Fréttablaðið - 29.09.2008, Side 32

Fréttablaðið - 29.09.2008, Side 32
● fréttablaðið ● útivist 29. SEPTEMBER 2008 MÁNUDAGUR ● ENDURNÝTANLEGIR HANDVERMAR eru nýjasta viðbótin við það sem útivistarfólk getur haft með sér í ferðir til að auka þægindi. Hægt er að fá gelfyllta handverma eða hand- verma sem brenna kveikjarabensíni. Þeir gelfylltu innihalda litla töflu sem er brotin og við það verða efnabreyting- ar sem mynda hita. Svo endurnýta megi verminn þarf að sjóða hann í um fimm mínútur og þá er hann tilbúinn í næstu ferð. Vermarnir fást í mismunandi stærð- um og eru einkar handhægir þegar ferðalangar þurfa að hlýja sér áður en gengið er til náða. Þá er til dæmis afar vinsælt að nota þá til að hlýja svefn- poka. Vermarnir gagnast einnig þeim sem hita þurfa auma vöðva eftir átök dagsins. ● FYRIR MARGA FERÐALANGA ER NESTIÐ STÓR ÞÁTTUR ÚTIVIST- AR. Sumir kjósa að hafa með sér ýmiss konar þurrmat enda létt að bera slíkt en aðrir vilja ekki láta slíkt inn fyrir sínar varir. Aðalatriðið í nestisgerð er að maturinn sé nær- ingarríkur og hentugur hverri ferð. Samlokur eru góðar í dagsferðir en fara illa á nokk- urra daga ferðalagi. Þá er hrökkbrauð eða flatkökur oft hentugra. Súkkulaði, hnetur og rúsínur eru einnig gott nesti. Kalt slátur er þjóðlegur og næringarríkur matur sem margir kjósa að hafa með sér í ferðalög, sem og harðfiskur, sem er léttur og næringar- ríkur. Ferðamenn ættu að forðast að hafa með sér mat sem inniheldur mikið af vatni, er þungur eða tekur mikið pláss í farangrinum. Þá er góð regla að hafa alltaf eitthvað matarkyns, súkkulaðistykki eða hnetupoka innan seilingar, í vasa eða hólfi utan á bakpoka svo ekki þurfi að stoppa lengi eða taka af sér bakpokann ef ferðamaðurinn vill næla sér í smá næringu. Fimm manna hópur ætlar að klífa fjallið Shivling á Indlandi og stefnir að því að standa á tindinum upp úr miðjum október. Fjallið er ríflega 6.000 metra hátt og þykir erfitt. „Heillandi áskorun,“ segir Berglind Aðalsteinsdóttir. „Við förum utan á miðvikudaginn og ætlum að klífa fjallið Shivling sem er rétt rúmlega 6.500 metra hátt og er á Indlandi. Við erum fimm sem förum saman og gefum okkur fjórar vikur í þetta verkefni. Inni í því er ferðalag að fjallinu, hæðaraðlögun og klifrið sjálft,“ segir Berglind Aðalsteinsdóttir, læknir á Akureyri. Fimmmenningarnir fljúga til Delhi og aka svo í þrjá daga í þorpið Gangotri sem er í 3.000 metra hæð. Þaðan er gengið eftir pílagrímaslóðum frá upptökum Ganges fljótsins. Þau þurfa að þvera Gangotri-skriðjökulinn áður en þau setja upp grunnbúðir. „Eftir grunnbúðir reiknum við með að setja upp þrjár efri búðir. Við vonumst til að standa á toppn- um í síðari hluta október,“ segir Berglind. Hún segir að framvinda ferðar- innar fari eftir veðri og aðstæð- um. Yfirleitt sé frekar stöðugt veðurfar á þessum slóðum á þess- um árstíma, hlýtt og bjart að deg- inum en kalt á nóttunni áður en sólin kemur upp. „Monsúntímabil- inu er að ljúka þannig að við reikn- um með stilltu veðri en svo veit maður aldrei.“ Þegar Berglind er spurð af hverju Shivling-fjall hafi orðið fyrir valinu segir hún „fallegt fjall sem við teljum að sé heill- andi áskorun. Þetta er tæknilegt, ekki fyrir óvant fólk. Fjallið fær alpa gráðuna D sem stendur fyrir „difficult“ og þýðir erfitt.“ Leiðangursmennirnir fimm eru allir félagar í björgunarsveitinni Súlum og Íslenska alpaklúbbnum, Ísalp, en reynslan úr því starfi kemur sér vel á svona ferðalagi. Skarphéðinn Halldórsson, ritari Ísalp, segir að klúbburinn standi fyrir byrjendanámskeiði í ísklifri í nóvember og framhaldsnám- skeiði eftir áramót. Á fyrra nám- skeiðinu læri menn handbrögð og tækni og svo geti þeir komið með í ferðir á vegum klúbbsins. „Ísklifur er alvarlegt sport og ég mæli síður með því að menn ráðist á næsta ísfoss sem þeir sjá eftir byrjendanámskeið í ísklifri,“ segir Skarphéðinn. „Kosturinn við Ísland er að það er gósenland fyrir ísklifur,“ segir hann og telur auðvelt að finna góða staði til að klifra á, ekki bara úti á landi heldur líka í kring- um Reykjavík, til dæmis báðum megin í Esjunni, í Múlafjalli og Glymsgil í Hvalfirði. „Möguleik- arnir eru gríðarlega miklir og al- gjörlega vannýttir. Þeir eru ekki svo margir sem stunda þetta sport og því hellingur af ísleiðum úti um allt land sem hafa aldrei verið farnar,“ segir hann. - ghs „Monsúntímabilinu er að ljúka þannig að við reiknum með stilltu veðri,“ segir Berglind Aðalsteinsdóttir læknir, sem er vön fjalla- klifri þar sem hún er meðlimur í björgunarsveitinni Súlum og Íslenska alpaklúbbnum. Heillandi að klífa Shivling á Indlandi Eiríkur Geir Ragnars, Gunnar Sverrir Ragnars, Berglind Aðalsteinsdóttir, Kári Erlingsson og Arnar Þór Emilsson fara fljótlega utan til að ganga á Shivling-fjall á Indlandi á næstu vikum. „Við vonumst til að standa á toppnum í síðari hluta október,“ segir Berglind. „Frekar að taka meira en minna er mottóið í þessu,“ segir Albert Steinþórsson, félagi í jeppaklúbbnum Rembingi, spurður hvað eigi að taka í jeppaferðina. „Maður þarf að vera með allt í fullkomnu standi, til dæmis nóg af klæðnaði. Öll helstu verkfæri eiga að vera til staðar ef til þess kemur að maður þurfi að gera við. Tappasett er nauðsynlegt ef dekk springur og ég ráðlegg að skófla, spotti og aukaskór séu líka með í för,“ segir Albert. Albert telur að þeir sem haldi í jeppaferðir eigi að kunna algeng- ustu hnúta, og nefnir pelastikk sem alveg ómetanlegan. Þegar farið er í jeppaferðir bendir Al- bert á að fara „alltaf tveir eða fleiri saman, sérstaklega ef farið er eitthvað lengra en dagsferð“. Albert er búinn að vera „jeppa- karl“ í um það bil fimm ár, og er því nokkuð reyndur. Hann segir mikilvægt að fólk sé vel undir- búið áður en lagt er af stað, bæði með tilliti til búnaðar og þess að kynna sér vegi og leiðir. „Yfir sumartímann er gott að fara í fjögurra til fimm daga há- lendisferðir og tjalda í góðra vina hópi. Yfir veturinn eru dagsferðir heppilegri. Hægt er að taka lang- an dag, eða tvo daga og gista þá í skálum. Annars fer þetta allt mjög mikið eftir veðri og færð,“ segir Albert spurður um heppi- lega tímalengd hálendisferða. „Hvort sem ferðast er að sumri eða vetri þarf að passa að hafa annað hvort GPS-tæki eða góða bók um þann landshluta sem ferð- ast er til.“ - aóv Aldrei of vel undirbúinn Albert er nokkuð reyndur jeppakarl. 2 Vertu klár í rigninguna í North Ice Icefi n Nóatúni 17 • S5343177 • www.icefi n.is Innifalið í North Ice Outdoor pakkanum: Vatnsheldur öndunarjakki, buxur, léttur jakki og buxur einnig öndunarbolur. Kostar allt 25,900,-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.