Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.10.2008, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 02.10.2008, Qupperneq 4
4 2. október 2008 FIMMTUDAGUR VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 14° 14° 7° 10° 13° 14° 14° 13° 12° 12° 26° 25° 15° 13° 26° 19° 29° 21° Á MORGUN 5-10 m/s LAUGARDAGUR 8-13 m/s 0 -1 -2 0 -1 1 1 1 1 1 -5 3 1 2 6 10 10 6 5 2 4 2 1 -1 01 2 2 4 43 5 HELGARHORFUR Eins og staðan er nú er helst að sjá að heldur hlýni um helgina. Úrkomuloft verður við norður- og austurströndina á laugardag og verður sú úrkoma yfi rleitt slydda eða rigning á láglendi. Á sunnu- dag verður víða ein- hver úrkoma, rigning eða slydda en þó úrkomulítið SV-til. Vindhraðinn er mjög á reiki enn þá. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur VINNINGUR Vinningshafinn í þrefalda pottinum í lottóinu um síðustu helgi er ung kona í sambúð sem á von á sínu fyrsta barni. Þetta kom fram á vefsíðu Íslenskrar getspár í gær. Á síðunni segir einnig að konan hafi verið með tíu raða lottóseðil í áskrift í nokkurn tíma og voru tölurnar sem dregnar voru út á laugardaginn í efstu röðinni á seðlinum hennar. Fjölskyldan hafi átt erfitt með að trúa því þegar tölurnar birtust á skjánum að þau væru nú orðin rúmlega fjótán milljónum ríkari. - kdk Íslensk getspá: Barnshafandi ung kona vann 14 milljónir ALÞINGI Sé lærdómur dreginn af baráttu Íslands fyrir fullveldi og forræði yfir miðum landsins sést að vandamálin sem nú steðja að eru ekki meiri að vöxtum en erfið- leikar á fyrri tímum, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, við setningu Alþingis í gær. Ólafur sagði þá erfiðleika sem nú steðji að hér á landi hvorki gefa tilefni til uppgjafar né örþrifa- ráða: „Þvert á móti er þjóðin nú ríkulega búin að auðlindum, fjöl- þættri menntun og margþættri reynslu, og hún nýtur velvildar hjá öllum ríkjum.“ Ólafur sagði að þó að sigur hafi unnist í baráttu við heimsveldi eftir að lögsagan var færð út í tólf sjómílur fyrir 50 árum hafi úrslit- in verið óviss meðan á átökunum hafi staðið. Aðstæður í heiminum hafi verið andsnúnar Íslandi. „Það þurfti framsýna forystu- sveit til að ákveða útfærslu land- helginnar, leiðtoga sem höfðu kjark til að ganga gegn vilja vold- ugra ríkja. Fólkið í landinu stóð einhuga að baki þeim, skildi að hin nýja sjálfstæðisbarátta var ekki síður brýn en sú sem Fjölnismenn og Jón Sigurðsson hófu á sínum tíma,“ sagði Ólafur Ragnar. Þá hvatti hann þingheim til að veita 1. desember þá virðingu sem þeim degi beri, og gera það í tæka tíð fyrir aldarafmæli fullveldisins árið 2018. Þjóðin muni án efa taka slíku frumkvæði vel. - bj Vandamál sem nú steðja að gefa ekki tilefni til uppgjafar, segir forseti Íslands: Lærum af sjálfstæðisbaráttu ÞINGSETNING Ólafur Ragnar hvatti þingheim til að veita 1. desember þá virðingu sem deginum beri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL Þjóðhagsspá for- sætisráðuneytisins var kynnt í gær í skugga óþekktra sveiflna í íslensku hagkerfi. Forsendur spárinnar, sem byggð er á upplýs- ingum frá því um miðjan sept- ember, hafa gjörbreyst og riðlað niðurstöðum. Langtímaspár eru þó taldar áreiðanlegar þrátt fyrir að þróun á landsframleiðslu og verðlagi séu háðar meiri óvissu en nokkru sinni. Spáin verður endurmetin á næstu vikum en fjárlagafrumvarpið sem einnig var kynnt í gær byggir á henni. Þorsteinn Þorgeirsson, skrif- stofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, segir að forsendur þjóðhagsspár þurfi að leggja fram í byrjun september þar sem það er lögboðið að birta þjóðhagsspá í byrjun október. „Þegar við erum að vinna að spánni verðum við að taka tillit til aðstæðna eins og þær eru á þeim tíma. Síðan hefur ýmislegt gerst og kannski meira en við höfum áður séð. Í allri spágerð verðum við að gefa okkur forsendur og sjáum ekki fram í tímann. Tíma- setningin vinnur ekki með okkur.“ Þorsteinn segist ekki vita, frekar en aðrir, hvernig gengið þróast á næstunni en gert hafi verið ráð fyrir nokkurri styrkingu í spánni. Almennt séð segir Þorsteinn það jákvætt að nýlokið sé fram- kvæmdum sem hafa aukið fram- leiðslugetu í áli og mikill viðsnún- ingur fyrirsjáanlegur í utanríkisviðskiptum. Eins sé að fara í gang frekari fjárfesting í stóriðju sem muni hafa jákvæð áhrif á efnahagslífið. Samkvæmt þjóðhagsspánni verður verðbólga 11,5 prósent í ár að jafnaði miðað við að gengisvísitalan sé 148,9 en hún stendur nú í rúmlega 200 stigum. Aðspurður ef gengið héldist svipað á næstu mánuðum svarar Þorsteinn að Kaupþing hafi spáð sextán prósenta verð- bólgu fyrir árslok og aðrir hafi nefnt að verðbólgan fari í nítján prósent fyrir árslok. „Við höfum hins vegar ekki enn þá endurmet- ið þessa þróun en það er verkefni næstu daga og vikna.“ Helstu niðurstöður þjóðhags- spárinnar eru að hagvöxtur verði neikvæður um 1,6 prósent á næsta ári, verðbólga verði 5,7 prósent, kaupmáttur dragist saman um 1,4 prósent og atvinnuleysi verði 2,7 prósent. Gert er ráð fyrir 8,2 pró- senta viðskiptahalla. Spáð er að verðbólga dragist hratt saman á næsta ári og að 2,5 prósent verðbólgumarkmiði Seðlabanka verði náð á seinni hluta árs 2010. Það ár er spáð 3,5 prósent atvinnuleysi. svavar@frettabladid.is Þjóðhagsspá nær úr- elt á örfáum dögum Gengi krónunnar hefur lækkað um 20 prósent síðan þjóðhagsspá fjármálaráðu- neytisins var tilbúin 18. september. Aðstæður á fjármálamörkuðum hafa sömu- leiðis versnað til muna. Óvissan er mikil en spár til lengri tíma taldar standast. ÞORSTEINN ÞORGEIRSSON GÓÐ RÁÐ DÝR Endurskoðun þjóðhagsspár er þegar hafin þrátt fyrir að hún sé byggð á upplýsingum frá því í byrjun september. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ALÞINGI Breyta ætti því fyrirkomu- lagi sem tíðkast hefur á afgreiðslu þingmannafrumvarpa á Alþingi, sagði Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, í ræðu sinni við setningu þingsins í gær. Sturla sagði að öll þingmál eigi að fá afgreiðslu úr nefndum þingsins hvort sem meirihluti í nefndinni styðji frumvarpið eða ekki. Alþingi eigi að fá að greiða atkvæði um málin, og fella ef ekki er meirihluti fyrir þeim. Hann sagði það sína skoðun að þingmannamál ættu að fá afgreiðslu frá Alþingi á því kjörtímabili sem þau séu lögð fram á þinginu. - bj Forseti Alþingis vill breytingar: Þingmannamál verði afgreidd ÞING SETT Breyta þarf þeirri viðteknu venju að þingmannamál sofni í nefnd- um þingsins, að mati forseta þingsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GEORGÍA, AP Friðargæsluliðar Evrópusambandsins fengu í gær að kynna sér ástandið á landamær- um georgísku sjálfstjórnarhérað- anna Suður-Ossetíu og Abkasíu. Hlutverk þeirra er að tryggja að friðarsamkomulag milli Rússlands og Georgíu verði virt. Talsmenn rússneskra hersins héldu því fram á þriðjudag að friðargæsluliðarnir þyrftu að halda sig fyrir utan svokallað öryggissvæði, sem nær um sex kílómetra frá landamærunum. Þegar til kom fengu þeir þó að fara inn á öryggissvæðið án nokkurra vandkvæða. - bj Friðargæsluliðar í Georgíu: Fá að fara að landamærum RÆÐA MÁLIN Um 300 friðargæsluliðar frá ESB komu sér fyrir í fjórum stöðvum í Georgíu í gær. NORDICPHOTOS/AFP EFNAHAGSMÁL Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er ósam- mála Helga Hjörvar þingmanni um að bankastjórn Seðlabankans þurfi að rökstyðja áform sín og ákvarð- anir nánar. „Nei, mér finnst ekki vanta rökstuðning, ég er bara ósammála þeim. Ég tel ekki að haglíkanið sem þeir nota lýsi íslenska hagkerfinu,“ segir Vilhjálmur Egilsson. Helgi telur óheppilegt að Seðlabankinn og ríkisstjórnin hafi verið ósamstiga og leggur til að bankaráðið verði leyst upp. - kóþ Framkvæmdastjóri SA: Haglíkanið lýsir ekki aðstæðum FRAKKLAND, AP Endurskoða þarf kapítalíska kerfið í ljósi ástandsins í fjármálaheiminum, þar á meðal háar starfslokagreiðslur stjórn- enda fyrirtækja, segir Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti. Hann hefur boðað fulltrúa Þýskalands, Bretlands og Ítalíu á fund á næstu dögum. Talið er líklegt að fundurinn fari fram í París á laugardag. „Kreppan í fjármálaheiminum sýnir að kerfið er að verða bensínlaust,“ sagði Luc Chatel, talsmaður Sarkozy. Hann sagði að finna þurfi leiðir til að útfæra kapítalismann í nýju umhverfi. - bj Frakklandsforseti vill ráðstefnu: Endurskoða þarf kapítalismann GENGIÐ 01.10.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 201,241 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 107,9 108,42 192,5 193,44 152,62 153,48 20,459 20,579 18,451 18,559 15,688 15,78 1,0168 1,0228 166,8 167,8 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.