Fréttablaðið - 03.09.2008, Síða 16
16 3. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í
103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Vera má að einhverjum finnist undarlegt hve Nikulás
Sarkozy forseti skipar mikið rúm
á þessum blöðum mínum, en þá er
því til að svara að það er nánast
ógerningur að skrifa um einhver
frönsk málefni þessa stundina,
hver sem þau eru, án þess að hann
skjóti upp kollinum einhvers
staðar í einhverjum línum eða þá á
milli þeirra. Það er nefnilega ekki
ofmælt að hann sé upphaf flestra
þeirra tíðinda sem nú verða í
Frakklandi eða endir þeirra, nema
hvort tveggja sé. Og þetta
sannaðist fyrir nokkru á dramat-
ískan hátt.
Síðast í júní var haldin mikil
hersýning í borginni Carcassonne
sunnarlega í landinu, sem er einn
af þeim stöðum þar sem herbúðir
með setuliði hafa verið staðsettar
frá fornu fari. Sýningin var
reyndar kölluð „opinn dagur“ í
herbúðunum, og eitt af því sem
var til sýnis voru handbrögð
hermannanna við að gera árás til
að leysa gísla úr haldi. En þegar
hermennirnir stukku fram og
byrjuðu að freta úr sínum hólkum,
gerðist furðulegur og í rauninni
óskiljanlegur atburður. Það kom í
ljós að einn hermannanna hafði
ekki hlaðið hríðskotabyssu sína
með púðurskotum eins og lög gera
ráð fyrir, heldur hafði hann sett í
hana raunveruleg skot með 5,56
mm kúlum, og nú skaut hann þeim
á ímyndaðan hryðjuverkamann
mitt í áhorfendaskaranum. Eftir
skothríðina lágu sautján særðir.
Fjórir voru mjög alvarlega særðir,
þ.á m. tveir lífshættulega, en fyrir
guðs miskunn lifðu þeir allir.
Engin skýring fékkst á þessum
atburði, og var ekki ljóst hvort
þetta voru „mannleg mistök“ eins
og sagt er, hreinn og beinn
klaufaskapur – frumhlaup
hermanns sem ímyndaði sér öfugt
við alla skynsemi að það væri
meira púður í að hafa alvöru kúlur
– eða þá vísvitandi spellvirki.
Þetta síðasta er þó langólíklegast.
Hermálaráðherrann og yfirmaður
herforingjaráðs landhersins,
Bruno Cuche hershöfðingi, fóru
þegar á stúfana og heimsóttu þá
sem særst höfðu. Um leið var
boðuð rannsókn í málinu, og sá
sem var talinn bera ábyrgðina var
settur í gæsluvarðhald.
Þetta var hörmulegur atburður,
og voru viðbrögð yfirvalda í réttu
samræmi við það; meira var varla
hægt að gera að svo stöddu. En þá
fann Sarkozy forseti brýna þörf
fyrir að uppljúka sínum túla. Hann
fór sjálfur til Carcassonne, gekk
um sjúkrahúsið í fylgd með
hermönnum, en hann heilsaði
engum þeirra heldur rak hann
vísifingurinn í áttina að Cuche
hershöfðingja og sagði í bræði:
„Þið eruð fúskarar! Það er ekki til
í ykkur nein atvinnumennska!“
Hann bætti því við, að hann vildi
að mönnum yrði refsað yfir alla
línuna, og svipuð orð lét hann falla
í sjónvarpinu sama kvöld, af meiri
hófsemi að vísu.
Viðbrögðin við þessu voru þau
að Bruno Cuche hershöfðingi
sagði þegar af sér embætti sínu
sem yfirmaður herforingjaráðs
alls landhersins. Engin yfirlýsing
var gefin, enda kalla Frakkar
herinn gjarnan „hinn mikla
þegjanda“. En í orðræðum
blaðamanna við herforingja sem
„vildu ekki láta nafns síns getið“
kom í ljós að hermenn voru
yfirleitt sárir og reiðir, þeir töldu
rangt að gera herinn í heild
ábyrgan fyrir slysi einstaklings og
einnig fannst þeim ómaklega farið
með Cuche hershöfðingja. En við
þetta bættist nú annað. Í júní var
gefin út „hvít bók“ um nýskipun
franska hersins, og mátti þar lesa
að í hinum mikla sparnaði hins
opinbera og niðurskurði á öllum
sviðum væri röðin nú komin að
honum: það á sem sé að fækka í
hernum um 54.000 menn á næstu
árum og annað eftir því. Í eina tíð
þurfti stórorrustu til að valda svo
miklu mannfalli. Þetta þótti
mörgum nokkuð langt gengið, ekki
síst nú þegar herflokkar eru
sendir til Afganistans: hvað svo
sem mönnum finnst um þær
aðgerðir er ekki álitamál að sá her
sem fær slíkt hlutverk verður að
vera vel búinn að mönnum og
öðru. Hinir þöglu hermenn sögðu
þó ekki neitt um þessa nýskipun,
en þeim mun meira heyrðist í
borgarstjórum á stöðum eins og
Carcassonne þar sem hermenn
hafa löngum verið staðsettir,
gjarnan með fjölskyldum sínum.
Þeir sáu fram á efnahagslegt hrun
sinna borga ef herbúðirnar yrðu
skyndilega lagðar niður, að þeim
forspurðum, svo og lokun skóla og
sjúkrahúsa og annað af því tagi.
Nú er því svo komið að hyl-
dýpisgjá virðist hafa opnast milli
Sarkozys og hersins. Fréttaskýr-
endum kemur það ekki að öllu
leyti á óvart, þeir sjá lítið sameig-
inlegt með herforingjum sem eru
gjarnan kaþólskir, íhaldssamir
upp á gamla móðinn og standandi
á gömlum merg, afkomendur
herforingja í marga ættliði, og svo
á hinn bóginn þeim nýríku
frjálshyggjumönnum og stjörnum
skemmtanaiðnaðarins sem
Sarkozy safnar í kringum sig. En
þá vaknar spurningin: er hyggilegt
af forsetanum að láta þessa gjá
opnast og breikka? Það hefði de
Gaulle varla talið.
Skothríðin
EINAR MÁR JÓNSSON
Í DAG | Sarkozy og herinn
Þ
að er nýr háttur á Alþingi að koma saman í september-
byrjun til að ljúka afgreiðslu óútræddra mála frá liðnu
vori. Áður þurfti að byrja slíkar umræður að nýju við
upphaf næsta þings. Nú er unnt að taka til við þær þar
sem frá var horfið. Þetta losar lítið eitt um þá tíma-
spennitreyju sem þingumræður festast í á hverju vori.
Eins og viðgangur þjóðlífsins hefur verið er álitaefni hvort rök
standa yfir höfuð til að skipta kjörtímabilinu upp í sjálfstæð þing.
Störf þingsins gætu orðið enn skilvirkari með því að hverfa frá
þessari gömlu hefð ef einföld leið fyndist til að afskrifa þau mál
sem ekki hafa fylgi. Til þess að þetta megi verða þarf væntanlega
að breyta stjórnarskránni. En það er verðugt umhugsunarefni.
Breytingar sem gerðar voru á þingsköpum fyrr á þessu ári fólu
í sér takmarkanir á málþófsmöguleikum. Þær hafa bætt umræð-
ur í þinginu. Ýmsir óttuðust að möguleikar stjórnarandstöðunnar
til að koma skilaboðum á framfæri við þjóðina myndu þrengjast
við þetta. Sú hefur ekki orðið raunin. Umræðurnar eru einfald-
lega beinskeyttari.
Forsætisnefndin hefur kunngert opnun á störfum þingnefnda.
Þær geta nú kallað ráðherra til samráðs eða yfirheyrslu um mikil-
væg mál í heyranda hljóði. Fari svo að yfirborðskenndar utandag-
skrárumræður í þingsal færist yfir á þennan vettvang má reikna
með að þær verði bæði dýpri og beittari en þó umfram allt meira
upplýsandi. Takist vel til getur þessi háttur oðrið liður í mark-
vissara aðhaldi að framkvæmdavaldinu. Árangurinn gæti birst í
sterkara þingi.
Formaður utanríkisnefndar hefur réttilega vakið athygli á
umfjöllunarleysi Alþingis um nýjar gerðir og reglur Evrópusam-
bandsins sem hér fá lagagildi. Þetta er alvarleg brotalöm í þing-
störfunum. Í ljósi þeirra róttæku breytinga sem forseti þingsins
hefur þegar komið fram væri þetta viðfangsefni rökréttur næsti
áfangi í umbótastarfinu.
Upplýst hefur verið að forsætisnefnd vinni nú að reglum sem
þingmenn geti farið eftir til að upplýsa um hagsmunatengsl sem
rétt þykir að séu kunn og opinber. Vel fer á því. En mikilvægt er
að hafa í huga að staða alþingismanna er í eðli sínu önnur en emb-
ættismanna. Frelsi kjósenda til að velja þá sem þeim sýnist til
setu á Alþingi verður ekki skert með vanhæfisreglum. Þeir eiga
einfaldlega rétt á að velja menn til setu á Alþingi til þess að verja
þá hagsmuni sem þeir telja brýnasta hverju sinni og hver eftir
sínu höfði.
Hitt er annað að miklu skiptir fyrir lýðræðislega umræðu og
allt mat á störfum þingmanna að skoðanir þeirra séu kunnar. Að
sama skapi getur verið þörf á að hagsmunatengsl þeirra séu gegn-
sæ. Því hafa skráningarreglur þar um víða verið settar.
Að ýmsu er að hyggja í því sambandi. Er gagn af þeim nái þær
ekki til maka? Sums staðar hefur það á hinn veginn verið talið
andstætt jafnréttisreglum að kalla eftir slíkum upplýsingum. Er
gagn af eignaskráningu ef skuldaskráning fylgir ekki? Eiga regl-
ur af þessu tagi að ná til annarra? Nefna má sveitarstjórnarmenn,
forseta Íslands og jafnvel ábyrgðarmenn fjölmiðla.
Umræður um þetta viðfangsefni og þær breytingar sem þegar
eru ráðnar sýna að forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, er á góðu
skriði við að laga starfshættina að nýjum tímum og nýjum kröf-
um.
Alþingi:
Gott skrið
ÞORSTEINN PÁLSSON
Eigendur meðfylgjandi listaverka eru
vinsamlegast beðnir um að hafa sam-
band við Sveinssafn sem bæði hefur
áhuga á að skrá verkin og að fá þau
lánuð á sýninguna “SJÓRINN OG
SJÁVARPLÁSSIД, sem safnið opnar í
Hafnarborg 15. nóv n.k.
Þeir sem eiga í fórum sínum myndir
eftir Svein frá Hafnarrði þar sem skip
og höfnin gegna hlutverki í mynd-
etinum eru sömuleiðis hvattir til að
hafa samband við safnið.
Vinsaml. hað
samband við
Erlend Sveins-
son í síma:
8610562 eða
5525235.
Sveinssafn
auglýsir eftir
listaverkum
eftir Svein Björnsson
Netið góða
Guðni Ágústsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, fór aðeins fram úr
sjálfum sér á Alþingi í gær. Geir H.
Haarde forsætisráðherra hafði talað
um aðsteðjandi þrengingar á vinnu-
markaði í ræðu sinni og sagði
meðal annars: „Þeir sem missa
vinnuna geta treyst á netið sem
sterkt velferðarkerfi býður uppá.”
Þetta tók Guðni óstinnt upp en
illu heilli virðist hann þó aðeins
hafa hlustað á hálfa setning-
una: „Og forsætisráðherra
segir fólki bara að treysta
á netið,“ sagði Guðni í
umvöndunartón, ekki
par hrifinn af brýningu
Geirs um að hinir
atvinnulausu dræpu
tímann með bloggi.
Hanna og Hanna
„Hitabeltisstormurinn Hanna er ekki
lengur skilgreindur sem fellibylur
en talið er að hann gæti náð styrk
fellibyls á ný.“ Þetta mátti lesa á Mbl.
is í gær. Hanna hitabeltisstormur
virðist vera að ganga í gegnum
nákvæmlega sömu
sviptingar og
nafna hennar,
borgarstjór-
inn í Reykja-
vík.
The National Movement
Hans Kristján Árnason og félagar í
Þjóðarhreyfingunni gáfu þingmönn-
um í gær bókina Animal Farm, eða
Dýrabæ, eftir George Orwell. Um er
að ræða sérútgáfu sem kemur út í 63
eintökum, hvert þeirra ánafnað og
merkt einum tilteknum þingmanni.
Með þessu vill Þjóðarhreyfingin
hvetja alþingismenn til góðra verka,
ekki síst í eftirlaunamálinu, sem
hreyfingin hefur andmælt af krafti.
Athygli vekur aftur á móti, að þótt
til sé ágæt íslensk þýðing á Dýrabæ
eftir Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi,
er útgáfan sem þingmennirnir
fengu að gjöf á frummálinu,
ensku. Ekki mjög þjóðlegt hjá
Þjóðarhreyfingunni.
bergsteinn@frettabladid.is
UMRÆÐAN
Guðmundur Ingvarsson og
Ólafur Stefánsson skrifa um
handbolta
Viðburðaríkasta vika í sögu handknattleiks á Íslandi er nú
að baki. Landslið karla í hand-
knattleik og stjórn HSÍ vilja með
örfáum orðum þakka fyrir þá
gríðarlegu samstöðu og stuðning sem við höfum
fundið fyrir frá þjóðinni allri.
Íþróttamenn eru ávallt stoltir af því að keppa
undir merkjum Íslands og á Ólympíuleikum
getur heilbrigt þjóðarstolt verið mikill drifkraftur
til árangurs. Það var landsliðinu í handbolta
mikils virði að finna stuðning forseta landsins og
ráðherra íþróttamála á keppnisstað í Kína.
Leikmenn leyfðu sér margir að túlka það sem
táknræna nærveru þjóðarinnar allrar, enda sá
liðið jákvæðni í hverju horni, eins og landsmenn
þekkja. Landslið karla í handknattleik hefur áður
fundið meðbyr hjá þjóðinni en líklega aldrei eins
sterkt og á þessum leikum.
Þegar kom að því að taka á móti silfurverðlaun-
um var það stór stund fyrir
leikmenn og hópinn allan. En þær
mögnuðu móttökur sem liðið fékk,
þegar íslenska þjóðin fagnaði
heimkomunni, tóku öllu fram sem
þessi hópur hefur áður upplifað.
Ráðherra íþróttamála lofaði okkur
góðum móttökum þegar heim
kæmi, en engan okkar óraði fyrir
því að hún og hennar ráðuneyti,
ásamt borgaryfirvöldum, gætu
skipulagt heila „þjóðhátíð“ með
svo skömmum fyrirvara.
Handboltalandsliðið og handknattleikshreyfing-
in vilja láta í ljós þakklæti fyrir stuðninginn,
móttökurnar og þá jákvæðu strauma sem við
höfum fundið. Sá fjárhagslegi styrkur sem nú
berst handboltanum í landinu, gefur auk þess von
um fleiri þjóðhátíðir í framtíðinni.
Íslensk þjóð er að læra að láta ekkert „bíb“
skemma einbeitinguna og einblínir þess í stað á
jákvæðni og metnaðarfull markmið.
Takk fyrir okkur – og áfram Ísland.
Guðmundur Ingvarsson er formaður HSÍ.
Ólafur Stefánsson er fyrirliði
landsliðs karla í handknattleik.
Með þakklæti og handboltakveðju
GUÐMUNDUR
INGVARSSON
ÓLAFUR
STEFÁNSSON