Fréttablaðið - 21.06.2008, Síða 64
36 21. júní 2008 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Áttu einhverjar
málfræðibók sem
gætu kennað mér
hana?Nýtt!
Finnurðu
eitthvað?
Bara
kalda
hönd!
Það eru örugglega nokkrir
mánuðir þangað til við finnum
fyrsta hringsparkið, Jói!
Samt...
Þarna inni
er lítið
kraftaverk!
Lítill míní-
Jói!
Frábært! Og hræðir
mig dálítið!
Ég elska nafnið
þitt D‘óra
Ég er
reyndar
skírð
Halldóra.
Ég fór að nota úrfellingar-
merkið í sjöunda bekk.
Það er
geðveikt!
Vá!
Kannski gæti ég gert
þetta við nafnið mitt!
Frá og með nú
máttu kalla mig
P‘ierce. N‘ei.
Vá! Maður
sér að það er
komið haust!
Sjáðu bara, þetta stóra,
dökka laufblað er að
skipta um lit á meðan
við horfum á það!
Ég held að
það sé andlitið
mitt.
Nú áttu
himnasæng.
...og
mamma
bjó hana til
úr gömlum
lökum!
Hún uppfyllir
drauma mína!
Þú ert
krafta verkakona. Sumum finnst það.
Getur þessi
græja rumpað
saman einum
BMW fyrir mig?
Því miður.
Hámark eitt
kraftaverk á
dag.
Ég á afmæli 19. júní.
Það hefur sett mark
sitt á mig og mér
eru jafnréttismál
hugleikin. Gömul
frænka mín gaf mér
rauða hnésokka í
afmælisgjöf þegar ég
var lítil og ég er ekki
frá því að það hafi haft
sitt að segja. Mér finnst það
hljóta að vera sjálfsagt að engu
máli skipti hvors kyns fólk er.
Ég er ótrúlega stolt af því að
eiga afmæli þennan dag en ég
varð einmitt þrítug þegar konur
fögnuðu níutíu ára afmæli kosn-
ingaréttar síns árið 2005. Ég
klæddi mig í rauða ullarsokka og
gúmmískó og skundaði með
systrum mínum á Þingvöll.
Hlustaði á fyrsta lýðræðislega
kosna kvenforseta sögunnar
halda ræðu og mér fannst ég
eiga daginn. Ég strunsaði líka
stolt niður Skólavörðustíginn
þegar kvennafrídagsins var
minnst sama ár í október og söng
fullum hálsi.
Um daginn fórum við vinkona
mín í göngutúr að þvottalaugun-
um í Laugardal en þar er hægt
að lesa sér til um sögu þvotta-
kvennanna. Við ræddum um
hversu stutt væri síðan mæður
okkar sjálfra hrærðu í þvotta-
suðupottum á eldavélum en
framfarirnar gengu aðeins
hægar fyrir sig í sveitinni.
Ömmur okkar voru ekki með bíl-
próf og elduðu á kolavélum.
Þvottur var þveginn í læk. Í þeim
samanburði höfum við vinkona
mín það gott að geta þvegið með
því að ýta á takka. En jafnréttið
snýst ekki um húsverkin. Það
snýst um virðingu.
Það er í raun merkilegt hversu
stutt er síðan konur fengu rétt til
að kjósa og ennþá merkilegra að
talað sé um að „fá“ réttinn til að
kjósa. Sá réttur hlýtur bara að
vera sjálfsagður. Eins og það er
sjálfsagt að hlustað sé á sjónar-
mið fólks hvort sem það er karl
eða kona. Það er með ólíkindum
að enn sé verið að berjast fyrir
jöfnum rétti kynjanna og að þess
þurfi yfirleitt. Hvað á þetta eigin-
lega að þýða?
STUÐ MILLI STRÍÐA Rauðir hnésokkar
RAGNHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR ER ÁNÆGÐ MEÐ AFMÆLISDAGINN
Allra síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta
er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem
er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig
um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana
og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til
Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Nýtt! Gras.is beint á skjáborðið þitt!
Gras.is hefur sett upp vefþjónustu (Gagdet) sem t
engir þig beint
við fréttirnar, án þess að þurfa opna vafrann þinn!