Fréttablaðið - 03.09.2008, Síða 46
30 3. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
Ekkert er nýtt undir sólinni, sér-
staklega ekki í auglýsingabransan-
um. Í nýrri auglýsingu fyrir „Núll-
ið“, fjölskylduáskrift Símans, eru
meðlimir sömu fjölskyldunnar
sýndir tala ofsalega hratt og klykkt
er út með að segja: „Þú þarft ekki
lengur að tala svona hratt.“
Eins árs gömul auglýsing frá
bandaríska símafyrirtækinu T-
mobile er sláandi lík þeirri íslensku.
Þar sést fjölskylda tala rosalega
hratt í farsíma og klykkt er út með
því að spyrja: „Er fjölskyldan þín
að greiða of mikið fyrir farsím-
ann?“
Ennemm auglýsingastofan með
Jón Gnarr í fararbroddi samdi aug-
lýsinguna. „Það er nú svo margt
líkt,“ segir Jón og viðurkennir að
hafa séð bandarísku auglýsinguna
áður en hann samdi þá íslensku.
„Ég myndi nú ekki ganga svo langt
að segja að auglýsingin sé stolin, en
það má segja að hún sé „inspíruð“
af þeirri amerísku eða í sama
anda.“
Jón segir að svipuð atvik hafi
áður komið upp. „Það voru stundum
skets með Fóstbræðrum sem fólk
taldi sig hafa séð áður,“ segir hann.
„Ég hef aldrei tekið svona gagn-
rýni mjög alvarlega enda eru oft
svipaðar hugmyndir í gangi á mis-
munandi stöðum. Og svo er þetta nú
bara auglýsing. Það er ekki eins og
ég sé Hannes Hólmsteinn.“
Auglýsingarnar tvær má bera
saman á netinu, til dæmis hjá god-
samskipti.blog.is. - glh
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
GAMLA MYNDIN
LÁRÉTT
2. klettur, 6. ryk, 8. knæpa, 9. áverki,
11. tveir eins, 12. kompa, 14. særa,
16. tveir eins, 17. hvoftur, 18. kk nafn,
20. vörumerki, 21. mergð.
LÓÐRÉTT
1. vöndull, 3. tveir eins, 4. strits, 5.
rangl, 7. afsökun, 10. segi upp, 13.
starfsgrein, 15. svari, 16. átti heima,
19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT:
2. sker, 6. im, 8. krá, 9. sár, 11. ff, 12.
klefi, 14. skaða, 16. bb, 17. gin, 18.
jón, 20. ss, 21. ótal.
LÓÐRÉTT:
1. visk, 3. kk, 4. erfiðis, 5. ráf, 7.
málsbót, 10. rek, 13. fag, 15. ansi, 16.
bjó, 19. na.
„Mér hefur heldur farið fram í
útliti þótt skeggið sé farið, hárið
orðið hvítt og hrukkurnar hafi
dýpkað. Nú er ég líka orðinn
sextugur og sexfaldur afi þannig
að útlitið hlýtur að mildast og
mótast af því. Meðan ég var
rauðhærður ungur maður var
mér raun af litnum en nú sakna
ég þessa bráðfallega háralitar.“
Magnús Jónsson veðurstofustjóri
Myndin er tekin í janúar 1989.
„Þetta lag er auðvitað fyrir löngu
orðið sameign þjóðarinnar, þó ég
sé svo heppinn að vera skrifaður
fyrir því. Það hlýtur því að segja
sig sjálft að það þurfti töluvert til
að ég samþykkti að lagið færi í
auglýsingu fyrir peningastofn-
un,“ segir Magnús Kjartansson
tónlistarmaður. Lagið sígilda sem
Magnús ræðir um er Lítill dreng-
ur sem Vilhjálmur Vilhjálmsson
söng og kom út á plötunni Hana
nú árið 1977. Lagið heyrist nú í
sjónvarpsauglýsingu Spron í
ósunginni útgáfu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er Lítill drengur dýrasta
lag sem selt hefur verið í auglýs-
ingu á Íslandi. Þær heimildir
herma að Spron hafi greitt 1,75
milljónir króna fyrir notkun á
laginu. Magnús vill ekki tjá sig
um hvað hann fékk greitt. „Ég lít
á það sem trúnaðarmál milli mín
og viðsemjenda minna.“ Fyrr í
sumar var greint frá því að Megas
hefði fengið um það bil 1,5 millj-
ónir króna fyrir lagið Ef þú smæl-
ar framan í heiminn sem notað
var af Toyota.
Magnús segir að hann hafi
verið á báðum áttum með hvort
hann ætti að selja lagið til Spron.
Það gæti verið viðkvæmt fyrir
mjög marga. „Strax þegar þessi
hugmynd kom upp þá gerði ég
mér grein fyrir því að málið var
ákaflega viðkvæmt því lagið
hefur verið flutt í skírnum, í jarð-
arförum og við alls konar per-
sónulega viðburði hjá næstum
öllum fjölskyldum á landinu. Ég
þurfti að veltast með þessa spurn-
ingu í brjósti mínu í þó nokkurn
tíma. Ég tel þó, að eins og lagið
birtist núna þá sé það til sóma og
allir geti verið rólegir. Það er alla-
vega mín einlæga von. Svo get ég
fullvissað fólk um að lagið mun
eingöngu tengjast nafni Spron,
það verður ekki hægt að kaupa
það út úr Spron, hvorki framan
frá né aftan frá.“
Eftir að Megas seldi lag sitt á
dögunum spratt upp töluverð
umræða um réttmæti þess að
listamenn selji lög sín í auglýs-
ingar. Magnús hefur ákveðnar
skoðanir á þessu. „Ég verð að
segja að í sambandi við mín aug-
lýsingalög í gegnum tíðina, sem
og lög Megasar og annarra höf-
unda, þá fagna ég því að til séu
fyrirtæki á Íslandi sem enn sjá
sóma sinn í því að nota íslenska
tónlist í íslenskar auglýsingar. Og
þegar þær eru sungnar að það sé
gert á íslensku. Ég trúi ekki
mínum eigin augum þegar ég sé
íslenskan sveitabæ í auglýsingu
að það sé gaulað undir af erlendri
plötu, „Love, love, love“. Og þegar
ég sé íslenskt lindarvatn að þá
heyri ég „And your Body is a
Temple“. Ég get ekki hugsað mér
að eiga viðskipti við fyrirtæki
sem hlaupa svona um í íslensku
samfélagi eins og fílar í glerbúð.
En það getur verið að ég tilheyri
fámennum hópi hvað þetta varð-
ar.“
hdm@frettabladid.is
MAGNÚS KJARTANSSON: ERFIÐ ÁKVÖRÐUN AÐ SELJA LAG SEM VILLI SÖNG
Lítill drengur dýrasta aug-
lýsingalag Íslandssögunnar
Tónlistarmaðurinn André Bach-
mann hóf nýverið afgreiðslustörf
hjá Olís í Álfheimum. Er það ekki
í frásögur færandi nema það að
síðasta plata hans, Með kærri
kveðju, er þar einnig til sölu og
hafa kaupendur hennar nýtt tæki-
færið og fengið André til að árita
hana fyrir sig.
„Þetta er fólk á öllum aldri sem
kemur. Ég er með þar til gerðan
penna og fólk bara biður um þetta,
ég er ekkert að troða þessu upp á
það,“ segir André, sem seldi fjór-
tán plötur í fyrradag.
Auk þess að fást á tonlist.is og
bonusvideo.is er platan til sölu í
öllum afgreiðslustöðvum Olís á
höfuðborgarsvæðinu og er André
þakklátur vinnuveitendunum
fyrir stuðninginn. „Þeir hafa stutt
vel við bakið á mér. Þetta er sjálf-
sagt vegna þess að maður er að
rækja sitt starf vel,“ segir hann
og þvertekur fyrir að hann sé að
misnota aðstöðu sína.
André byrjaði sem lausamaður
á öllum bensínstöðvum Olís á höf-
uðborgarsvæðinu í fyrra en hefur
nú fest rætur í Álfheimum. Áður
en hann stimplar sig þar inn ekur
hann þó enn strætó um borgina
með bros á vör eins og hann hefur
gert undanfarin ár. „Maður getur
ekki slitið sig frá farþegunum og
gulu limmunni,“ segir hann og
hlær.
Einn af fastakúnnum bensín-
stöðvarinnar er Raggi Bjarna,
kollegi og góðvinur André, enda
var hluti af Olís-auglýsingu Ragga
tekinn þar upp. „Það er alltaf mik-
ill fögnuður þegar við hittumst,“
segir André, sem hefur brátt und-
irbúning fyrir jólavertíðina. „Ég
held mína árlegu jólatónleika
fyrir fatlaða og síðan eru það jóla-
böllin og jólahlaðborð. Maður þarf
að vera vel skipulagður.“ - fb
Áritar við afgreiðsluborðið
Jón Gnarr er ekki Hannes Hólmsteinn
Sigur Rós og fjölmennt fylgdar-
lið er nú í tveggja vikna pásu frá
heimsyfirreið sinni. Flestir úr hópn-
um eru komnir heim með sjóriðu
og flugþreytu til að hvíla sig fyrir
næstu tónleika; í New York hinn 17.
september. Síðasta „gigg“ fyrir pásu
var á festivali í Skotlandi á sunnu-
daginn en þar deildi bandið aðal-
hlutverki með Franz Ferdinand.
Eftir „gigg“ fóru sveitirnar
saman á fyllirí sem
reyndar var fremur
hóflegt. Ýmiss konar
fyrirmenni troða
sér jafnan baksviðs
eftir tónleika Sigur
Rósar til að lýsa yfir
velþóknun sinni.
Meðal þeirra
var söngkonan
Duffy sem
átti varla orð
til að mæra
tónlistarfólkið
íslenska.
Það gerist æ
algengara að íslenskt tónlistarfólk
gefi tónlist sína eingöngu út á
netinu. Nýverið kom út „platan”
Standard v.1 á Tónlist.is. „Platan”
inniheldur þrjú lög eftir Hallgrím
Bergsson, sem á árum áður var í
hljómsveitunum Orfeus og Eglu.
Hann tók upp grunna laganna
árið 1982 en gaf sér það svo í
fimmtugsafmælisgjöf að klára og
fínpússa upptökurnar. Eiríkur
Hauksson syngur eitt lag, Eiríkur
og Hera Björk syngja annað,
en fyrir marga er eflaust mestur
fengur í laginu „Dreams”,
sem Pétur heitinn
Kristjánsson syng-
ur, enda ekki á
hverjum degi sem
„nýtt” lag með
honum heyrist.
- glh
FRÉTTIR AF FÓLKI
Frá 15. september til 11. desember 2008
ERFITT AÐ SELJA Magnús Kjartansson segir að það hafi verið erfið ákvörðun að selja
lagið Lítill drengur í auglýsingu Spron. Lagið er dýrasta lag sem selt hefur verið í
auglýsingu á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
VAR BÚINN AÐ SJÁ AMERÍSKU
AUGLÝSINGUNA Jón Gnarr
gengur samt ekki svo langt að
viðurkenna stuld.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. 2.777.276 krónur.
2. Varmá.
3. Samúel.
VIÐ AFGREIÐSLUBORÐIÐ André Bachmann áritar sína nýjustu plötu fyrir þá sem óska
eftir því hjá Olís í Álfheimum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN