Fréttablaðið - 03.09.2008, Side 22
WWW.IMOTORMAG.CO.UK stóð nýlega fyrir vali á tíu verstu
bílum í breskri bílaframleiðslu að áliti Breta sjálfra. Rover 800 og Triumph
Acclaim eru á meðal þeirra bíla sem lenda á listanum, en Austin Allegro
trónir á toppnum með 24,3 prósent atkvæða þeirra sem tóku þátt.
Breski bílaklúbburinn HERO (His-
toric Endurance Rallying Organis-
ation) stendur fyrir fornbíla-rallíi
hér á landi og komu hátt í sjötíu
eðalvagnar til landsins í gær.
Yngsti bíllinn var framleiddur
árið 1981 en sá elsti 1922.
Í rallíinu, sem ber yfirskriftina
An Icelandic Odyssey og fer fram
dagana sjöunda til tólfta septemb-
er, verður farið hringinn í kring-
um landið og er um að ræða blöndu
af keppni og ferðamennsku.
Keppnin hefst klukkan níu á
sunnudagsmorgun en Hanna
Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri
mun ræsa hana frá Ráðhúsi
Reykjavíkur. Síðan verður farið á
Þingvöll, Gullfoss og Geysi og
endað á ljósanótt í Keflavík. Næstu
daga á eftir verður svo haldið á
Suðurland, austur á firði, til Akur-
eyrar og endað í Reykjavík.
Tryggvi Magnús Þórðarson,
meðlimur Bifreiðaíþróttaklúbbs
Reykjavíkur, sem hefur verið
HERO innan handar við skipu-
lagningu, segir fyrst hafa verið
komið að máli við sig um keppnina
fyrir átta árum.
„Það er að ýmsu að hyggja þegar
fara á með 200 manna hóp hring-
inn í kringum landið en nú er málið
í höfn og er um að ræða stærsta
viðburð í fornbílaheiminum á
árinu.“
Tryggvi segir að keppnin verði
brotin upp með ýmsum hætti og
munu keppendur nema staðar við
helstu náttúruperlur landsins.
Hann segir ýmsa stórmerkilega
bíla væntanlega á göturnar og
nefnir Bentley-bíla frá því fyrir
stríð og íslenskan Trabant. „Þá
verður þarna til dæmis Austin
Mini Cooper í eigu feðganna Tonys
og Chris Newman en sá bíll tók
þátt í Monte-Carlo aksturskeppn-
inni árið 1965 og er mikið augna-
yndi.“ vera@frettabladid.is
Fornbílar á ferð um landið
Tugir fornbíla munu næstu daga aka hringveginn um landið en þeir eru hluti af alþjóðlegu fornbílarallíi
sem ber yfirskriftina An Icelandic Odyssey og er um að ræða stóran viðburð í heimi fornbíla.
Tryggvi Magnús Þórðarson
segir ýmsa stórmerkilega
bíla væntanlega á göturnar.
Þessi Jaguar XK 120 árgerð 1954 mun
aka um götur landsins næstu daga en
hér má sjá hann á vegarslóða þar sem
svokallaðar „Hill Climbs“ uppákomur
fóru fram á árum áður.
M
YN
D
/R
EM
Y
ST
EI
N
EG
G
ER
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Bremsuhlutir
í alla jeppa
og pickupa
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Diskar
Klossar
Dælur
Borðar
Ísetningarþjónusta
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
E
H
F
.
Alla föstudaga