Fréttablaðið - 20.08.2008, Page 37
MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 19
0
8
-1
0
5
4
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
11
Helga Rún Pálsdóttir ætlar að dubba
styttur bæjarins upp með virðulegum
höfuðbúnaði á menningarnótt.
„Ég hef alltaf velt því fyrir mér hvers
vegna styttur bæjarins eru ekki með höf-
uðföt. Þessar styttur standa úti og á þeim
tíma sem þessir menn voru uppi fóru karl-
menn ekki út úr húsi án höfuðfats,“ segir
Helga Rún Pálsdóttir, búningahönnuður
og klæðskerameistari og eina starfandi
hattadaman á Íslandi.
Í tilefni menningarnætur hyggst Helga
ráða bót á hattaleysi styttnanna í miðborg-
inni. Hún hefur setið við undanfarna daga
og hannað og saumað hatta fyrir þá Jón
Sigurðsson, Jónas Hallgrímsson, Kristj-
án IX., Skúla fógeta, Ólaf Thors og Hann-
es Hafstein. Að morgni menningarnætur
ætlar Helga síðan að leggja af stað í mið-
bæinn með stiga og koma höttunum á sinn
stað.
„Þeir verða örugglega ánægðir að fá
loksins eitthvað á höfuðið. Það má til
dæmis ekki gleyma því að Jón Sigurðsson
hafði ástríðu fyrir pípuhöttum og regn-
hlífum og safnaði meira að segja höttum.
Þess vegna er ómögulegt að hann sé ekki
með hatt,“ segir Helga. „Mér fannst til-
valið að nota menningarnótt sem tækifæri
til að fullklæða þessa menn og vekja um
leið athygli á styttunum sem maður geng-
ur fram hjá og er hættur að sjá,“ útskýr-
ir hún og bætir því við að það hafi komið
henni á óvart hversu stórar stytturnar eru.
Ætli einhver til dæmis að nappa hattinum
af Skúla fógeta er ólíklegt að viðkomandi
geti notað hann þar sem höfuðmál hans er
talsvert meira en á meðalmanni. - þo
Loksins setur Jón Sigurðs-
son upp pípuhattinn
Hattadaman Helga Rún ætlar að setja hatta á styttur bæjarins á menningarnótt. Sá stóri grái er ætlaður
Ólafi Thors. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Supergrúppan Esja mætir á Laugaveginn í
Skífuna kl. 17.
Hljómplötuverslanir í miðbænum
verða allar opnar á menningarnótt.
12 tónar verða með sína árlegu út-
sölu þar sem kostur gefst á góðum
dílum, Smekkleysa er flutt norður
yfir Laugaveginn og komin í nýtt hús-
næði. Elsta hljómplötubúðin á Lauga-
veginum, Skífan, skartar sínu feg-
ursta og mun standa fyrir glæsilegri
tónleikadagskrá á menningarnótt og
munu tónleikarnir hefjast kl 13.00
um daginn og mun ný hljómsveit stíga
á stokk á heila tímanum til kl. 18.00.
Fram koma í þessari röð: Múgsefjun,
Helgi Björns, Megas, KK, Esja, Sig-
urður Guðmundsson og Memfismafí-
an og Mood. Rýmt verður fyrir gest-
um og eru allir velkomnir en frekari
upplýsingar og nánari tímasetningar
er hægt að finna á heimasíðu Skífunn-
ar www:skifan.is
Skífuteiti á
Laugavegi
menningarnótt ● fréttablaðið ●