Fréttablaðið - 03.09.2008, Page 2
2 3. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Það er verst að
læknir skuli hafa greint þetta á
rangan hátt,“ segir Einar Þórðar-
son, faðir drengs sem veiktist
hastarlega af salmonellusýkingu á
Rhodos í ágúst.
Sonur Einars var í tíu pilta hópi
æskuvina úr Grafarvogi sem hélt
til Rhodos 9. ágúst síðastliðinn.
Hópurinn dvaldist á hótelinu
Forum Beach og var þar í fullu
fæði.
„Þeir borðuðu á hótelinu fyrsta
kvöldið og hádegismat daginn
eftir. Um kvöldið veiktust þeir
einn af öðrum. Það sama gerðist
með sjö af átta meðlimum tveggja
íslenskra fjölskyldna og átta úr
fimmtán manna hópi úr Mennta-
skólanum í Kópavogi,“ segir
Einar.
Sumir Íslendinganna fóru til
læknis og fengu, að sögn Einars,
þann úrskurð að þeir hefðu smit-
ast af vírus og var gefið lyf sam-
kvæmt því. Eftir heimkomuna til
Íslands 23. ágúst kom hins vegar í
ljós að um salmonellusýkingu var
að ræða. Að sögn Einars var einn
pilturinn svo illa haldinn að hann
reyndist þurfa á aðgerð að halda.
„Og annar fjölskyldufaðirinn fékk
sýkinguna í liði og er enn veikur,“
segir Einar.
Drengir í hópnum halda því
fram að aðbúnaðurinn á Forum
Beach hafi verið fyrir neðan allar
hellur. Hótelið hafi verið afar
óþrifalegt og að maturinn hafi
verið mjög ólystugur. Endað hafi
með að þeir hafi neytt flestra
sinna máltíða utan hótelsins þrátt
fyrir að hafa greitt fyrir fullt
fæði.
„Það er vont að viðbrögð farar-
stjóranna voru bara afneitun á því
hversu ástandið var alvarlegt,“
segir Einar sem kveður þá sem
sýktust nú hafa borið saman
bækur sínar. Þeir vilji fá bætur og
vari aðra við.
Sóttvarnarlæknir hér heima
hefur rannsakað málið og rekur
sýkinguna til hótelsins ytra. Hann
hefur verið í sambandi við erlend
sóttvarnaryfirvöld. Hópur Svía
sem dvaldist á hótelinu sýktist
einnig.
Tómas Gestsson, forstjóri
Heimsferða, segir að til að geta
gert kröfu á Forum Beach þurfi
meðal annars að liggja fyrir skjal-
festar sjúkdómsgreiningar sem
hægt sé að senda utan. „Við
munum aðstoða okkar farþega til
að ná fram rétti sínum en til þess
þurfum við að hafa eitthvað í
höndunum. Það getur vel verið að
þetta fólk hafi borðað eitthvað
annars staðar,“ bendir Tómas á og
segir að fjöldi annarra gesta á hót-
elinu hafi ekki veikst.
Forstjórinn er ekki sammála því
að starfsmenn Heimsferða hafi
verið sinnulitlir. „Við reyndum að
gera eins og við gátum.“
gar@frettabladid.is
Þeir borðuðu á hótelinu
fyrsta kvöldið og hádeg-
ismat daginn eftir. Um kvöldið
veiktust þeir enn af öðrum.
EINAR ÞÓRÐARSON
FAÐIR DRENGS SEM VEIKTIST
®
Hafdís, fallið þið enn í kram-
ið?
„Já, heldur betur, og erum langt því
frá að lenda í ellikröm.“
Hafdís Árnadóttir er eigandi Kramhússins,
sem fagnar 25 ára afmæli um þessar
mundir.
HEILBRIGÐISMÁL Stjórnendur Fæð-
ingardeildarinnar hjá Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja ætla að sækja
um undanþágur í boðuðu tveggja
sólarhringa verkfalli ljósmæðra
sem hefst á miðnætti í kvöld. Ef
allt gengur eftir verður ein ljós-
móðir á dagvakt og ein á nætur-
vakt í verkfallinu. Sjúkraliði verð-
ur á kvöldvakt eins og alltaf en
engin ljósmóðir. Ein ljósmóðir
verður hins vegar á bakvakt á Suð-
urnesjum og verður hún kölluð til
ef þörf krefur.
Magnús Skúlason, forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands,
sendi í gær frá sér tilkynningu um
að sótt yrði um heimild hjá undan-
þágunefnd í dag um að ávallt sé
ljósmóðir á vakt á fæðingardeild-
inni á Selfossi í verkfallinu.
Mæðravernd félli hins vegar niður
á heilsugæslustöðinni í Laugarási.
Mönnun á fæðingar- og sængur-
legudeild Landspítala verður með
eðlilegum hætti ef verkfall skell-
ur á. Anna Stefánsdóttir, forstjóri
Landspítalans, segir að þjónustu-
stig verði óbreytt hvað fæðingar
varðar í verkfallinu.
„Við erum að undirbúa það að
veita alla nauðsynlega þjónustu
við fæðandi konur og munum gera
það,“ segir hún. „Við verðum með
heila sængurlegudeild opna og
okkar áætlun gerir ráð fyrir að
þar geti konur fætt. Okkar neyð-
aráætlun gerir ráð fyrir að við
sinnum þeim konum sem leita til
okkar.“
Í dag verður skipað í undan-
þágunefnd, sem skipuð verður
einum fulltrúa heilbrigðisráðu-
neytisins og einum fulltrúa Ljós-
mæðrafélagsins. Samningafundur
hefur ekki verið boðaður fyrr en á
morgun. Guðlaugur Þór Þórðar-
son heilbrigðisráðherra kveðst
ekki úrkula vonar um að samn-
inganefndum takist að ná samn-
ingum.
- ghs
VILJA LJÓSMÓÐUR Á VAKT Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja sækir um undan-
þágur fyrir ljósmóður á vakt í dag og
sama gildir um Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja. Ljósmóðir verður því kannski á
vakt á báðum stöðum þrátt fyrir verkfall.
Heilbrigðisstofnanir búa sig undir verkfall ljósmæðra í kvöld:
Sækja um undanþágur í dag
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur gefið út þrjár
ákærur á hendur einstaklingum sem ráðist hafa
gróflega að lögreglumönnum við skyldustörf. Málin
hafa öll verið þingfest í Héraðsdómi Reykjaness.
Rúmlega þrítugur Hafnfirðingur var ákærður fyrir
að sparka í vinstri sköflung lögreglumanns, sem var
við störf í Leifsstöð. Lögreglumaðurinn hlaut nokkra
áverka þegar maðurinn sparkaði í hann.
Sami einstaklingur var einnig ákærður fyrir að
hafa sparkað í klof annars lögreglumanns í lögreglu-
bifreið sem hafði verið stöðvuð við hringtorg á
mótum Ásbrautar og Strandgötu í Hafnarfirði.
Þá var annar einstaklingur á fimmtugsaldri, einnig
úr Hafnarfirði, ákærður fyrir að hafa rifið í hár
lögreglukonu, sem þar var við skyldustörf, stungið
fingrum sínum upp í munn hennar, klórað hana í
tannholdið og slegið hana með krepptum hnefa í
vinstri kjálka. Hún hlaut opið sár á vör og í munnhol
sem sauma þurfti með nokkrum sporum og eymsli
hægra megin í kjálka og kjálkalið. - jss
LÖGREGLUMENN Lögreglumenn mega búa við árásir og hótan-
ir þegar þeir eru við skyldustörf eins og dæmin sanna.
Ríkissaksóknari ákærir vegna líkamsárása:
Grófar árásir á lögreglumenn
Íslendingahópur fékk
salmonellu á Rhodos
Framhaldsskólanemar og fjölskyldufólk vill bætur vegna salmonellusýkingar
og lélegs aðbúnaðar á Rhodos. Forstjóri Heimsferða segir orsök veikindanna
enn óljósa en sóttvarnarlæknir á Íslandi rekur sýkinguna til hótelsins ytra.
VEIKTUST Á RHODOS „Þessi ferð var alger skita,“ er samdóma álit piltanna úr Grafar-
vogi sem sýktust af salmonellu á Rhodos. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LÖGREGLUMÁL Manninum sem setið
hefur í gæsluvarðhaldi undanfarna
daga vegna gruns um kynferðis-
brot gegn fósturdóttur sinni var
sleppt úr haldi í gær, þar sem
rannsóknarhagsmunir voru ekki
lengur til staðar.
Maðurinn var handtekinn fyrir
réttri viku og úrskurðaður í
gæsluvarðhald í Héraðsdómi
Reykjavíkur vegna rannsóknar-
hagsmuna. Hann kærði úrskurðinn
til Hæstaréttar sem staðfesti hann.
Maðurinn var í skýrslutökum
hjá lögreglu í gær, en var sleppt að
þeim loknum. Rannsókn málsins er
langt komin. Það verður sent
ákæruvaldinu innan tíðar. - jss
Grunaður um kynferðisbrot:
Laus úr fangelsi
ALÞINGI Rætt verður um stefnu
ríkisstjórnarinnar í virkjana- og
stóriðjumálum
utan dagskrár á
Alþingi í dag.
Standa umræð-
urnar í tvær
klukkustundir.
Fara þær fram
að ósk Stein-
gríms J.
Sigfússonar,
formanns VG,
og verður Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
til andsvara.
Við upphaf þingfundarins verða
óundirbúnar fyrirspurnir til
ráðherra. - bþs
Rætt um virkjanir og stóriðju:
Tveggja stunda
umræður í dag
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VEÐUR „Það er útlit fyrir bjarta og
góða daga um mest allt land
næstu daga,“ segir Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur.
Einar býst við góðviðri fram að
helgi en þá fari að þykkna upp,
helst vestanlands.
„Það þykknar upp um helgina
með sunnanáttum en fram að
þeim tíma verður lítið um ský og
tiltölulega hlýtt loft yfir landinu,“
segir Einar. Landsmenn ættu því
víðast hvar að geta séð til sólar.
„Sumir kalla þetta sumarauka,
þegar komið er fram í september
og gerir góða daga, en samkvæmt
skilgreiningunni er sumarið út
september.“ - ovd
Ekkert haust í veðurkortunum:
Bjartir og góðir
dagar í vikunni
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
sýknaður í máli, þar sem honum
var gefið að sök að hafa nauðgað
heyrnarskertri konu, sem gat
ekki vegna ölvunar og svefn-
drunga spornað gegn verknaðin-
um.
Maðurinn neitaði sök. Í málinu
var ekki ágreiningur um að
maðurinn og konan hefðu haft
samfarir. Hins vegar taldi
dómurinn vafa leika á því að
maðurinn hefði mátt ætla að þær
væru gegn vilja konunnar eða að
hún væri í því ástandi að geta
ekki spornað við þeim. Þessi vafi
var manninum í hag, þannig að
hann var sýknaður. - jss
Héraðsdómur Reykjaness:
Sýknaður af
kynferðisbroti
DUBAI/AP Burj Dubai-skýjakljúf-
urinn í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum er orðin sá
hæsti í heimi, eða 688 metrar á
hæð.
Enn er verið að byggja
skýjakljúfinn og fær enginn að
vita hvað hann verður nákvæm-
lega hár fyrr en framkvæmdum
lýkur í september á næsta ári.
Skýjakljúfurinn Taipei 101 hefur
verið hæsta byggingin síðan 2004.
- vsp
Hæsta bygging heims:
Turninn 688
metrar hár
BURJ DUBAI Svona mun turninn líta út
þegar hann hefur verið kláraður í sept-
ember á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fisk og franskar í Moggahöll
Eigendur veitingastaðarins Fish &
Chips í Tryggvagötu fá jákvæðar und-
irtektir byggingarfulltrúa við ósk um
að innrétta veitingastað í núverandi
móttökusal og skrifstofu á fyrstu og
annarri hæð gamla Morgunblaðs-
hússins í Aðalstræti.
REYKJAVÍK
SPURNING DAGSINS