Fréttablaðið - 03.09.2008, Page 4
4 3. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
16°
19°
20°
19°
19°
19°
20°
24°
23°
31°
30°
24°
20°
27°
28°
32°
32°
Á MORGUN
Hægviðri
3
FÖSTUDAGUR
3-8 m/s
9
10
10
8
8
9
12
12
10
12
12
6
6
2
5
6
3
2
2
5
1
8 9
9
1010
11 10
11 10
FÍNASTA VEÐUR
Hægur vindur er
í kortunum í dag
og næstu daga. Er
helst að sjá að á
sunndaginn bæti
í vind vestan til á
landinu. Má búast
við úrkomulitlu
veðri fram undir
helgi þótt einhverjir
dropar kunni að
falla hér og þar,
einkum þó með
ströndum. Hann
er heldur að kólna
frá því sem verið
hefur.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
GENGIÐ 02.09.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
159,18
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
83,97 84,37
149,56 150,28
121,68 122,36
16,311 16,407
15,207 15,297
12,860 12,936
0,772 0,7766
130,62 131,40
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
ALÞINGI Besta andsvar okkar við
núverandi efnahagsþrengingum
er að virkja auðlindirnar í auknum
mæli með ábyrgum hætti – jarð-
hita jafnt sem vatnsafl. Og besta
leiðin til að vinna okkur út úr tíma-
bundnum erfiðleikum er að fram-
leiða, framleiða og aftur fram-
leiða.
Þetta sagði Geir H. Haarde for-
sætisráðherra í umræðum um
efnahagsmál á Alþingi í gær. Geir
flutti þinginu skýrslu um ástand
og horfur og rakti þær aðgerðir
sem þegar hefur verið gripið til af
hálfu stjórnvalda. Sagði hann
ásakanir um að ríkisstjórnin hefði
ekkert aðhafst ekki á rökum reist-
ar. Taldi hann til rýmri reglur
Seðlabanka um veð í viðskiptum
við fjármálastofnanir, gjaldeyris-
skiptasamninga, ráðstafanir
tengdar Íbúðalánasjóði, skulda-
bréfa- og víxlaútgáfu, niðurfell-
ingu stimpilgjalda, skattalækkan-
ir á fyrirtæki og aðild að
samkomulagi Evrópusambands-
þjóða um viðbrögð við fjármála-
kreppu.
Sagði hann einnig frá því að
þessa dagana væri verið að ganga
frá nýju gjaldeyrisláni að fjárhæð
að minnsta kosti 250 milljónir evra.
Eru það rúmir 30 milljarðar króna.
Lánið væri á mun hagstæðari kjör-
um en skuldatryggingarálag ríkis-
sjóðs gæfi til kynna. Með nýja lán-
inu og öðrum ráðstöfunum hefði
gjaldeyrisforðinn fimmfaldast á
tveimur árum og næmi rúmum 500
milljörðum króna.
Geir sagði margt benda til þess
að frá og með haustinu muni verð-
bólgan ganga niður á nýjan leik, að
því gefnu að ekki verði óvænt áföll.
Við þær aðstæður gætu vextir
lækkað hratt og fyrirtækin í land-
inu á ný ráðið fleira fólk. Sagði
hann ríkisstjórnina leita samráðs
og hafa samvinnu við aðila vinnu-
markaðarins og fleiri til að ná sem
bestri samstöðu í baráttunni gegn
tímabundinni kjaraskerðingu.
Hvatti hann heimilin til að sýna
aðhaldssemi; í verðbólgu væri fátt
skynsamlegra en að borga niður
skuldir og leggja fé til hliðar. Sagði
hann jafnframt brýnt að allir sem
hlut eiga að máli standist þá freist-
ingu að hækka verð.
Geir sagði að þótt þrenginga
hefði orðið vart á vinnumarkaði
upp á síðkastið mætti ekki gleyma
að langflestir gætu gengið að fullri
atvinnu með vissu. Sagði hann þá
sem missa vinnuna geta treyst á
velferðarkerfið og sveigjanleika
vinnumarkaðarins. En eftir sem
áður væri það forgangsverkefni
ríkisstjórnarinnar að tryggja að
hér verði full atvinna fyrir vinnu-
fúsar hendur. bjorn@frettabladid.is
Mikilvægt að virkja
og auka framleiðslu
Forsætisráðherra segir brýnt að auka verðmætasköpun með virkjun auðlinda
og aukinni framleiðslu. Hann segir teikn á lofti um að verðbólgan hjaðni með
haustinu. Verið er að ganga frá erlendri lántöku til að auka gjaldeyrisforðann.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, gagnrýndi
ríkisstjórnina fyrir aðgerðaleysi
gegn verðbólgu. Ekkert hefði verið
gert til að bæta
hag heimilanna
í hinu erfiða
árferði. Nefndi
hann álögur á
olíu og bensín
sérstaklega; það
myndi koma sér
vel fyrir fólk ef
ríkið lækkaði
þær.
Guðjón sagði
að auka þyrfti
atvinnu og tekjur og mælti með
auknum þorskveiðum í því
sambandi. Varaði hann jafnframt
við innleiðingu matvælalöggjafar
ESB enda gætu þúsundir starfa í
úrvinnsluiðnaði tapast við það.
Kvaðst Guðjón einnig óttast að
ungt fólk yfirgæfi landið í því
árferði sem nú ríkti. - bþs
Ekkert aðhafst
gegn verðbólgu
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
Sjálfstæðisflokkurinn ber fulla
ábyrgð á hvernig er að fara fyrir
efnahagsmálunum um þessar
mundir, sagði Guðni Ágústsson,
formaður Framsóknarflokksins.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
hefði tekist á
við málin af
fullri ábyrgð í
stjórnarsam-
starfinu við
Framsókn en
gerði það ekki
nú. Guðni gaf
lítið fyrir ræðu
forsætisráðherra; ríkisstjórnin
aðhefðist ekkert til að bjarga hag
heimilanna og sjá til þess að
atvinnulífið efldist. Hún hefði
brugðist. Þó væri jákvætt að hún
hefði nú, í fyrsta sinn, viðurkennt
að eitthvað væri að. - bþs
Ábyrgðin Sjálf-
stæðisflokksins
GUÐNI ÁGÚSTSSON
„Það eru blikur á lofti í efnahags-
málum en ekki óveður,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
utanríkisráðherra. Fram undan
væri að greiða úr lausafjárvanda
bankanna, kljást
við verðbólguna
og vinna að
stöðugleika og
langtímahag-
vexti. Sagði hún
bankana þurfa
að hætta að
skerða starfsfé
sitt með
óhóflegum
bónus- og
arðgreiðslum. Ingibjörg sagði
forsendur kjarasamninga brostnar
og á því þyrftu að taka. Mikilvægt
væri að endurskoða peningamála-
stefnuna og móta þyrfti orkunýt-
ingarstefnu til framtíðar.
- bþs
Bankarnir taki
til í eigin ranni
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, rakti ástand mála í nokkr-
um orðum. Uppsagnir, niðurskurð-
ur, mikil verðbólga, aukin vanskil,
óheyrilegur vaxtamunur við
útlönd, gengis-
vísitala nálægt
sögulegu
lágmarki og
brostnar
forsendur
kjarasamninga
væru staðreynd-
ir sem töluðu
sínu máli.
„Veruleikinn
er sá að við
erum föst í vítahring óðaverðbólgu
og okurvaxta sem skerða nú
lífskjör í landinu upp á hvern
einasta dag. Rýra kaupmátt
landsmanna, skrúfa upp lánin og
valda miklum erfiðleikum,“ sagði
hann og gaf lítið fyrir mat
stjórnarflokkanna á ástandinu. - bþs
Óðaverðbólga
og okurvextir
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
EFNAHAGSMÁLIN RÆDD
Á ALÞINGI Geir H. Haarde
forsætisráðherra flutti skýrslu
um efnahagsmál við upphaf
septemberþings í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
STJÓRNMÁL „Við munum að sjálfsögðu mæta
með ýmsar hugmyndir í farteskinu og leggja
þær í púkkið,“ segir Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ, um ræðu Geirs H. Haarde
forsætisráðherra á Alþingi í gær þar sem
hann boðaði að ríkisstjórnin hygðist leita
samráðs við aðila vinnumarkaðarins og fleiri.
„Þessu höfum við verið að kalla eftir síðan í
vor. Það er auðvitað aldrei of seint og þess
vegna reikna ég með því að við verðum kallað-
ir til á næstu dögum til samráðs og sam-
vinnu,“ segir Grétar.
Hann segir slíka samvinnu oft hafa reynst
með ágætum. Síðasta dæmið séu þrengingarn-
ar á árunum 2001 og 2002 þó þær séu ekkert í
líkingu við ástandið í dag.
„Þótt enginn sé með töfralausnina þá eru
allir með einhverjar hugmyndir og þegar þeir
setjast saman þá skilar það oftar en ekki
verulegum árangri.“
Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra
Samtaka atvinnulífsins, fannst tilkynning
Geirs um að ríkinu hefði tekist að taka lán á
góðum kjörum vera mjög jákvætt skref.
„Það er atlaga að því að rjúfa þetta umsátur
um íslenska fjármagnsmarkaðinn þar sem
okkur hefur ekki tekist að njóta eðlilegra
lánskjara,“ segir Vilhjálmur. „Þetta er eitt af
því sem menn hafa verið að kalla eftir, að
ríkið stigi fram og tæki lán á eðlilegum
kjörum og efldi gjaldeyrisforðasjóðinn.“ Nú
sé von til að bankarnir geti fylgt á eftir og
notið betri kjara en þeir njóta nú.
Eins fannst Vilhjálmi jákvætt hvernig
forsætisráðherra talaði um auðlindir og
nýtingu þeirra. „Ég held að það sé mjög
mikilvægt að fá skýr skilaboð frá ríkisstjórn-
inni í þeim efnum. Þetta eflir mönnum trú á
framtíðina og hagvaxtarmöguleika á Íslandi.“
- ovd
Viðbrögð aðila á vinnumarkaði við ræðu forsætisráðherra um efnahagsmál:
Enginn með töfralausn á vandanum
GRÉTAR ÞORSTEINSSON VILHJÁLMUR EGILSSON