Fréttablaðið - 28.06.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 28.06.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Guðmundar Steingrímssonar Fyrir nokkrum árum, þegar umræða um stóriðju og virkjun fyrir austan náði hvað hæstum hæðum, var það almennt viður- kennt og kvittað upp á af fræði- mönnum, stjórnmálamönnum og hverjum þeim sem skoðun höfðu á málinu, að álvers- og virkjanafram- kvæmdir væru þensluhvetjandi. Þær myndu með öðrum orðum hafa þau áhrif að verðbólga gæti aukist og vextir þyrftu að vera háir. Þá var verðbólgan 4-5% og menn voru að hækka vexti til þess að reyna að lækka hana. Núna er hún 12% og stýrivextir eru 15%, þannig að núna höfum við hvort tveggja: Okurvexti og okurverðlag. Ný met eru slegin í þessum efnum nánast daglega. VIÐ stjórn peninga- og efnahags- mála hafa menn þannig algerlega runnið á bossann, en gott og vel. Eftir stendur spurningin: Ef álvers- og virkjanaframkvæmdir eru þensluhvetjandi, sem þær án efa eru, stendur þá ekki upp á aðal- hvatamenn væntanlegra álvers- og virkjanaframkvæmda og forvígis- fólk þeirra í ríkisstjórn Íslands að útskýra fyrir almenningi hvernig þessar fyrirhuguðu framkvæmdir eiga að leiða til þess að vextir og verðbólga lækki, eða í öllu falli hækki ekki enn frekar? Hvernig ætla menn að gera hvort tveggja: Reisa tvö álver og stækka eitt, efna til virkjanaframkvæmda og á sama tíma lækka vexti og verðlag? Eða hafa menn komist að þeirri niður- stöðu að vextir og verðlag skipti almenning minna máli? SJÁLFSAGT er ætlunin að rétt- læta þessar framkvæmdir með efnahagsmálarökum, en grunsemd mín í þessum kringumstæðum er þó eftirfarandi: Felst ekki vandinn á Íslandi nú til dags fyrst og fremst í háum vöxtum og verðlagi? Okur- tíð? Hvernig getur álver læknað það? Hvað þá tvö, jafnvel þrjú? Með öðrum orðum: Er ekki verið að beita röngum meðölum á efnhagsástand- ið? Kallast þetta ekki að henda björgunarhring inn í brennandi hús? Að ausa vatni á drukknandi mann? Eða í versta falli: Að hella olíu á eldinn. ÉG ER eitt stórt spurningarmerki. Satt að segja er ég tvö stór spurn- ingarmerki. Hitt varðar náttúru- vernd. Annar flokkurinn í ríkis- stjórn lofaði því að ekki yrði ráðist í frekari virkjanaframkvæmdir fyrr en búið væri að kortleggja á Íslandi hvar mætti virkja og hvar ekki. Þessari kortlagningu er ekki nánd- ar nærri lokið. Að ráðast í tvö álver, stækkun á einu, virkjanir í Þjórsá og guð má vita hvað margar virkj- anir fyrir norðan, á meðan þessari vinnu er ekki lokið, er þverbrot á því loforði. ÉG SPYR: Hvað er að gerast? ? Í dag er laugardagurinn 28. júní, 181. dagur ársins. 3.02 13.31 23.59 1.15 13.16 0.40 © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 8 www.IKEA.is Opið virka daga Opið laugardaga Opið sunnudaga 10.00 - 20.00 10.00 - 18. 00 12.00 - 18.00 Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.