Fréttablaðið - 11.08.2008, Blaðsíða 36
Fimleikadeild Ármanns
Innritun fyrir haustönn 2008 stendur nú yfi r til 24. ágúst. Skráningarblað
má nálgast á: www.armenningar.is, og nánari upplýsingar fást hjá fi m-
leikar@armenningar.is og í síma 580-5909. Boðið verður uppá fi mleika
fyrir stelpur og stráka frá 5 ára aldri undir umsjón reyndra þjálfara. Byrjen-
dur æfa tvisvar í viku, 50 mín í senn og fá grunnþjálfun sem nýtist í öllum
íþróttum. Einnig er boðið uppá framhaldshópa og keppnisþjálfun pilta og
stúlkna. Tekið verður við greiðslum og stundatöfl ur afhentar 28. ágúst, frá
kl. 9-20. Æfi ngar hefjast skv. stundaskrá mánudaginn 1. sept. Þá verða
krílahópar fyrir 3-5 ára börn á laugardagsmorgnum, sem hefjast 6. sept.
Stjórn fi mleikadeildar Ármanns
SENDU SMS
BTC TMS
Á NÚMERIÐ 1900
VINNINGAR ERU BÍÓMÐ
IAR, TÖLVULEIKIR
OG DVD MYNDIR OG FLE
IRA
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
HVERVINNUR!
9.
!
Ævintýramynd Sumarsins
Stærstu Ævintýrin eru Ódauðleg!
Frumsýnd . Ágúst
-SJÁÐU
MYNDINA
-SPILAÐU
LEIKINN!
20 11. ágúst 2008 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> STREEP Í RÓMANTÍK
Leikkonan Meryl Streep, sem
þykir fara á kostum í söngva-
myndinni Mamma Mia!, hefur
tekið að sér hlutverk í nýrri
rómantískri gamanmynd sem
hefur enn ekki hlotið nafn.
Leikstjóri myndarinnar verð-
ur Nancy Meyers sem
hefur á ferilskránni
myndir á borð við The
Holiday, Something´s
Gotta Give og What
Women Want.
Amy Winehouse hefur loks ástæðu til
að gleðjast, því samkvæmt heimildum
breska blaðsins News of the World
gæti svo farið að eiginmanni hennar,
Blake Fielder-Civil, verði sleppt úr
fangelsi strax um áramótin. Fielder-
Civil situr inni fyrir tilraun til að
hindra framgang réttvísinnar, en í lok
júlí var hann dæmdur í 27 mánaða
fangelsi.
Nú mun honum hins vegar hafa
verið tilkynnt að hann fái um frjálst
höfuð strokið strax um áramótin, ef
hann haldi sig frá öllum eiturlyfjum
þangað til. Fielder-Civil gæti einnig
fengið að fara í helgarheimsóknir út
fyrir fangelsið frá og með næsta
mánuði, með sömu skilmálum.
Móðir Fielder-Civil, Georgette, hefur
hins vegar þrábeðið son sinn um að
koma til sín frekar en að fara til
eiginkonu sinnar yfir umrædda helgi.
„Við erum að vona að skilorðseftir-
litsmaðurinn hans ráðleggi honum að
koma til okkar. Ef hann tengist
eiturlyfjum eitthvað yfir helgina
verður honum ekki sleppt svona
snemma,“ segir Georgette, sem hefur
ítrekað lýst yfir áhyggjum af því að
Amy muni koma syni sínum í vand-
ræði á ný. „Honum verður sleppt 30.
desember ef hann hagar sér vel. Ég
hef sagt honum að láta lítið fyrir sér
fara.“
Amy ekki ein um áramótin
Baum und Pferdgarten
Á öðrum degi tískuvikunnar ligg-
ur leið mín í Ráðhúsið, þar sem
Baum und Pferdgarten-sýningin
er að hefjast. Eftirvæntingin var
mjög mikil, enda hefur Baum und
Pferdgarten verið mitt uppáhalds-
merki í mörg ár. Tónlistin er
skrúfuð í botn og sýningin hefst.
Inn koma hvítklæddar stúlkur,
hver á fætur annarri. Þá sjást
fallegir fjólubleikir kjólar, ljós-
fjólubláar blússur og rósóttar
silkibuxur. Kjólarnir eru annað-
hvort stuttir eða gólfsíðir, og
eins og hjá öðrum merkjum í
þessari tískuviku eru bux-
urnar klofsíðari en oft áður.
Ég er gjörsamlega hug-
fangin af hverri einustu flík.
Sýningin er frábær í alla
staði.
Designers Remix
Collection
Að Baum und Pferd-
garten-sýningunni lok-
inni liggur leið mín í dýra-
garðinn í Frederiksberg,
þar sem Designers Remix Collect-
ion ætlar að sýna línuna sína í nýja
fílahúsinu. Stemningin fyrir utan
er létt og skemmtileg og allir sam-
mála um að sýningarstaðurinn sé
frábær hugmynd. Fólk treður sér
inn í neonlýst fílahúsið, þar sem
örlítil fílalykt svífur yfir vötnum.
Einnig hér hefst sýningin á hvít-
klæddum stúlkum. Formin eru
mjög sérstæð og efnin í fellingum,
nánast eins og pappír. Ótrúlega
fallega gert. Mynstrin eiga rætur
sínar að rekja til Japan, eins og
mikið af sníðagerðinni.
Kjólarnir eru bæði stuttir og
egglaga, á móti síðum og flögr-
andi. Helstu litirnir hjá Designers
Remix eru hvítur, svartur og grár,
en litapallettan var líka bleik og
fjólublá. Falleg sýning með ein-
stakri sníðagerð.
Malene Birger
Danska tískudrottningin sýnir
klukkan átta á þriðja degi tísku-
vikunnar. Það er alltaf mikil eftir-
vænting eftir þessari stærstu sýn-
ingu vikunnar. Ég kem mér fyrir á
fremsta bekk að þessu sinni og get
ekki beðið.
Sýningin hefst með svörtum
kjól með breiðu belti í mittinu,
svörtum skóm með háum leður-
legghlífum yfir. Litirnir breytast í
ljósbrúna tóna með smá bleikum
keim. Gul kápa með skrauti á öxl-
inni situr föst í huga mér. Antík-
bleikir kjólar, græn pils og buxur.
Dökkbleik kápa sem límir sig
einnig fast í hugann. Mikið af
svörtu og hvítu saman, bæði sem
mynstur og í einstökum flíkum.
Í lokin eru sýndir kjólar sem
eru ekki fjöldaframleiddir, þeir
tilheyra línu Salon By Malene Bir-
ger. Fallegir chiffon-, silki-, pallí-
ettu- og tjullkjólar svífa um svið-
ið. Litirnir eru ljósir í bland við
neongulan. Þegar síðasta sýning-
arstúlkan gengur inn ætlar lófa-
takið aldrei að hætta. Fólk stendur
upp og tískudrottninginn fær
endalaust hrós. Helga Ólafsdóttir
Sumartíska næsta árs
Tískuvikunni í Kaupmannahöfn, þar sem hönnuðir sýna línur sínar fyrir næsta sumar,
lauk í gær. Helga Ólafsdóttir þræddi sýningarnar í borginni og deilir hér með sér af upp-
lifunum sínum.
BLAKE MÖGULEGA FRJÁLS Í DESEMBER Eigin-
manni Amy Winehouse hefur verið sagt að
hegði hann sér vel geti honum verið sleppt úr
fangelsi strax í desember. NORDICPHOTOS/GETTY
Fimmta plata Sigur Rósar, Með
suð í eyrum við spilum endalaust,
hefur selst í fimm þúsund eintök-
um hér á landi og er þar með
komin í gull. Nýtt upplag af plöt-
unni er nýkomið í búðir eftir að
fyrra upplagið seldist upp.
„Mér finnst salan á þessari nýju
plötu vera alveg frábær. Þótt hún
hafi gengið vel þegar hún kom út
og í kringum tónleikana (í Laugar-
dalnum í sumar) hefur hún verið
að seljast jafnt og vel,“ segir
Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri
Smekkleysu.
Síðasta plata Sigur Rósar, Takk,
seldist í átta þúsund eintökum á
sínu fyrsta ári en hún kom út
skömmu fyrir jólavertíðina. Því
má búast við að nýja platan eigi
eftir að síga fram úr Takk þegar
líða tekur á árið. - fb
Sigur Rós í gullsölu
SIGUR RÓS Hljómsveitin Sigur Rós hefur selt fimm þúsund eintök af nýjustu plötu
sinni á Íslandi.
BAUM UND PFERDGARTEN
DESIGNERS REMIX
COLLECTION
MALENE
BIRGER