Fréttablaðið - 03.09.2008, Side 39
MIÐVIKUDAGUR 3. september 2008 23
Fransk-íslensk klezmerhljóm-
sveit kemur fram á Nasa í kvöld.
Sveitina skipa fimm hljóðfæra-
leikarar og er Heiða Björg
Jóhannsdóttir klarinettuleikari
þeirra á meðal. Sveitina kalla þau
Klezmer Kaos og hefur hún verið
á faraldsfæti um Evrópu undan-
farna mánuði og kom meðal ann-
ars fram í hópi tuttugu og fimm
sveita sem sóttu alþjóðlega hátíð í
Amsterdam sem helguð er gyð-
ingatónlist, á liðnu vori.
Gyðingatónlist, eða klezmer-
tónlist er sprottin upp úr samfé-
lagi evrópskra gyðinga á fyrri
öldum og hefur á síðari árum
notið mikilla vinsælda víða í Evr-
ópu og Bandaríkjunum, ekki
aðeins í samfélögum fólks af kyn-
stofni gyðinga, heldur líka meðal
fólks af öllum þjóðernum. Hraði
og skemmtan sem fylgir klezmer-
tónlist er meginástæða vinsæld-
anna. Klezmer Kaos hefur á
starfstíma sínum sótt stef sín í
alls kyns tónlist úr mörgum
áttum, jafnvel í safn íslenskra
þjóðlaga en klætt þau og flutt í
búning hefðar tónlistar gyðinga.
Íslenska þjóðlagarokksveitin
Múgsefjun mun hita upp fyrir
Klezmer Kaos í kvöld en Nasa
opnar kl. 20 og hefjast tónleikarn-
ir skömmu eftir það. Áhugasamir
geta litið á síður sveitarinnar á
www.com/klezmerkaos. Miðasala
er á midi.is.
Klezmer-sving í kvöld
TÓNLIST Heiða Björg Jóhannsdóttir
klarinettuleikari.
Í listamannahúsinu StartArt,
Laugavegi 12b, stendur nú yfir
sýning á hljóðljóði eftir Magnús
Pálsson. Magnús er nýlega fluttur
aftur til Íslands eftir margra ára
búsetu í Lundúnum, en hann á
langan og farsælan feril að baki
sem listamaður.
Magnús hefur sýnt verk sín víða
um heim og hefur einnig sýnt á
tveimur sýningum hérlendis nú í
sumar. Um miðjan mánuðinn
verður opnuð sýning á verkum
hans í Gallery Crystal Ball í
Berlín, þar sem hann mun fremja
gjörning sem tengist verkinu
Rainbow Clippings sem hann sýnir
nú í StartArt.
Hljóðljóðið Rainbow Clippings
er myndrænt klippiverk á tuttugu
blöðum sem myndar leikrænan
texta til flutnings af þremur
röddum. Í StartArt er verkið flutt
af hljóðlistamönnunum Rod
Summers og Tom Winter ásamt
höfundinum Magnúsi Pálssyni.
Flutningur verksins er einnig
einskonar klippimynd því raddirn-
ar þrjár eru teknar upp sín í
hverju landi og að síðustu klipptar
saman á Íslandi af Steinþóri
Birgissyni. - vþ
Magnús Páls-
son snýr aftur
MAGNÚS PÁLSSON Skemmti sér vel á
opnun sýningar sinnar í StartArt.
Sýning á verkum listakonunnar
Sólveigar Aðalsteinsdóttur var
opnuð í Listasafni ASÍ, Freyju-
götu 41, um helgina. Verkin á
sýningunni tengjast öll tíma,
rými og frásagnarmætti efnanna,
en sýningin samanstendur af
teikningum á pappír, viðarskúlpt-
úrum og ljósmyndum.
Í Gryfjunni eru teikningar af
köngulóavefjum, í Arinstofu eru
litljósmyndir og í Ásmundarsal
sýnir listakonan skúlptúra og
svarthvítar ljósmyndir þar sem
ljósið hefur teiknað beint á
ljósnæma filmuna. Sólveig hefur
sýnt myndlist sína síðan árið 1980
á fjölmörgum einka- og samsýn-
ingum hérlendis og erlendis.
Sýningin stendur til 21.
september. - vþ
Sólveig
sýnir í ASÍ
Sýning á verkum Ilmar Stefáns-
dóttur myndlistarmanns verður
opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar
á föstudag. Sýningin ber heitið
Fjölleikar og er markmiðið með
henni að breyta svipmóti myndlist-
arinnar í eins konar skemmtanalist
þar sem fagurlistir og skemmtana-
iðnaður mætast. Sýningin er á
dagskrá ljósanætur, menningar- og
fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar.
Sýningin er í sýningarsal
Listasafns Reykjanesbæjar í
Duushúsum og stendur til 19.
október. - vþ
Skemmtileg
myndlist
ILMUR STEFÁNSDÓTTIR Opnar fjöruga
sýningu á föstudag.
M
YN
D
: C
R
IS
C
B
Darri Lorenzen myndlistarmað-
ur verður með fyrirlestur og
gjörning í Listasafni Reykjavík-
ur í Hafnarhúsi annað kvöld kl.
20. Viðburðurinn ber yfirskrift-
ina „Núna, þá og seinna“ og
byggir á nýlegum verkum og
verkefnum sem listamaðurinn er
með í vinnslu. Darri er meðal
listamanna sem eiga verk á
Tilraunamaraþoni Hafnarhúss-
ins, en þar býður hann áhorfand-
anum að ganga inn í rými sem
lokast og ekki er hægt að
yfirgefa að vild. Annað verk
Darra sem vakti athygli hér á
landi vann hann í leikfimisal
Austurbæjarskóla á menningar-
nótt 2007. - vþ
Núna, þá og
seinna
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
VITA er í eigu Icelandair Group
og flýgur með Icelandair
á vit ævintýranna.
VITA er lífið
Skráðu þig í netklúbbinn - VITAferðir.is
Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
Madonna di Campiglio
og Canazei
á mann í þríbýli, 2 fullorðnir og
1 barn, í 7 nætur, með hálfu fæði,
á Hotel Grazía Plaza, brottför 24. jan.
Almennt verð: 119.995 kr.
NÝTT!
Njóttu lífsins í fegurð ítölsku Alpanna.
Fylltu lungun af fersku fjallalofti áður en þú
svífur niður brekkurnar með roða í kinnum
af mjallhvítu fjöri og sól.
Brekkurnar bíða
þín á Ítalíu
Beint morgunflug með
Icelandair til Verona í vetur
24. og 31. janúar
og 7., 14., 21. og 28. febrúar.
Berið saman verð og gæði
Fararstjórar: Anna og Einar
Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni
um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum.
Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar
keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast
þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins.
Þú getur notað
Vildarpunktana
hjá okkur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
34
88
0
8.
20
08
Verð frá 109.995 kr.
og 15.000 Vildarpunktar