Fréttablaðið - 02.10.2008, Síða 6
6 2. október 2008 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL „Það er mikill viðsnún-
ingur frá því sem hefur verið áður,
við erum að fara úr miklum afgangi
í mikinn halla,“ segir Árni Mathie-
sen fjármálaráðherra um fjárlaga-
frumvarp næsta árs.
Í því er gert ráð fyrir 57 millj-
arða króna halla á ríkissjóði. Í fjár-
lögum þessa árs var gert ráð fyrir
40 milljarða króna halla en áætlan-
ir gera nú ráð fyrir að hann verði
þrír milljarðar. Árið 2006 var næst-
um 90 milljarða króna afgangur.
Gjöld ríkisins verða 507 milljarð-
ar á næsta ári og tekjurnar 450
milljarðar. Tekjurnar minnka nokk-
uð á milli ára og gjöldin aukast
umtalsvert.
Samhliða fjárlögunum hefur rík-
isstjórnin samþykkt rammafjárlög
til næstu fjögurra ára. Samkvæmt
þeim verður hallinn 46 milljarðar
árið 2010 og átján milljarðar 2011
en gert er ráð fyrir þriggja millj-
arða afgangi 2012.
Árni Mathiesen segir fjárlögin
notuð til sveiflujöfnunar. Öfugt við
það sem tíðkaðist á uppgangstím-
unum sé þeim nú beitt til að vega
upp á móti efnahagslægðinni.
„Bæði skattar og skattheimtan eru
að minnka þannig að við erum að
skilja meira eftir fyrir aðra í þjóð-
félaginu til að ráðstafa. Svo aukum
við útgjöldin, sérstaklega í fram-
kvæmdum og almannatrygginga-
og atvinnuleysistryggingakerfinu
þannig að þetta frumvarp er sniðið
að því ástandi sem við upplifum
núna.“
Í frumvarpi næsta árs er gert ráð
fyrir að hagvöxtur verði neikvæð-
ur um 1,6 prósent, kaupmáttur
rýrni um 1,4 prósent og að atvinnu-
leysi verði 2,7 prósent. Reiknað er
með að verðbólgan hjaðni og verði
5,7 prósent á næsta ári.
Að sögn Árna er staða ríkisfjár-
mála mjög góð, hrein eign ríkis-
sjóðs sé jákvæð eftir tekjuafgang
síðustu ára og tekjur af sölu ríkis-
fyrirtækja. bjorn@frettabladid.is
121 milljarðs halli á
næstu þremur árum
Ríkissjóður verður rekinn með 57 milljarða króna halla á næsta ári. Útgjöld
hækka um 73 milljarða og tekjurnar minnka um 23 milljarða. Spáð er neikvæð-
um hagvexti, rýrnun kaupmáttar og auknu atvinnuleysi. Verðbólgan minnkar.
AFKOMA RÍKISSJÓÐS FRÁ UPPGJÖRI 2007 TIL RAMMAFJÁRLAGA TIL 2012
Reikningur Fjárlög Áætlun Frumvarp Áætlun Áætlun Áætlun
2007 2008 2008 2009 2010 2011 2012
Tekjur 486,1 473,4 463,4 450,5 476,7 514,8 556,7
Gjöld 397,5 434,2 460,5 507,4 522,3 533,3 553,7
Afkoma 88,6 39,2 2,9 -56,9 -45,6 -18,5 3,0
Fjárhæðir eru í milljörðum króna
ÁHRIF GLITNIS LÍTIL
Árni Mathiesen segir að kaup ríkisins
á stórum hlut í Glitni hafi lítil áhrif á
stöðu ríkissjóðs.
„Vaxtatekjur minnka um þrjá millj-
arða eða svo en að öðru leyti á ég
ekki von á að þetta hafi áhrif. Við
brugðumst við ástandi sem hefði
getað orðið mjög alvarlegt til að
tryggja þann grunn sem við byggj-
um fjárlögin á. Ef ekki hefði verið
brugðist við hefði það getað haft
miklu meiri áhrif á fjárlögin heldur
en viðbrögðin.“
STJÓRNMÁL Ný fjárlög uppfylla ekki skilyrði
Maastricht-sáttmála Evrópusambandsins um
efnahagslegan stöðugleika. Samkvæmt þeim hefði
halli á fjárlögum næsta árs ekki mátt fara yfir 47,3
milljarða króna.
Í fjárlögunum sem kynnt voru í gær er gert ráð
fyrir 57 milljarða króna halla, eða 3,7 prósentum af
vergri landsframleiðslu. Maastricht-skilyrðin kveða
á um að halli á fjárlögum megi ekki fara yfir þrjú
prósent. Samkvæmt nýrri spá efnahagsskrifstofu
fjármálaráðuneytisins verður landsframleiðslan
1.575,3 milljarðar króna.
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagðist, í viðtali
við Markaðinn undir lok ágúst, telja rétt að íslensk
stjórnvöld stefndu að því að uppfylla sem fyrst
Maastricht-skilyrðin. „Það eru almennir hagsmunir
okkar að gera það, óháð Evrópusambandinu,“ sagði
hann og taldi að þjóðin myndi á endanum uppfylla
þau öll, ef sá árangur næðist sem að væri stefnt og
lýst í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Þó svo að halli næsta árs nemi 3,7 prósentum er
ráð fyrir því gert að ríkisreksturinn verði innan
marka næstu ár. Árið 2010 er gert ráð fyrir 2,8
prósenta halla, 1,1 prósents halla 2011 og svo
jákvæðri afkomu upp á 0,20 prósent af vergri
landsframleiðslu árið 2012. - óká
Fjárlög næsta árs uppfylla ekki Maastricht-skilyrðin:
Halli of mikill fyrir Evrópusambandið
„Fyrir það
fyrsta er ljóst
að frumvarpið
er orðið úrelt
um leið og það
kemur út, svo
hratt breytast
aðstæður í sam-
félaginu,“ segir
Jón Bjarnason
VG. „Svo vekur
athygli að frum-
varpið er byggt á óbreyttri stefnu
í ríkisfjármálum sem hefur beðið
algjört skipbrot.“
Jón segir forgangsröð verkefna
ranga, ríkisstjórnin sinni gælu-
verkefnum á borð við hermál,
leyniþjónustu og einkavæðingu
heilbrigðiskerfisins í stað þess að
verja velferðarkerfið, líkt og full
þörf sé á.
Kom úrelt út úr
prentsmiðjunni
JÓN BJARNASON
„Ég lít svo á
að frumvarpið
sé í besta falli
spádómur. Í
það vantar allar
forsendur og á
næstu tveimur
mánuðum kann
staðan að vera
gjörbreytt,“
segir Guðjón
A. Kristjáns-
son, formaður
Frjálslynda flokksins. Eðlilegt sé
að framkvæmdum sé haldið uppi
af nokkrum mætti enda þurfi að
vinna gegn niðursveiflunni. „Það
er til dæmis gott að ráðast í varan-
legar samgöngubætur sem styrkja
byggðarlög og atvinnulíf. Það þarf
að halda uppi atvinnustiginu enda
nóg að gengið og vextirnir séu í
klessu þó að ekki bætist atvinnu-
leysið við.“
Spádómur í
besta falli
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
„Það er forkast-
anlegt að hið
opinbera ætli
ekki að herða
sultarólina í
sínum rekstri
eins og fólk og
fyrirtæki þurfa
að gera,“ segir
Bjarni Harðar-
son, Framsókn-
arflokki. Almenn
sparnaðarkrafa á
ráðuneytin upp á rúmt prósent sé
hin sama og gilt hafi undanfarin
ár. „Ég tel að ríkisreksturinn eigi
að ganga á undan með góðu for-
dæmi en ég sé engar vísbendingar
í þá átt.“
Bjarni kveðst hafa nokkrar
áhyggjur af miklum halla ríkissjóðs
en margir háir útgjaldaliðir séu
skiljanlegir, svo sem vegna aukins
vaxtakostnaðar og launahækkana.
Máttlitlar kröf-
ur um sparnað
BJARNI
HARÐARSON
57 MILLJARÐA
KRÓNA MÍNUS
Árni Mathiesen
fjármálaráðherra
kynnti fjárlaga-
frumvarp ársins
2009 í heimabæ
sínum, Hafnar-
firði, í gær.
Átt þú eða einhver sem þú þekk-
ir hlutabréf í Glitni?
Já 42,3%
Nei 57,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú búin[n] að kaupa bleiku
slaufuna?
Segðu þína skoðun á vísir.is
STJÓRNMÁL Höskuldur Þór Þór-
hallsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, segir að Davíð Oddsson
seðlabankastjóri hafi verið van-
hæfur þegar hann tók ákvörðun í
málefnum Glitnis. „Ákvörðunin
hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir
þá menn sem hann hefur átt í stríði
við undanfarin ár,“ segir Höskuld-
ur sem finnur áliti sínu stoð í hæf-
isreglum stjórnsýslulaganna.
Höskuldur hyggst – í ljósi nýlið-
inna atburða – leggja til við Alþingi
að lögum um skipan seðlabanka-
stjóra verði breytt. „Það skiptir
öllu máli að taka af allan vafa um
sjálfstæði bankans og sýna að
honum sé stýrt á faglegum en ekki
pólitískum forsendum.“ Nauðsyn-
legt sé að búa svo um hnúta að til
æðstu starfa í Seðlabankanum
veljist aðeins fagmenn.
Höskuldur segir það hluta af því
að búa í siðuðu samfélagi að hafa
leikreglur sem virka. Þær geri
það ekki að þessu leyti og því sé
nauðsynlegt að breyta lögum um
skipan seðlabankastjóra.
Frumvarpið er ekki frágengið
og orðalag þess því ekki ljóst.
Né heldur er ljóst hvort, og þá
hverjir, verða meðflutningsmenn
Höskuldar. Kveðst hann vonast til
að þingmenn úr stjórnarflokkun-
um fáist til að flytja það með
honum. - bþs
Þingmaður Framsóknar segir að Davíð hafi verið vanhæfur til að fjalla um Glitni:
Vill fagmenn í Seðlabankann
HÖSKULDUR ÞÓR ÞÓRHALLSSON Segir
mikilvægt að taka af allan vafa um að
Seðlabankanum sé stýrt á faglegum
forsendum.
SKÓLAMÁL Tvítyngd börn í
leikskólum Mosfellsbæjar haustið
2008 eru 55 talsins samkvæmt
yfirliti sem lagt var fram á fundi
fræðsluráðs bæjarins. Börnin 55
mæla á nítján tungumálum og eru
samtals ellefu prósent af heildar-
fjölda leikskólabarna í Mosfells-
bæ.
Á fundi fræðslunefndarinnar
kom enn fremur fram að tví-
tyngdir starfsmenn á leikskólum
Mosfellsbæjar eru átján. Nefndin
hefur lagt til að hafinn verði
undirbúningur leik- og grunn-
skóla Mosfellsbæjar að samræm-
ingu sérstakra móttökuáætlana
fyrir tvítyngd börn. - gar
Leikskólabörn í Mosfellsbæ:
Ellefu prósent
eru tvítyngd
MICHICAN, AP Kona ein í Banda-
ríkjunum festi nýverið kaup á
húsi í bænum Saginaw í Michig-
an-ríki á netuppboðs-vefsíðunni
eBay. Kaupverðið var 1,75
dollarar, eða tæpar 200 íslenskar
krónur miðað við gengi um
miðjan dag í gær.
Hin þrítuga Joanne Smith frá
Chicago átti hæsta boðið af átta
sem bárust í eignina. Hún sagðist
ætla að reyna að selja húsið, enda
hefði hún aldrei komið til
Saginaw og hefði ekki í hyggju að
flytjast þangað.
Nauðungaruppboðstilkynning
hefur verið fest á hurð hússins.
Hinn nýi eigandi þarf því að
borga um 850 dollara, andvirði
um eitt hundrað þúsund íslenskra
króna, í skatta og hreinsunar-
gjöld. - kg
Kona gerir góð kaup á eBay:
Keypti hús á
1,85 dollara
WASHINGTON, AP Nýjustu skoðana-
kannanir Quinnipiac-háskólans
sýna fram á aukinn stuðning við
demókratann Barack Obama á
kostnað repúblikanans John
McCain í barátturíkjunum Ohio,
Flórída og Pennsylvaníu. Mælist
fylgi Obama yfir fimmtíu
prósent, en talið er að mjótt verði
á mununum í þessum ríkjum.
Varaforsetaefni frambjóðend-
anna, þau Joe Biden og Sarah
Palin, hafa eytt síðustu dögum
undir feldi við undirbúning
kappræðna sem fram fara í dag.
Verða það einu kappræður
varaforsetaframbjóðenda fram
að kosningum í nóvember. - kg
Kosningar í Bandaríkjunum:
Obama ofar í
barátturíkjum
OBAMA Talið er að úrslitin í barátturíkj-
unum hafi mikið að segja um endan-
lega útkomu kosninganna.
Glitnir greiddi út vexti á hávaxtareikn-
inga sína um mánaðamótin að venju.
Einnig hefur verið opnað fyrir við-
skipti í þremur sjóðum sem lokuðust
tímabundið.
EFNAHAGSMÁL
Glitnir greiðir vextina
„Nei, það sjáum við ekki. Þetta er
bara goðsögn,“ svarar Guðbjörg Hólm,
gjaldkeri Íslenskrar getspár, aðspurð
hvort ásókn í peningaleiki hafi aukist í
efnahagslægðinni að undanförnu.
HAPPDRÆTTI
Ekki aukning hjá Lottó
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KJÖRKASSINN