Fréttablaðið - 11.08.2008, Síða 33
MÁNUDAGUR 11. ágúst 2008 17
Guðný Ottesen fann helli við Kleifarvatn til að halda upp á 25 ára afmælið
sitt. „Ég er vön að fara í stór afmæli á skemmtistöðum í bænum og klukkan
tólf tvístrast hópurinn alltaf,“ segir Guðný og útskýrir að til að koma í veg fyrir
það hafi hún fundið helli í náttúrunni. „Þannig að í staðinn fyrir að leigja
skemmtistað leigði ég bara rútu.“
Guðný segist hafa boðið gestum í kokteil heim til foreldra sinna áður en
ákveðið farartæki myndi koma og sækja þá í óvissuferð. „Það eina sem gest-
irnir þurftu að gera var að koma klæddir eftir veðri og það var alveg ótrúleg
rigning þennan dag. Það kom mér mest á óvart að ekki var erfitt að halda af-
mælið í grenjandi rigningu. Gestirnir urðu allir hálfgerðir víkingar í sér.“
„Allir fíluðu veðrið þannig að þetta varð alveg ótrúlega vel heppnað af-
mæli,“ segir Guðný glöð í bragði. „Rútan átti að koma klukkan tólf en hálftólf
fór ég að tala við fólkið sem sagði mér að þetta væri besta veisla sem það
hefði farið í. Þannig að ég hringdi í rútubílstjórann hjá Skutlunni.is og bað um
að fá að hringja í hann þegar veislan kláraðist, þannig að rútan kom hálfþrjú.“
- mmf
VEISLAN MÍN: EFTIRMINNILEGT 25 ÁRA AFMÆLI
Leigði rútu fyrir afmælisveisl-
una í stað skemmtistaðar
Kvennasögusafnið leitar eftir
nöfnum stúlkna sem voru á mynd-
um er fylgdu Teofani-sígarett-
um á árunum 1929 og 1930. Safn-
ið á nokkrar ómerktar myndir og
biður lesendur Fréttablaðsins um
aðstoð.
Á vef Kvennasögusafnsins,
www.kvennasogusafn.is/Teofani/
Teofani/Teofani.htm er hægt að
skoða allar myndirnar.
Ef einhver ber kennsl á stúlk-
urnar er hann beðinn að hafa sam-
band við Kvennasögusafnið í síma
525 5779 eða í tölvupósti á net-
fangið audurs@bok.hi.is.
Þekkir einhver
þessar stúlkur?
EF ÞETTA ER ÞÚ, mamma þín, amma,
systir eða frænka láttu kvennasögusafn-
ið vita.
Ástarvikan á Bolungarvík er hald-
in í fimmta sinn nú í vikunni. Hún
hófst í gær og stendur fram á
laugardag með veglegri dagskrá
hvern dag vikunnar.
„Við fögnum fimm ára afmæl-
inu. Því skyldi nú enginn trúa því
þetta átti bara að vera pínulítil
heimahugmynd,“ segir Soffía
Vagnsdóttir ástarvikuforkólfur.
„Það er ótrúlega gaman hvað þetta
lifir skemmtilega og hvað fólk
er duglegt að vera með og taka
þátt.“
Soffía segir að upphaflega hafi
hátíðin verið haldin vegna þess
að fólki í Bolungarvík hafði fækk-
að og eitthvað þurfti að gera í því
máli. „Fara í fleiri svefnherbergi
og græja þetta bara,“ segir hún
hlæjandi.
Ástarvikan hefur vakið athygli
út fyrir landsteinana; spænsk
blaðakona hefur verið að markaðs-
setja Ástarvikuna á Spáni að sögn
Soffíu. „Einhvers staðar hafði hún
lesið um vikuna og óskaði eftir að
vera stödd hérna í vikunni. Svo
birtist hún bara og fer daglega í
viðtöl á spænskar útvarpsstöðvar
og sendir fréttir í kvennatímarit.“
- mmf
Ástarvika í
fimmta sinn
ÁSTARVIKAN var upphaflega haldin til
að fjölga Bolvíkingum.
MYND/SOFFÍA VAGNSDÓTTIR