Fréttablaðið - 29.09.2008, Page 58
26 29. september 2008 MÁNUDAGUR
FÓTBOLTI Mörg félög hafa tekið
þann pól í hæðina í lok tímabils að
skipta um þjálfara. Útlit er fyrir
óvenju litlar hræringar að þessu
sinni og fátt sem bendir til annars
en að ellefu af þeim tólf liðum sem
eiga þátttökurétt í Landsbanka-
deildinni sumarið 2009 muni halda
þeim þjálfurum sem fyrir eru
núna.
Eina þjálfaralausa félagið er
Fylkir, sem rak Leif Garðarsson
og réð Sverri Sverrisson til þess
að stýra liðinu á lokasprettinum.
Sverrir hefur lýst því yfir að hann
eigi ekki þess kost að þjálfa liðið
áfram og Fylkir er því í þjálfara-
leit.
Tveir þjálfarar eru helst nefnd-
ir til sögunnar – Zoran Miljkovic
og Ólafur Þórðarson. Miljkovic
náði afar eftirtektarverðum
árangri með lið Selfoss í 1. deild-
inni í sumar og var frekar óvænt
næstum búinn að koma liðinu upp
í Landsbankadeildina. Þarf því
ekki að koma á óvart að Árbæingar
skuli gefa þjálfaranum skeggjaða
auga. Nafn Ólafs Þórðarsonar
hefur lengi verið í umræðunni en
Ólafur þjálfaði Fylki á sínum tíma
og margir Árbæingar myndu
fagna endurkomu hans.
„Maður veit aldrei hvað gerist í
þessu,“ sagði Ólafur spurður hvort
hann væri að taka við Fylkisliðinu.
„Ég hef heyrt af áhuga Fylkis-
manna en engar formlegar við-
ræður hafa átt sér stað. Ég hefði
klárlega áhuga á að taka verkefnið
að mér en það virðist vera verk að
vinna þar,“ sagði Ólafur, sem
stýrði Fylki á árunum 1998 og
1999. Hann sagði að dvölin í
Árbænum hefði verið ánægjuleg.
Kristján Guðmundsson hjá
Keflavík og Ásmundur Arnarsson
hjá Fjölni eiga eftir að ganga frá
sínum málum. Ekki er þó annað að
heyra en að vilji sé hjá báðum
þjálfurunum að halda áfram en
báðir náðu fínum árangri með sín
lið í sumar.
Ekkert félag virðist vera á þeim
buxunum að reka þjálfara í lok
sumars en eini orðrómurinn þess
efnis er að Blikar hafi íhugað að
losa sig við Ólaf Kristjánsson eftir
mikið vonbrigðatímabil í Kópvog-
inum. Einar Kristján Jónsson, for-
maður knattspyrnudeildar Breiða-
bliks, segir þó ekkert hæft í þeim
orðrómi.
„Nei, það er ekkert hæft í þess-
um orðrómi. Ef Ólafur vill vera
áfram þá verður hann áfram. Ég
veit ekki annað en hann vilji vinna
fyrir okkur áfram,“ sagði Einar
Kristján, sem dregur þó ekki dul á
að sumarið hafi verið vonbrigði.
„Auðvitað er þetta tímabil geysi-
leg vonbrigði. Við ætluðum okkur
mun stærri hluti.“
Nýliðar ÍBV og Stjörnunnar
munu halda þjálfurum sínum,
þeim Heimi Hallgrímssyni og
Bjarna Jóhannssyni. Það er alltaf
rætt um þjálfaramál KR í lok sum-
ars en Logi Ólafsson er með samn-
ing við félagið og ekki annað að
heyra á mönnum en að sá samn-
ingur verði virtur. henry@frettabladid.is
Litlar breytingar á þjálfaramálum
Eins og staðan er í dag er líklegast að ellefu af þeim tólf þjálfurum sem stýra liði sem eiga sæti í Lands-
bankadeildinni stýri sínu liði áfram. Aðeins Fylkir á eftir að ráða í stöðu þjálfara en Sverrir Sverrisson mun
ekki þjálfa liðið áfram. Zoran Miljkovic og Ólafur Þórðarson eru sterklega orðaðir við Árbæjarliðið.
HELDUR STARFI SÍNU
Ólafur Kristjánsson
verður ekki rekinn
sem þjálfari Breiða-
bliks.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NÆSTI ÞJÁLFARI FYLKIS? Zoran Miljkovic, þjálfari Selfoss, og Ólafur Þórðarson, fyrrver-
andi þjálfari Fylkis, eru helst taldir koma til greina sem næsti þjálfari Árbæjarliðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR & HÖRÐUR
LANDSBANKADEILD 2009
Þjálfarastaða félaganna:
FH: Heimir Guðjónsson.
Keflavík: Kristján Guðmundsson
líklega áfram.
Fram: Þorvaldur Örlygsson.
KR: Logi Ólafsson líklega áfram.
Valur: Willum Þór Þórsson.
Fjölnir: Ásmundur Arnarsson
líklegast áfram.
Grindavík: Milan Stefán Jankovic.
Breiðablik: Ólafur Kristjánsson.
Fylkir: Zoran Miljkovic og Ólafur
Þórðarson taldir líklegir.
Þróttur: Gunnar Oddsson.
ÍBV: Heimir Hallgrímsson.
Stjarnan: Bjarni Jóhannsson.
FÓTBOLTI Markvörðurinn Gunn-
leifur Gunnleifsson er sterklega
orðaður við félög í Landsbanka-
deildinni þar sem HK féll niður í
1. deild.
Gunnleifur átti enn og aftur
frábært tímabil á milli stanganna
hjá HK og hefur sjaldan eða
aldrei verið betri. Verður því að
teljast ólíklegt að hann sætti sig
við að spila í næstefstu deild.
„Ég ætla bara að taka mér frí í
nokkra daga og svo mun ég
ákveða mig. Annars vil ég ekkert
tjá mig um málin á þessari
stundu,“ sagði Gunnleifur þögull
sem gröfin.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa nokkur félög í
Landsbankadeildinni þegar sett
sig í samband við Gunnleif og þar
á meðal eru FH og KR.
FH-ingar ku vilja nýjan og
ferskan markmann og svo búast
KR-ingar við því að missa Stefán
Loga Magnússon til útlanda og
vilja þeir fá Gunnleif til þess að
fylla hans skarð. - hbg
Gunnleifur Gunnleifsson:
Orðaður við
FH og KR
GUNNLEIFUR Besti markvörður Íslands-
mótsins í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Arnar Grétarsson mun
að öllum líkindum leika áfram
með Blikum næsta sumar. Arnar,
sem verður 37 ára á næsta ári,
gaf það út í sumar að hann myndi
líklega hætta eftir tímabilið og
þá ekki síst vegna þess að honum
líkar afar illa við leikdagana í
deildinni.
„Þessir leikdagar eru ekkert
sérstaklega fjölskylduvænir.
Þess utan tel ég að bæði leik-
menn og stuðningsmenn vilji
frekar spila á miðviku- og
fimmtudögum í stað sunnu- og
mánudaga,“ sagði Arnar, sem
bindur miklar vonir við að
nýstofnuð leikmannasamtök
muni ná sínu fram en hann segist
einnig vita af áhuga hjá KSÍ að
breyta leikdögum í deildinni.
„Annars hef ég ekki alveg gert
upp hug minn en líklega mun ég
þó halda áfram. Ég ætla aðeins
að skoða hvað gerist í þessum
málum sem og í leikmannamál-
um hjá okkur en þar verða
eflaust einhverjar breytingar,“
sagði Arnar, sem fundaði með
forráðamönnum Blika í gær um
framhaldið. „Það eru allir eðli-
lega drullusvekktir eftir þetta
tímabil.
Við lögðum upp með að ná Evr-
ópusæti og gera atlögu að ann-
arri hvorri dollunni. Það töldum
við raunhæft miðað við þann
mannskap er við höfðum. Átt-
unda sætið er því mikil von-
brigði. Þess utan er mjög erfitt
að labba burt eftir svona tímabil.
Það er ekki svona sem ég vil
enda ferilinn,“ sagði Arnar, sem
mun mæta á æfingar með Old
Boys-liði Blika á sunnudögum í
vetur. - hbg
Arnar Grétarsson heldur líklega áfram að spila:
Vil ekki enda svona
ARNAR GRÉTARSSON Stóð sig vel í sumar og býst við því að spila áfram næsta
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Eins og fram kemur í
fréttinni hér að ofan búast KR-
ingar við því að missa markvörð
sinn, Stefán Loga Magnússon, út í
atvinnumennsku.
„Ég veit ekkert hvað verður
nákvæmlega en hef heyrt af
áhuga frá Norðurlöndunum og
Englandi. Ég er að einbeita mér
núna að því að vinna bikarinn
með KR,“ sagði Stefán Logi
spakur en hann hefur áhuga á að
komast út.
„Auðvitað vil ég æfa og spila í
umhverfi sem getur gert mig
betri en ég er. Það væri gaman að
komast út og það væri líka gaman
að spila annað tímabil með KR,
þar sem mér líður vel,“ sagði
Stefán Logi, sem er samnings-
bundinn KR og því þarf félagið að
samþykkja tilboð í hann áður en
hann fer utan. - hbg
Stefán Logi Magnússon:
Undir smásjá
margra liða