Fréttablaðið - 02.10.2008, Side 8
2. október 2008 FIMMTUDAGUR
30%
afsláttur
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Hverafold
Akureyri - Höfn - Grindavík
...ódýrari kostur!
TILBOÐIN GILDA 2. - 5. OKTÓBER
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
40%
afsláttur
25%
afsláttur
ÓTRÚLEGT
VERÐ
HEILL KJÚKLINGUR
FERSKUR
469 kr/kg
782 kr/kg
SAMBANDS HANGILÆRI
ÚRBEINAÐ
1.574 kr/kg
2.249 kr/kg
LÚXUS HNETUBLÖNDUR
EFNAHAGSMÁL Íbúðalán að fjárhæð
25 milljónir íslenskra króna, sem
tekið var í japönskum jenum og
svissneskum frönkum fyrir ári,
hefur tæplega tvöfaldast og stend-
ur nú í 48 milljónum króna. Mánað-
arlegar afborganir hafa hækkað um
120 þúsund krónur, úr 146 þúsund-
um í október í fyrra í 269 þúsund
nú. Höfuðstóllinn hefur þá hækkað
um 84 prósent.
Afborganir af bílaláni, sem var
tekið fyrir ári upp á 1,2 milljónir
króna í japönskum jenum og sviss-
neskum frönkum, hafa hækkað um
tæplega 70 prósent. Eftirstöðvarn-
ar eru nú 1,8 milljónir króna.
Ekki eru til neinar tölur sem sýna
nýjustu stöðuna í vanskilum lands-
manna fyrr en bankarnir skila níu
mánaða uppgjöri í næsta mánuði.
Haraldur Ólafsson, upplýsingafull-
trúi hjá SP fjármögnun, segir að
vanskil vegna bílalána hafi þyngst
örlítið en ekki mikið.
Þó að afborganir erlendra íbúða-
lána og bílalána hafi aukist virðist
fjárnámum ekki hafa fjölgað mikið,
að sögn Reynis Grétarssonar, for-
stjóra Creditinfo. Hann telur að
gangi krónan ekki til baka sé hætta
á holskeflu gjaldþrota og uppsagna
fyrir áramót.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningar Glitnis, segir að gengi
krónunnar hafi víðtæk áhrif á stöðu
heimilanna. Um fjórtán prósent af
skuldum þeirra séu gengisbundin
lán og þar hafi gengið bein áhrif.
Höfuðstóllinn hækki og afborgan-
irnar sömuleiðis hratt. Þá hafi geng-
ið áhrif á aðrar skuldir í gegnum
verðtrygginguna.
„Þetta hefur áhrif á kostnað heim-
ilanna í vörum og þjónustu. Gengis-
breytingin kemur heimilunum afar
illa og rýrir kaupmátt þeirra mjög
hratt. Eitt prósents lækkun á gengi
krónunnar veldur 0,4 prósenta
hækkun á vísitölu neysluverðs. Það
sýnir hvað þessi áhrif eru sterk og
sterkari en víðast í stærri hagkerf-
um.“
Ólafur Ísleifsson, lektor við
Háskólann í Reykjavík, telur að það
geti haft mjög alvarlegar afleiðing-
ar fyrir fyrirtæki og heimili ef
gengið helst svipað og það var í gær
en telur ólíklegt að svo verði til
frambúðar. „Þetta lága gengi er
ekki í neinu samhengi við undir-
stöður efnahagslífsins,“ segir hann.
Ekki sé hægt að útiloka atvinnu-
leysi og flótta fyrirtækja úr landi ef
ástandið breytist ekki. Stjórnvöld,
Seðlabanki og fjármálastofnanir
þurfi að taka höndum saman í „sam-
stilltu reginátaki til að sækja erlent
fé inn í landið til að gjaldeyrismark-
aðurinn fái það lausafé sem svo
alvarlega vantar nú,“ segir hann.
ghs@frettabladid.is
EKKI FJÖLGAÐ MIKIÐ Fjárnámum virðist
ekki hafa fjölgað mikið, að sögn Reynis
Grétarssonar, forstjóra Creditinfo.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Íbúðalán hækkar úr
25 milljónum í 48
Mjög alvarleg hætta steðjar að heimilunum og fyrirtækjum almennt vegna
gengisfalls krónunnar. Afborganir erlendra lána hafa nánast tvöfaldast. Ef
gengið lagast ekki eykst hætta á gjaldþrotum heimila ekki síður en fyrirtækja.
SÁRVANTAR LAUSAFÉ Stjórnvöld, Seðlabanki og fjármálastofnanir þurfa að gera
samstillt reginátak til að sækja erlent fé inn í landið til að gjaldeyrismarkaðurinn fái
lausafé sem sárvantar, að mati Ólafs Ísleifssonar, lektors við Háskólann í Reykjavík.
LÖGREGLUMÁL „Maður skilur ekki
svona hugsunargang,“ segir Arnór
Sigurðsson, kirkjugarðsvörður í
kirkjugarðinum í Hafnarfirði, um
skemmdir sem unnar voru á tólf
leiðum í garðinum.
Luktum og blómavösum var
sparkað af legsteinum og leiðum
auk þess sem legsteinn var brot-
inn niður. Arnór segir greinilegt
að einhverjir hafi gengið um garð-
inn og sparkað niður það sem fyrir
varð.
Hann telur að skemmdirnar hafi
verið unnar á sunnudags- eða
mánudagskvöldið. „Það kom kona
til okkar á þriðjudaginn og sagði
okkur að leiði manns síns hefði
verið skemmt. Þá fórum við að
ganga um og athuga þetta.“
Arnór segir engan liggja undir
grun. „Við fundum bjórdósir við
eitt leiðið. Þannig að það virðast
einhverjir hafa setið að sumbli.“
Hann segir þetta í fyrsta skipti
sem svo alvarlegar skemmdir eru
unnar á leiðum í garðinum og að
þau hjá kirkjugarðinum líti málið
alvarlegum augum. „Okkur þykir
þetta mjög leitt en maður ræður
ekki við svona.“ Hann segir ekki
hægt að loka garðinum á kvöldin.
„Fólk verður að fá að koma að leiði
sinna nánustu þegar það hefur
þörf fyrir það.“
- ovd
Alvarlegar skemmdir unnar á leiðum í kirkjugarðinum í Hafnarfirði:
Sorgleg aðkoma að garðinum
BROTINN KROSS Líklegt er talið að ölv-
aðir einstaklingar hafi gert sér að leik að
ganga um kirkjugarðinn og sparka niður
því sem fyrir varð. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
NÁTTÚRA „Þetta er farið að minna á sauðaþjófnað fyrri
tíma,“ segir Guðfinna M. Hreiðarsdóttir en það var
ófögur sjón sem blasti við henni á nokkrum stöðum við
Skötufjörð í Ísafjarðardjúpi þar
sem hún var við smalamennsku um
síðustu helgi.
Þar fann hún hræ af rollu, hræ af
þó nokkrum gæsum og síðan af
lambi. „Lambið fannst skammt frá
veginum svo líklegast hefur verið
keyrt yfir það en síðan hefur
einhver, hvort sem það var nú
ökumaðurinn eða einhver sem kom
síðar að, haft fyrir því að skera af
því lærin.“
Rollu- og gæsahræin fundust hins vegar við
afleggjara sem liggur að eyðibýlinu Hjöllum. „Það
hafði einhver komið rollunni fyrir þarna, það er alveg
ljóst að hún hefur ekki drepist þarna. Og svo var búið
að hirða bringuna úr gæsunum en afganginum hefur
verið kastað þarna.“
Hún segir að eigendum hafi hvorki verið tilkynnt
um lambið né rolluna.
En ekki voru raunir smalanna allar eftir að hafa
horft upp á hræin. „Við gengum fram á lamb sem var
alblóðugt og hafði greinilega verið bitið af hundi á
aftanverðri síðunni, þetta voru það stór tannaför að
þetta gat ekki verið eftir tófu. Svo það var margt
undarlegt sem bar fyrir auga smala þetta árið.“ - jse
Hræ af sauðfé og gæsum finnast í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi:
Skar lærin af lambi við veginn
GUÐFINNA M.
HREIÐARSDÓTTIR
ÓFÖGUR SJÓN VIÐ DJÚPIÐ Hræ af gæsum og rollu blöstu
við smölum skammt frá eyðibýlinu Hjöllum í Skötufirði við
Ísafjarðardjúp. MYND/GUÐFINNA HREIÐARSDÓTTIR