðfærin sem síðan
magnast upp í allsherjarbrjálæði í
lokin þar sem Orri níðist enn og aftur
á trommusettinu.
6. Með suð í eyrum
Píanó og síðan trommusánd sem
hljómar eins og það sé aftur á bak.
Áferð lagsins er nokkuð gróf og lagið
gæti allt eins hafa verið á Ágætis byrj-
un. Lag sem mætti kalla leynivopn
plötunnar.
7. Ára bátur
Aftur mjög langt lag. Jónsi byrjar
á einsöng við píanóið, síðan taka
strengir við og um miðbik lagsins
byrjar maður að heyra í drengjakór.
Áður en langt um líður er Sigur Rós
búin að taka þetta alla leið og leyfir
sinfóníuhljómsveitinni og drengja-
kórnum að fylla upp í öll vit manns.
Lag sem var tekið upp í Abbey Road
og maður fær allt heila klabbið beint
í æð.
8. Illgresi
Jónsi segir sögu af (líklegast) barni
klæddu regnkápu sem heldur út
í náttúruna með hendur í vösum,
þar sem það liggur í blautu grasi og
lætur sólargeislana leika um sig í
gegnum laufblöðin. Hljómar þetta
kunnuglega? Kassagítar og strengir ná
samt að mynda magnað andrúmsloft
og söngur Jónsa er algjörlega fyrsta
flokks.
9. Fljótavík
Við höldum okkur við rólega tóna,
með píanó og strengi í aðalhlutverki.
Lag sem minnir örlítið á Takk... og er
með slökustu lögum Suðsins.
10. Straumnes
Stysta lag plötunnar, eingöngu tvær
mínútur. Án söngs og minnir á alla
aðra millikafla sem Sigur Rós hefur
gert, viðkvæmt en bjart.
11. All Alright
Fyrsta enska lag Sigur Rósar. Eins og
allur seinni hluti Suðsins er þetta lag
einnig rólegt. Veit samt ekki alveg
hvort maður eigi að túlka textann
„I want him to know, what I have
done. I want him to know, it’s bad” og
yfirfæra hann á heildarhugmyndafræði
plötunnar. Nei, ætli það. Lagið sem
slíkt skilur reyndar ekkert brjálæðis-
lega mikið eftir sig en er viðeigandi
endir á plötunni.
Með suð í eyrum við
spilum endalaust
ÍSLENSKIR DÓMAR
Morgunblaðið 4,5/5
Fréttablaðið 4/5
Mónitor 92/100
ERLENDIR DÓMAR
Q 4/5
Observer 5/5
NME 6/10
Drowned in Sound 7/10
Sputnikmusic 5/5
Uncut 3/5
MusicOMH 4,5/5
Einróma lof gagnrýnenda
MEÐ SUÐ Í EYRUM HEFUR HLOTIÐ AFBRAGÐS-
GÓÐA DÓMA BÆÐI INNANLANDS OG UTAN:
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
U
T
I
42
84
1
06
.2
00
8
25%
afsláttur
af öllum Nike fatnaði
til sunnudags.
Réttu sumarfötin fyrir hana,
hann og börnin líka.