Fréttablaðið - 03.09.2008, Side 34
18 3. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
BANDARÍSKI LEIKARINN CHARLIE
SHEEN ER 43 ÁRA Í DAG.
„Mér finnst óskynsamlegt að
velta sér upp úr hlutum sem
maður sér eftir. Hvað sem
maður kann að hafa gert, þá
er það hluti af manni sjálf-
um og maður getur aðeins
breytt sjálfum sér.“
Leikarinn Charlie Sheen á skrykkjóttan feril að baki í kvik-
myndum. Hann vakti fyrst athygli í kvikmynd Olivers Stone,
Platoon (1986). Eftir það lá leiðin upp á við með myndum á
borð við Wall Street (1987), Young Guns (1988) og Hot Shots
(1991). Á tímabili var útlit fyrir að ferill Sheens væri á enda
sökum fíkniefnaneyslu, en hann hefur nú náð sér að mestu á
strik og mestmegnis haldið sig við leik í sjónvarpi.
MERKISATBURÐIR
1919 Flogið er í fyrsta sinn á
Íslandi, nánar tiltekið í
Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Flugvélin er af Avro-gerð
og flugmaðurinn enskur,
Cecil Faber að nafni.
1921 Brúin yfir Jökulsá á Sól-
heimasandi er vígð. Brú-
argerðin þykir ein sú
mesta og vandasamasta
sem ráðist hefur verið í á
Íslandi.
1982 Sýning á verkum Bertels
Thorvaldsens er opnuð á
Kjarvalsstöðum. Er það í
fyrsta sinn sem sýning á
verkunum er haldin utan
Danmerkur.
1988 Brúin yfir ósa Ölfusár er
formlega tekin í notkun.
Leiðin milli Þorlákshafnar
og Eyrarbakka styttist úr
45 í 15 kílómetra.
Húsmunir, tölvur, farartæki,
föt og safngripir í misjöfnu
ásigkomulagi, eru á meðal
þess sem er skráð, boðið í
og selt í milljónatali á hverj-
um degi á vefsíðunni eBay
sem var stofnuð á þessum
degi árið 1995.
Stofnanda vefsíðunnar,
hinn fransk-íranski forritari
Pierre Omidyar, hefur sjálf-
sagt ekki órað fyrir vinsæld-
um síðunnar þegar hann fór
fyrst af stað með hana undir
heitinu AuctionWeb það ár.
Fyrsti hluturinn sem seld-
ist á vefsíðunni var bilaður leisir-bendill sem fór
á 14.83 dollara. Undrandi spurði Omidyar kaup-
andann hvort hann áttaði sig á í hvers konar
ásigkomulagi bendillinn
væri og fékk það svar að
hann safnaði biluðum leisir-
bendlum. Segja má að það
hafi gefið tóninn þar sem
hlutirnir á síðunni hafa allar
götur síðan verið í æði mis-
jöfnu ásigkomulagi, allt frá
biluðum leisir-bendlum upp
í sportbíla beint úr kass-
anum.
Fyrirtækið eBay Inc.
sem stendur á bakvið síð-
una, sem fékk á sig heitið
eBay árið 1997 og var sett
á hlutabréfamarkað árið
1998, á nú fyrirtæki eins og PayPal, Skype og
StubHub og veltir himinháum fjárupphæðum á
ári hverju.
ÞETTA GERÐIST: 3. SEPTEMBER 1995
Veffyrirtækið eBay stofnað
Hópur eldri klæðskera og kjólameist-
ara hittist í gær í hátíðakaffi ásamt
kennurum á fataiðnbraut hins nýja
Tækniskóla - skóla atvinnulífsins. Til-
efnið var sextíu og fimm ára afmæli
Klæðskera- og kjólameistarafélags-
ins. Í framhaldinu er fyrirhuguð sýn-
ing á gömlum og flottum flíkum saum-
uðum af fagfólki. Hún verður haldin í
Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 19. til 22.
september. Þar verða 60 gínur dubbað-
ar upp og meðal sýningargripa er fatn-
aður sem þekktir einstaklingar hafa
borið við opinberar athafnir.
Selma Gísladóttir, sölustjóri í
saumavéladeild Pfaff, er formaður fé-
lagsins nú um stundir og lumar á fróð-
leik um það.
„Það var í kjólaversluninni Fix sem
tólf konur komu saman og stofnuðu
Félag kjólameistara í Reykjavík 2.
september árið 1943. Það barðist frá
upphafi fyrir því að kjólasaumur yrði
viðurkennd og lögvernduð iðngrein,“
byrjar Selma frásögn sína. „Þá voru
líka gjaldeyrishöft í landinu og félag-
ið fékk skammtaðan gjaldeyri sem það
mátti kaupa tískublöð fyrir og fleira
til reksturs saumastofanna. Konurnar
tólf áttuðu sig á að nauðsynlegt var að
standa saman og efla fagið.“
Selma segir félagið hafa breyst í
áranna rás. Fyrst hafi það einungis
starfað í Reykjavík en síðar náð til alls
landsins. Haldnar hafi verið tískusýn-
ingar og störf félagsmanna orðið sýni-
leg í þjóðfélaginu. „Fataiðndeild Iðn-
skólans tók til starfa árið 1977, tæpum
tuttugu árum eftir að hugmyndin að
því námi kom fram,“ segir Selma og
heldur áfram að rekja söguna. „Árið
1983 sameinaðist Félag kjólameist-
ara, Félag kvennaklæðskera og Klæð-
skerameistarafélagið undir nafninu
Félag meistara og sveina í fataiðn.
Síðan var nafninu breytt í Klæðskera-
og kjólameistarafélagið árið 2005.“
Nú eru um hundrað manns í félag-
inu að sögn Selmu. Þar af er aðeins einn
karlmaður klæðskeri, fæddur árið 1931.
„Klæðskeraiðn er orðin alger kvenna-
grein hér á landi,“ segir hún. „Einn karl-
maður er lærður í kjólasaumi en hefur
ekki starfað við fagið í fjörutíu ár.“
Sjálf útskrifaðist Selma úr Iðn-
skólanum árið 1998. Þá var námsefni
klæðskera og kjólameistara sameig-
inlegt fyrstu þrjú árin en greindist
svo á fjórða og síðasta árinu. Nú segir
hún svið fataiðnar hafa verið víkk-
að. Nemendur geti útskrifast sem
fatatæknar eftir tveggja ára nám en
sveinn í klæðskurði eða kjólasaumi
eftir fjögur. Spurð hvort vandasam-
ara sé að sauma kjóla eða karlmanna-
föt svarar hún. „Það er kannski álíka
vandasamt en jakkafatasaumur
krefst ýmissa tækja umfram kjóla-
saum. Saumastofur eru ekki allar
búnar þessum græjum og geta því
ekki tekið klæðskurð.“
Selma segir saumastofum hafa
fækkað mikið á undanförnum árum
því öll fjöldaframleiðsla sé farin úr
landi. Nóg sé samt að gera hjá þeim
sem eftir eru. „Það þarf að sauma fyrir
leikhús og bíómyndir auk þess að sér-
sauma fyrir einstaklinga,“ segir hún
og bætir við að lokum. „Það er ekki
bara verið að sauma brúðarkjóla.“
gun@frettabladid.is
FÉLAG KLÆÐSKERA- OG KJÓLAMEISTARA: FAGNAR SEXTÍU OG FIMM ÁRA AFMÆLI
Kaffisamsæti og fatasýning
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Guðfinna Ólafsdóttir
ljósmóðir, frá Tungu í Fljótshlíð,
varð bráðkvödd á heimili sínu, Dalsbakka 14,
Hvolsvelli, fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn.
Oddgeir Guðjónsson
Guðlaug Oddgeirsdóttir Sigurður Sigurðsson
Ólafur Sv. Oddgeirsson Fiona MacTavish
barnabörn og langömmubörn.
Systir okkar,
Elín Sigurjónsdóttir
Steinum undir Eyjafjöllum,
verður jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn
6. september kl. 11.00.
Þórarinn Sigurjónsson
Árni Sigurjónsson
Eyjólfur Sigurjónsson
og aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Jón Snær Sigurjónsson
frá Snæhvammi í Breiðdal, til heimilis að
Unnarbraut 28, Seltjarnarnesi,
lést mánudaginn 1. september á Landakoti. Útförin
auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hlíf Þ. Jónsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Hulda Halldórsdóttir
frá Sunnuhlíð, Svalbarðsströnd,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 29. ágúst. Útför hennar
fer fram frá Svalbarðskirkju á Svalbarðsströnd föstu-
daginn 5. september kl. 14.00.
Hreinn Ketilsson
Hólmfríður Hreinsdóttir Stefán Stefánsson
Ingibjörg Hreinsdóttir Haukur Már Ingólfsson
Hólmkell Hreinsson Kristín Sóley Sigursveinsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
Sigrún Sigurjónsdóttir
Jörgensen
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað föstu-
daginn 29. ágúst sl. Útför hennar fer fram frá
Norðfjarðarkirkju föstudaginn 5. september kl. 14.00.
Róbert Jörgensen María Hjálmarsdóttir
Haraldur Jörgensen Matthildur Sigursveinsdóttir
Petrún Jörgensen Friðjón Skúlason
Jenný Sigrún Jörgensen Jóhann Tryggvason
barnabörn og barnabarnabörn.
„Við ætlum að hefja nýliða-
þjálfun í vikunni og erum
þess vegna með stutta kynn-
ingu á starfinu, þar sem for-
menn allra flokka sveitarinn-
ar segja frá sinni starfsemi,“
segir Íris Marelsdóttir, for-
maður Hjálparsveitar skáta
í Kópavogi, um kynningar-
fund sveitarinnar sem fer
fram í húsnæði hennar að
Bryggjuvör 2 í Kópavogi
klukkan 20 í kvöld. Íris segir
að yfirleitt sé tekið á móti 20
til 25 nýliðum um þetta leyti
á ári hverju. Menn þurfa að
vera sautján ára á árinu til að
geta hafið nýliðaþjálfun sem
tekur átján mánuði og hefst
á morgun. „Þá munum við
ganga á Vífilsfell til að njóta
útiverunnar og fá tækifæri til
að kynnast hvert öðru,“ segir
hún og bætir við að ekki veiti
af átján mánaða þjálfun, þar
sem menn geti lent í erfið-
um útköllum og verði því að
kunna vel til verka.
Ókeypis verður á kynn-
inguna í kvöld og veitingar í
boði. Nánar á www.hssk.is.
Í þágu allra landsmanna
HJÁLPARSTARF Starf í björgunar-
sveit býður upp á öryggishlutverk
í þágu allra landsmanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AFMÆLI „Konurnar tólf áttuðu sig á því að nauðsynlegt var að standa saman og efla fagið,“ segir Selma Gísladóttir, formaður Félags klæðskera-
og kjólameistara og vísar þar til upphafs félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON